Kennir nemendum að lifa í núinu

Anna Kristín Jörundsdóttir, kennari við Rimaskóla, hafði frumkvæði að og hefur þróað áfangann „Leið þín um lífið“ sem á að stuðla að og efla alhliða þroska nemenda og gera þá hæfari í að takast á við sitt daglega líf á jákvæðan og uppbyggilegan hátt. Áfanginn fékk Hvatningarverðlaun Skóla- og frístundaráðs vorið 2016, auk þess að hafa tvívegis fengið styrk frá Sprotasjóði.
„Það er margt áreiti sem hefur neikvæð áhrif á börn og unglinga, svo sem í tengslum við síma, samfélagsmiðla og samfélagið í heild sinni, og streita, kvíði og depurð eru farin að einkenna svolítið líf margra barna og unglinga. Það kveikti í mér neistann að fara af stað. Mér fannst ég geta látið gott af mér leiða í þágu barna og unglinga og það var eiginlega kveikjan að þessum áfanga,“ segir Anna Kristín Jörundsdóttir, kennari við Rimaskóla, sem segist hafa stundað núvitund og slökun frá því að hún var unglingur. „Ég taldi að það að kenna börnum og unglingum núvitund, slökun og lífsleikni og að leggja áherslu á innri kyrrð og frið hefði uppbyggileg og jákvæð áhrif á ungmennin. Mér fannst ég hafa mikið að gefa börnum og unglingum. Mig langaði að bjóða valáfanga sem hefði það að markmiði að bæta andlega heilsu ungmenna og hafa starfsmenn og stjórnendur verið mjög hvetjandi og stutt við áfangann.“
„Leið þín um lífið“ tengist lífsleikni, núvitund og slökun og á að stuðla að og efla alhliða þroska nemenda og gera þá hæfari í að takast á við sitt daglega líf á jákvæðan og uppbyggilegan hátt. Áfanginn hófst sem valáfangi á unglingastigi í Rimaskóla skólaárið 2015-2016 og segir Anna Kristín að fyrsta árið hafi 12 nemendur valið áfangann. „Mér fannst unglingarnir taka þessu rosalega vel,“ segir Anna Kristín en „Leið þín um lífið“ var síðan skylduáfangi í 8. og 9. bekk í skólanum skólaárið 2016-2017 auk þess sem um var að ræða valáfanga á unglingastigi í Vættaskóla skólaárið 2016-2017. „Leið þín um lífið“ varð síðan skyldufag í 1. - 7. bekk í Rimaskóla skólaárið 2018-2019 og þetta skólaárið er áfanginn kenndur á yngsta stigi og miðstigi.
Markmið áfangans er að efla alhliða þroska, þróa jákvæð viðhorf og gildi, stuðla að jákvæðri sjálfsmynd, efla tilfinningagreind, uppbyggileg samskipti, frumkvæði, sjálfstæði, sköpunargleði og einnig vináttu og kærleik.
„Markmið áfangans er hægt að tengja við menntastefnu Reykjavíkurborgar þar sem margt er sameiginlegt eins og fram kom þegar ég kynnti áfangann fyrir nokkrum skólastjórum í Grafarvogi.“ Um er að ræða:
- Félagsfærni: Jákvæð samskipti og vilji til að láta gott af sér leiða.
- Sjálfsefling: Sterk sjálfsmynd og trú á eigin getu.
- Læsi: Á miðla, umhverfi, hegðun og aðstæður.
- Sköpun: Sköpunarferli sem hefur gildi fyrir barnið og umhverfi þess.
- Heilbrigði: Andleg og félagsleg vellíðan.
