Kennsla á krefjandi tímum

Fréttir|7. janúar 2021
Pistill

„Ef kennarar heimsins standa ekki vaktina næstu árin er viðbúið að þversögnin um menntun leiði til þess að valdasæknir stjórnmála- eða embættismenn taki ekki aðeins af kennurum þetta hlutverk – heldur reyni að rjúfa þetta mótunarsamband kennara og skólasamfélags,“ skrifar Ragnar Þór Pétursson, formaður KÍ.

Að lifa söguna er að læra hana. Í gærkvöldi horfði heimsbyggðin á þann ótrúlega atburð að stuðningsmenn sitjandi forseta í einu stærsta lýðræðisríki heims gerðu ofbeldisfulla tilraun til að koma í veg fyrir að niðurstaða kosninga, sem forsetinn tapaði, kæmist til framkvæmda. Í gærkvöldi spurði bandarískur kennari á Twitter: „Hvernig í ósköpunum eigum við að ræða þetta við nemendur okkar í fyrramálið?“

Ólgan í Bandaríkjunum hefur verið að stigmagnast og í upphafi árs gekk eftirfarandi tilvitnun um á milli þarlendra kennara á samfélagsmiðlum: „Ef barn hefur náð þróuðum tökum á stærðfræði, talar þrjú tungumál eða fær háar einkunnir en er ófært um að hafa stjórn á tilfinningum sínum, leysa ágreining eða glíma við streitu þá skiptir allt hitt óskaplega litlu máli.“

Eldsnemma í morgun, að bandarískum tíma, skrifaði skólastýra eftirfarandi skilaboð til kennaranna sinna: „Í dag skulum við hlusta á nemendur okkar og svara spurningum þeirra eins heiðarlega og hægt er. Tölum um að fólk hafi allskonar sterkar tilfinningar. Minnum þau á að í skólanum okkar tölum við saman af virðingu þegar okkur greinir á. Fullvissum þau um að þau eru örugg og að við, fullorðna fólkið, styðjum þau.“

Um grundvallartilgang menntunar

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem bandarískt samfélag riðar á fótunum. Árið 1963, rétt rúmum mánuði áður en þáverandi Bandaríkjaforseti, John F. Kennedy, var myrtur, hélt rithöfundurinn og baráttumaðurinn James Baldwin fyrirlestur fyrir kennara. Þar sagði hann meðal annars:

„Þar sem ég er að tala við kennara og er ekki kennari sjálfur og mér stafar dálítil ógn af því vona ég að þið fyrirgefið mér þótt ég byrji á því að ræða um grundvallartilgang menntunar. Mér sýnist að mér, sem foreldri, beri rík skylda til að siða barnið mitt. Maðurinn er félagsvera. Hann þrífst ekki án samfélags. Samfélag byggir aftur á móti á því að allir sem tilheyra því taki ýmsu sem gefnu. Hér mætir okkur grundvallarþversögn því menntun fer fram í félagslegu samhengi og hefur þann tilgang að samfélagið nái markmiðum sínum. Þannig, svo nefnt sé dæmi, urðu þau börn, sem fæddust inn í Þriðja ríkið og voru menntuð út frá tilgangi Þriðja ríkisins, að villimönnum. Þetta er þversögn menntunar: Þegar meðvitund þín vaknar byrjar þú að grannskoða það samfélag sem menntar þig. Hlutverk menntunar er á endanum að skapa manneskju sem hefur hæfnina til að horfa eigin augum á heiminn, að taka eigin ákvarðanir og meta sjálf hvað er svart og hvítt, taka sjálf afstöðu til þess hvort Guð sé á himnum eða ekki. Að spyrja spurninga um heiminn, og að lifa síðan með þeim spurningum, er undirstaða sjálfsmyndarinnar. En engin samfélög eru mjög spennt fyrir því að fjölga slíku fólki. Það sem samfélög vilja fyrst og fremst eru borgarar sem hlýða reglum samfélagsins. En takist samfélagi það ætlunarverk sitt er það komið að fótum fram. Það er skylda allra sem hugsa sjálfstætt að rannsaka eigið samfélag og reyna að breyta því eða berjast við það ­- sama hver áhættan er. Það er eina von samfélaga. Það er eina leiðin til að breyta þeim.“

Hlutverk menntunar er á endanum að skapa manneskju sem hefur hæfnina til að horfa eigin augum á heiminn, að taka eigin ákvarðanir og meta sjálf hvað er svart og hvítt, taka sjálf afstöðu til þess hvort Guð sé á himnum eða ekki.

Í niðurlagi ræðunnar fjallar Baldwin um svarta nemendur í fátækustu og niðurníddustu hverfum Bandaríkjanna og mikilvægi þess að þeim sé ekki ætlað að falla þegjandi og hljóðalaust inn þau hlutverk sem samfélagið hefur áskapað þeim. Niðurlagið er svona:

„Bandaríkin eru ekki allur heimurinn og ef Bandaríkin ætla að verða þjóð þurfa þau að finna leið – og þessi börn verða að hjálpa þjóðinni að finna leið til að nýta hina gríðarlegu möguleika og þá gríðarlegu orku sem sérhvert barn býr yfir. Ef þjóðin finnur ekki leið til að nýta þessa orku, mun orkan tortíma þjóðinni.“

Í gærkvöldi hélt síðan tilvonandi forseti Bandaríkjanna ræðu og sagði:

„Bandaríkin eru ekki svona, við erum miklu betri en þetta.“

Staðreyndin er hinsvegar sú að með nákvæmlega sama hætti og samfélag byggir aldrei á fullkominni hlýðni borgaranna við ríkjandi viðmið og gildi – þá er samfélagið í raun ekki annað en birtingarmynd þess hvort orku og hæfileikum hafi verið fundin heilbrigð útrás í lífi sérhvers barns á leið sinni til fullorðinsára. Það er hvorki hægt að sópa erfiðleikum samfélags undir teppi né uppræta þau með því að látast ekki sjá þá þjóðfélagshópa sem stangast á við hugmyndir þjóðarinnar um sig sjálfa.

