Kennarinn er hjartsláttur samfélagsins

Fréttir|19. júní 2025

„Að reka skólakerfi er sannarlega verðugt verkefni. Sérstaða okkar í heiminum er auðvitað sú staðreynd að við erum þjóðir sem tölum örtungumál og það hefur leitt af sér ákveðinn bardaga sem má segja að hafi og sé hluti af sjálfstæðisbaráttu okkar," sagði Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, meðal annars í ræðu sem hann hélt á aðalfundi Føroya Lærarafelag fyrir skemmstu.

Barátta íslenska kennarasambandsins fyrir bættum kjörum félagsmanna sinna og aukinni virðingu fyrir kennarastarfinu hefur verið efst á baugi í formannstíð Magnúsar Þórs Jónssonar. Hann telur starfið vera það besta og kennarann vera hjartslátt sérhvers samfélags.

Með þessum orðum er Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, kynntur í nýjasta tölublaði Skúlablaðsins í Færeyjum. Skúlablaðið er málgagn Føroya Lærarafélag (Kennarafélags Færeyja). Føroya Lærarafélag á sér langa sögu en félagið var sett á stofn árið 1898 og hefur alla tíð gegnt veigamiklu hlutverki í skóla- og menntamálum í Færeyjum. Félagsmenn eru tæplega þúsund. 

Magnús Þór sótti aðalfund Føroya Lærarafélag í lok apríl. Magnús var sérstakur gestur fundarins, ásamt menntamálaráðherra Færeyja, Djóna N. Joensen. Í kjölfarið veitti hann Skúlablaðinu viðtal þar sem hann fór meðal annars yfir baráttu KÍ í kjaramálum undanfarin misseri. 

Magnús Þór segir í viðtalinu að nauðsynlegt hafi verið að hækka laun kennara enda hafi sambærilegir faghópar notið mun betri launakjara. „Ekkert er mikilvægara en kennarinn," segir Magnús Þór og því hafi Kennarasambandið farið í herferð til að tryggja kennurum betri kjör. Verkfallsaðgerðir hafi þurft til áður en kjarasamningar náðust. 

Kennarasamband Íslands ber einnig á góma og telur Magnús Þór það bæði kost og styrkleika að sambandið sé samsett af svo breiðum hópi skólastiganna. „Saman stöndum við sterkari og rödd okkar heyrist – og á hana er hlustað," segir hann. 

En fleira kemur til en launin. „Skólinn er grunnurinn í okkar samfélagi. Því eigum við alltaf að spyrja okkur hvernig skóla við viljum í framtíðinni og hver hlutverk og verkefni kennarans eigi að vera. Það er mikil áskorun að útskrifa hæfa nemendur sem geta staðið á eigin fótum í samfélaginu. Við þetta verkefni eigum við, sem samfélag, að takast á við sameiginlega, og skólinn er mikilvægur hluti af þessari vinnu," segir Magnús Þór í viðtalinu. 

Við sem byggjum þessar eyjar erum nefnilega best í svo mörgu. Við skulum lyfta röddum okkar sem víðast um leið og við hlustum sjálf á okkar eigin raddir, sagði Magnús Þór á aðalfundi Føroya Lærarafélag.

Eigum margt sameiginlegt

Víkjum aftur að aðalfundi Føroya Lærarafélag þar sem Magnús Þór ávarpaði færeyskt skólafólk. 

„Þið Færeyingar búið við þá sérstöðu á Norðurlöndum, og í raun heiminum, að ykkar grunnskólar eru fullir af fagmenntuðum kennurum. Á Íslandi hefur hlutfall ófaglærðra við kennslu í grunn- og framhaldsskólum stöðugt aukist, og telur nú um fimmtung af þeim sem starfa þar. Það hefur að sjálfsögðu áhrif á gæði skólastarfs og því ákváðum við hjá KÍ vorið 2024 að sameina alla kennara og stjórnendur undir einu merki þegar kæmi að kjaramálum, þetta var áfangi sem aldrei áður hafði verið reyndur. Við ákváðum að setja í gang ímyndarherferð undir slagorðinu „fjárfestum í kennurum“ og lögðum þar með grunn undir sameiginlegar kjaraviðræður við sveitarfélögin og íslenska ríkið á þessu skólaári," sagði Magnús Þór. 

Samskipti Íslands og Færeyja, tveggja fámennra eyþjóða, bar einnig á góma í ræðu Magnúsar. 

„Við eyjamenn eigum margt sameiginlegt og margir eiginleikar okkar líkjast mjög. Auðvitað kemur mikið af tengingunum til af þeirri ástæðu að löndum okkar var stýrt frá Danmörku og þaðan er líklega hægt að rekja margt í grunni skólakerfisins okkar, enda sóttu forfeður okkar menntun í Danmörku um langt skeið. Enn sækir okkar fólk menntun þangað en vissulega sjaldnar með árunum," sagði Magnús og hélt áfram: „Að reka skólakerfi er sannarlega verðugt verkefni. Sérstaða okkar í heiminum er auðvitað sú staðreynd að við erum þjóðir sem tölum örtungumál og það hefur leitt af sér ákveðinn bardaga sem má segja að hafi og sé hluti af sjálfstæðisbaráttu okkar," sagði Magnús Þór. 

Hann lauk síðan ræðu sinni á þessum hvatningarorðum. 

„Við sem byggjum þessar eyjar erum nefnilega best í svo mörgu. Við skulum lyfta röddum okkar sem víðast um leið og við hlustum sjálf á okkar eigin raddir. Það er nefnilega of sjaldan sem við horfum til þess hvað við gerum vel. Við erum nefnilega frábær.“