Að lifa í núinu
Anna Kristín segist leggja mikið upp úr hlýlegu umhverfi í skólastofunni þannig að nemendur upplifi umhyggju og hlýju. „Ég passa alltaf upp á að það sé snyrtilegt og fallegt umhverfi þannig að börnin finni þessa hlýju.“
Engin borð eru í skólastofunni heldur fjöldi stóla og um 30 dýnur í stafla upp við töfluna. „Það er breitt ofan á nemendur þannig að þeir finni kærleika og umhyggju. Ég sé allt álagið sem er á börnunum. Þau eru oft svo þreytt að sum sofna í tímunum þegar þau liggja á dýnunum.“
Áfanginn er bókalaus og eru kennsluaðferðir fjölbreyttar. „Ég útbý verkefni og krakkarnir koma líka með hugmyndir. Ég leiði slökunina og er með ákveðnar hugleiðslusögur sem eiga að kveikja á jákvæðum tilfinningum hjá krökkunum.“
Anna Kristín er til dæmis með gongbjöllu á kennaraborðinu, sem og fallegan lampa sem hún hefur kveikt á þegar öll önnur ljós í skólastofunni eru slökkt á dimmum vetrardögum en það á að hjálpa nemendum að slaka á.
Anna Kristín les fyrir þau yngstu fallegar, stuttar sögur um meðal annars virðingu, kærleik og gleði. Hún nefnir þá tilfinningu að þykja vænt um sjálfan sig sem fjallað er um í tímunum, sem og að dæma ekki sjálfan sig þótt maður geri mistök. „Ég legg áherslu á að nemendur tali sig upp með jákvæðum skilaboðum og kærleik. Ég er með forláta skál sem ég slæ í og nemendur hlusta á hljóðið þar til það deyr út og þannig geta þeir fylgst með upplifun sinni á líðandi stund. Svo fjalla ég um andardráttinn þegar nemendur eru orðnir aðeins eldri og þá fylgjast þeir með andardrætti sínum og hvað þeir skynja og svo tölum við um þá upplifun. Öndunin er mikilvæg og hún hjálpar manni að slaka á. Ég legg áherslu á blóma-, kerta- og býflugnaöndunina hjá yngstu bekkjunum. Svo leikum við alls konar dýr í þeim tilgangi að örva leikgleði og líkamlegt heilbrigði. Ég legg mikið upp úr gleði og notalegheitum þannig að nemendur fái sem besta upplifun.
Ég kenni nemendum að lifa í núinu en í nútímanum eyðum við of miklum tíma í að hugsa um fortíðina eða framtíðina frekar en að upplifa líðandi stund, skynja líðan okkar og taka ákvarðanir sem eru góðar fyrir okkur.“
Nemendur á miðstigi vinna að flóknari lífsleikniverkefnum í hópum. „Ég legg áherslu á að nemendur komist í flæði, gleymi stund og stað og njóti þess að vinna verkefnin. Nokkur dæmi um verkefni eru bygging spilaturna í hópum og áhorf frægra listaverka við undirspil klassískrar tónlistar, hlustunaræfingar, söguhringir, ratleikir og klípusögur sem hafa meðal annars það að markmiði að auka sjálfsvirðingu, samkennd og þann skilning að allar manneskjur eru jafn mikils virði.“
Nemendur vinna lokaverkefni og segir Anna Kristín að markmiðið með þeim sé að láta gott af sér leiða og sýna náungakærleik. „Krakkarnir hafa komið með hugmyndir að lokaverkefnum og þeir kjósa svo bestu hugmyndina. Þeir vinna síðan í hópum við að skipuleggja hvað þeir ætla að gera og hvernig þeir ætla að útfæra það. Mér finnst við geta tengt nærsamfélagið inn í verkefnið og hafa krakkarnir til dæmis gefið vistmönnum á dvalarheimili aldraðra myndir sem þeir hafa teiknað og þeir hafa líka heimsótt leikskóla og skipulagt leiki fyrir leikskólabörnin. Þeir hafa einnig gefið föt í fatasöfnun Rauða krossins og leikið leikrit fyrir 1. bekk. Þessi verkefni tengja saman ólíka aldurshópa og hefur nærsamfélagið tekið krökkunum vel með jákvæðni, hlýhug og þakklæti.“
