#kennarastofan
Fréttir|30. júní 2021

Hlaðvarp um nám og kennslu í breyttum heimi menntunar.
Kennarastofan er hlaðvarp um nám og kennslu í breyttum heimi menntunar. Það er Þorsteinn Sürmeli, kennari við Keili á Ásbrú, sem ræðir við kennara um reynslu þeirra af kennslu á tímum takmarkana í skólastarfi. Hann leitast við að ná fram upplýsingum um hvernig kennarar og nemendur aðlöguðu námið að aðstæðum á tímum heimsfaraldurs. Sérstök áhersla er lögð á hvernig þessi reynsla mun breyta kennsluháttum til framtíðar.
Þættirnir eru orðnir átta talsins og eru þeir allir aðgengilegir á Kennarastofan.is. Á síðunni hvetur Þorsteinn kennara til að taka þátt í samtali um nám og kennslu með því að tísta með myllumerkinu #kennarastofan á Twitter.