Kennir þú í „bestu“ skólunum?
Þórunn Steindórsdóttir skrifar
Þann 8. apríl birtu DV og Pressan umfjöllun um hvaða skólar eru bestir í Reykjavík, en samanburðurinn var gerður á grundvelli samræmdra prófa. Í kjölfar umfjöllunarinnar fór fram heilmikil umræða meðal kennara sem og annarra, sem láta sig skólamál varða. Ljóst er af þeirri umræðu að margir setja spurningarmerki við slíkan samanburð. Af viðbrögðum við umfjölluninni má greina að sumir hafa eflaust upplifað hana sem árás á ákveðna skóla og þá kennslu sem þar fer fram. Sjálf er ég hlynnt því að gerðar séu úttektir á gæðum skólastarfs og fagna því þegar unnið er úr þeim með slíkum hætti. Ennfremur tel ég að slíkt sé skólastarfi til framdráttar.
Margir þættir hafa áhrif
Auk þess að vera með kennsluréttindi í grunn- og framhaldsskóla er ég félagsfræðingur. Sem slíkur hef ég unnið við rannsóknir og gert margvíslegan samanburð á ýmsum hlutum. Það er reynsla mín á því sviði sem fær mig til að staldra við þessa umfjöllun. Þarna er verið að slá því föstu að ákveðnir skólar skari fram úr án þess að rýna í önnur gögn en samræmd próf. Það er vissulega rétt að þessir skólar koma best út á prófunum, en er það eini mælikvarðinn á það hvað er best? Það dreg ég algjörlega í efa, þó svo að mér finnist eðlilegt að slíkar upplýsingar séu nýttar til að bæta skólastarf alls staðar. T.d. er hægt að gera það með því að rýna í það sem einkennir þá skóla sem skora hátt á þessum mælikvarða. Hvað er það sem greinir þá frá hinum skólunum? Ef við viljum bæta árangur nemenda á þessum prófum hljótum við að vilja læra af því hvað þessir skólar eru að gera sem virkar.
Flestir eru sammála því að fjölmargir þættir hafa áhrif á það hvernig einstaklingum reiðir af í lífinu og því má ætla að sama eigi við um nám þeirra. Nám er ekki eitthvað eitt ákveðið fyrirbæri heldur margsnúið ferli sem sem fjölmargir þættir hafa áhrif á. Það að bera saman skólana eingöngu út frá niðurstöðum á samræmdum prófum getur því aldrei verið fullkominn mælikvarði á nám.
Engar árásir
Það sem ég saknaði verulega í þessari umfjöllum voru vangaveltur um hvað það var sem gerir það það verkum að þessir skólar standa sig betur á samræmdum prófum. Getur t.d. verið að Ísaksskóli standi sig betur í samræmdum prófum í 4. bekk vegna þess að margir nemendur hefja þar nám við 5 ára aldur á meðan aðrir nemendur byrja við 6 ára aldur? Þeir hafa því væntanlega fengið forskot á aðra. Getur verið að samsetning nemendahópsins sé með öðrum hætti. Getur verið að bekkjarstærðir séu ólíkar? Hvers konar kennsluhættir eru í hávegum hafðir í skólunum? Eru öðruvísi kröfur gerðar í þessum skólum? Að mínu mati eru þetta aðeins brot af þeim spurningum sem nauðsynlegt er að setja fram til að hægt sé að ræða þessa hluti með gagnlegum hætti. Án þess að fara í vörn og án þess að líta á þetta sem árás á aðra skóla sem skora lægra á þessum mælikvarða um árangur nemenda. Svörin við þeim geta hjálpað öðrum skólum sem hafa eflaust allir hug á því að sjá betri árangur nemenda sinna á þessu sviði sem og á öðrum.
Höldum okkur við það að rýna til gagns.