Anna Kristín skynjar að kennslan hefur áhrif á nemendur. „Nemendur koma oft og faðma mig og segja frá einhverju sem tengist þeim og maður finnur að það myndast ákveðið traust. Sumir segja að tímarnir hjálpi þeim varðandi streitu, þeir slaki á og nái meiri tökum á líðan sinni almennt. Sumir segjast vera farnir að nota þessar aðferðir heima ef þeir geta ekki sofnað á kvöldin og þeir verða þá rólegri.“
Kannanir
Anna Kristín framkvæmir alltaf könnun á líðan nemenda sinna í upphafi annar. „Ég hef gert það frá byrjun til að vita hvernig ég á að vinna með hópinn. Nemendur fá spurningablað þar sem þeir eru meðal annars spurðir að því hvort þeim finnist gaman í skólanum, hvernig þeim líði í skólanum, hvort þeim þyki auðvelt að rétta upp hönd og spyrja kennarann í kennslustund, hvort þeim finnist auðvelt að segja hvað þeim finnst þegar þeir eru með vinum sínum og hvort þeir viti hvar þeir geta leitað eftir hjálp þegar þeim líður illa. Þarna fæ ég að kynnast krökkunum svolítið og veit þá hvernig ég tengi slökunina og vinn með hana. Við ræðum til dæmis um það í tímum hvert þeir geta leitað þegar þeim líður ekki vel.“
Anna Kristín framkvæmir svo aðra könnun í lok skólaárs þar sem nemendur í 3. til 7. bekk eiga að svara því hvernig þeim hafi fundist áfanginn, hvort þeir hafi haft gagn af núvitundinni og hvernig þeim hafi fundist að vinna lokaverkefnið. Á meðal svara nemenda í 5. og 6. bekk er:
- ,,Ég varð rólegri heima hjá mér.“
- ,,Ég lærði að róa mig og slaka á.“
- ,,Hjálpaði mér að sofna á kvöldin.“
Verðlaun og styrkir
Áfanginn fékk Hvatningarverðlaun Skóla- og frístundaráðs vorið 2016 auk þess að hafa tvívegis fengið styrk frá Sprotasjóði.
„Mér fannst mjög jákvætt að fá hvatningarverðlaunin og þau hvöttu mig til að þróa áfangann áfram. Hvatningarverðlaunin eru frábær fyrir skólann og mig. Það að áfanginn skyldi fá þessi verðlaun fannst mér gefa tækifæri til að sækja um hjá Sprotasjóði og áfanginn fékk styrk þaðan skólaárin 2016-2017 og 2018-2019. Mér finnst það mikilvægt og jákvætt að samfélagið styðji við verkefni sem efla og hlúa að andlegri heilsu ungmenna. Styrkurinn fólst í einni milljón króna fyrra árið og 1,8 milljón króna seinna árið og runnu peningarnir til verkefnisins og nýttust í kennslu og kennslugögn.“
Anna Kristín segir að sér finnist það skipta miklu máli að hún stundi sjálf núvitund og það gefi henni skilning á því ferli sem nemendur hennar fari í gegnum. „Ég legg upp úr því að ég stundi slökun og núvitund og komi fram við nemendur mína af virðingu, hlýju, kurteisi og tillitssemi og reyni að hafa í heiðri þau góðu gildi sem ég kenni þeim.“
Anna Kristín segir að það sem hún sjálf hafi lært af því að kenna þennan áfanga sé meðal annars að ef hún gefi af sér eins og hún gerir þá uppskeri hún eins og hún sáir. „Nemendur koma og faðma mig í lok kennslustunda og krakkarnir upplifa gleðina sem fylgir því að láta gott af sér leiða. Þetta gefur mér gríðarlega mikið eins og gleði og umhyggjusemi. Það er gaman að skynja jákvæðnina frá nærsamfélaginu og það gefur mér líka mikið. Starfsfólk leikskólanna og dvalarheimilsins Eirar hafa spurt hvort krakkarnir komi ekki aftur og einnig hefur starfsfólk leikskólanna nefnt að verkefnið geti aukið virðingu nemenda fyrir leikskólanum og komið í veg fyrir að unnin séu skemmdarverk á útisvæði þeirra. Mér finnst nærsamfélagið öðlast skilning á skólanum og það verður ákveðin tenging þar á milli.“
Verkefnið er í þróun og segir Anna Kristín að það eigi eftir að koma í ljós hvort einhverjar nýjungar séu fram undan. „Ég ætla að halda áfram að kenna áfangann, gera góða hluti og láta gott af mér leiða.“
- Höfundur: Svava Jónsdóttir
- Viðtalið birtist í Skólavörðunni, 2. tbl. 2019.