Samfélög í vanda

Samfélög eru víða í vanda um þessar mundir. Samfélagið okkar er þar ekki undanskilið. Ég hygg, að ákveðnar hliðstæður séu á milli þroska samfélaganna okkar og hefðbundinna þroskaferla barna og unglinga. Við erum táningar í risastórum stafrænum heimi og hið stafræna sjálf er samofið við sjálf okkar að öðru leyti. Þekkt er hvernig táningsárin hefjast oft á þörf fyrir uppreisn við hefðina og rof í sambandi við manns nánustu sem fylgt er eftir með nánast þráhyggjufullri þörf fyrir að tilheyra hópi jafningja. Þetta leiðir til illviðráðanlegra samskiptaáskorana með tilheyrandi drama og leiðindum.

Ég spái því að við munum ná ákveðnum stafrænum þroska. Facebook er 16 ára og hið stafræna sjálf okkar flestra er ekki mikið eldra en það. Ólætin í Bandaríkjunum í gær voru skipulögð í hópum þar. Hæfileikum er samt á endanum sóað í sálrænt hjarðlífi, hvort sem það er stafrænt eða ekki. Við höfum öll þörf fyrir frekari útrás einstaklingsbundinnar hæfni okkar og þroska. Möguleikarnir eru endalausir en leiðin að uppfyllingu þeirra er brokkgeng því við erum að læra á þetta stafræna sjálf, jafn óðum, sem fyrsta kynslóð. Við höfum hvorki stuðning foreldra né kennara og því er líklega eðlilegt að ferðin sækist hægt.

Hæfileikum er samt á endanum sóað í sálrænt hjarðlífi, hvort sem það er stafrænt eða ekki.

Hvert förum við nú?

Í sögubókum lásum við um farsóttir fyrri alda og líklega átti ekkert okkar von á því sem gerðist í fyrra. Heimurinn er í heljargreipum þess sjúkdóms sem lamað hefur flest samfélög og dýpkað átök og erfiðleika.

Við erum á mjög viðkvæmum stað þegar kemur að menntun. Næstu ár verða kennarar að taka forystu og vera faglega sterkur hópur sem stendur vörð um grundvallartilgang menntunar. Kennarar geta ekki litið svo á að hefðbundið skólastarf afmarki tilgang þeirra og starf.

Starfsþróun kennara er ekkert annað en samsuða þroska og menntunar. Þess vegna horfir kennari ævinlega á sjálfan sig, skólann sinn og samfélag með eigin augum – og breytir því sem þarf að breyta eða berst gegn því sem þarf að berjast gegn. Hann breytir líka sjálfum sér og starfsháttum þegar þörf er á. Þannig breytist skólasamfélagið innan frá og þannig leysist úr læðingi sú orka og sú færni sem breytir skólasamfélaginu til hins betra.

Starfsþróun kennara er ekkert annað en samsuða þroska og menntunar.

Stöndum vaktina

Ef kennarar heimsins standa ekki vaktina næstu árin er viðbúið að þversögnin um menntun leiði til þess að valdasæknir stjórnmála- eða embættismenn taki ekki aðeins af kennurum þetta hlutverk – heldur reyni að rjúfa þetta mótunarsamband kennara og skólasamfélags. Í stað kröfunnar um að mæta flóknum aðstæðum af fagmennsku kemur krafan um aðlögun.

Hættan er sérstaklega mikil núna af þremur ástæðum. Hin fyrsta blasti við í gær. Það er stjórnarfars- og stjórnmálakreppa víða um heim. Við slíkar aðstæður minnka gæði ákvarðana. Önnur er sú að of margar þjóðir voru komnar of stutt á veg við að hagnýta tækni í skólastarfi en eru nú, vegna faraldursins, líklegar til að ofmeta möguleika tækninnar og vanmeta mikilvægi kennara. Hin þriðja stafar af röskunum á skólastarfi vegna heimsfaraldursins. Ístöðulausir stefnumarkendur munu frekar horfa til stöðlunar og prófa til að meta og bæta fyrir áhrif raskana en að leggja áherslu á að kennarar, hver á sínum stað, stýri þeim umbótum eins og einboðið er til árangurs.

Þótt skólastarf hafi verið undarlegt og óhefðbundið síðastliðið tæpt ár þá má færa rök fyrir því að það er einmitt þannig sem mikilvægi fagmennsku kennara hafi sannað sig. Í skólum þarf að vera fólk sem getur lagað sig að óvæntum og fjölbreyttum aðstæðum. Það kann að vera óvenjulegt fyrir samfélag að þurfa sem heild stöðugt að bregðast við nýjum aðstæðum og áskorunum – en það er alvanalegt fyrir kennara. Þess vegna þarf öflugt fólk í kennslu.

Þetta ár verður krefjandi. Síðasta ár var það einnig. En þegar samfélög bila er mikilvægt að skólinn sé það samfélag sem veitir nemendum öryggi og stuðning. Raunar þarf öll menntun að rísa upp af slíkum grunni. Aðeins þannig geta skólar menntað fólk í stað þess eins að skóla það til.