#kennaravikan – tökum virkan þátt!

Styrkjum stöðu kennara og gerum starfið meira aðlaðandi! Þetta eru skilaboð Evrópsku kennarasamtakanna (ETUCE) sem standa fyrir kennaraviku dagana 2. til 6. október.
Styrkjum stöðu kennara og gerum starfið meira aðlaðandi!
Þetta eru skilaboð Evrópsku kennarasamtakanna (ETUCE) sem standa fyrir kennaraviku dagana 2. til 6. október. Kennarasambandið á aðild að ETUCE og mun taka virkan þátt í Kennaravikunni.
Tilefni Kennaravikunnar af hálfu ETUCE er að leggja fram tíu lykilkröfur er varða gildi kennarastarfsins, stefnumótun í menntamálum, gæðamenntun og leiðir til að gera kennarastarfið meira aðlaðandi.
Allt byggir þetta á samþykkt sem aðildarfélög ETUCE hafa sent frá sér en þar kemur fram sú sameiginlega skoðun að menntun sé almannaheill og að vel fjármögnuð, vel mönnuð menntakerfi skipti sköpum fyrir framtíðarfarsæld Evrópuþjóða. Þess vegna verði að halda áfram baráttunni til að efla skipulagslega og sjálfbæra opinbera fjárfestingu í menntakerfum og styðja við réttindi, fagleg heilindi, sjálfstæði og akademískt frelsi allra kennara og fræðimanna, svo að þeir geti veitt vandaða menntun fyrir alla þar sem jafnræðis er gætt.
ETUCE hefur sem fyrr segir sett fram tíu lykilpunkta sem kennarastéttin og samfélagið allt eru hvött til að ræða. Þess má geta að þessir tíu punktar fengu þinglega meðferð á 8. Þingi KÍ á síðasta ári.
- Tryggja faglegt sjálfstæði og akademískt frelsi skólafólks.
- Hafa samvinnu og sameiningu að leiðarljósi við störf innan menntastofnana og menntakerfa.
- Bjóða mannsæmandi laun og koma í veg fyrir launamisrétti.
- Tryggja góð og traust vinnuskilyrði og stuðla að velferð kennara.
- Stýra vinnuálagi og vinnutímum.
- Skapa vinnuumhverfi sem laðar að nýliða og stuðlar að því að starfsfólk haldist í starfi.
- Tryggja rétt til vandaðrar kennaramenntunar og stöðugrar starfsþróunar.
- Fást við áskoranir á sviði jafnréttismála innan kennarastéttarinnar.
- Stuðla að virkri og faglegri umræðu.
- Valdefla kennarastéttina.
Hvað gerum við í #kennaravikunni
ETUCE biðlar til að kennara og skólafólks að koma á framfæri skoðunum og hugmyndum er kvikna við lestur tíu punktanna. Hægt er velja einn punkt eða fleiri. Kennarasambandið ætlar að nota myllumerkið #kennaravikan til að aðgreina efnið á samfélagsmiðlum. Félagsfólk KÍ er hvatt til að gera slíkt hið sama og láta raddir kennara heyrast.
Kennarasambandið mun stuðla að umræðu um kennarastarfið og þau atriði sem er að finna í stefnuskjali ETUCE.
Lesa meira um ETUCE, lykilþættina, aðdraganda og hugmyndafræði.