Kennarastarfið og kennaramenntun í Skólanum okkar í kvöld

Fjallað verður um kennaramenntun, stöðu hennar og styrk í næsta þætti Skólans okkar sem verður frumsýndur á Hringbraut klukkan 20.30 í kvöld.
Fjallað verður um kennaramenntun, stöðu hennar og styrk í næsta þætti Skólans okkar sem verður frumsýndur á Hringbraut klukkan 20.30 í kvöld. Rætt verður um almennt um kennaramenntun og kennarastarfið og um þá staðreynd að alltof fáir velja að leggja kennslu fyrir sig.
Kennaranemar verða spurðir út í námið og nemendur í leik- og grunnskólum spurðir hvaða kosti góður kennari þurfi að hafa til að bera. Farið verður yfir með stjórnendum leikskóla hversu vel undirbúnir nýir kennarar eru fyrir starfið sem bíður þeirra.
Gestir þáttarins eru þau Bragi Guðmundsson hjá Háskólanum á Akureyri og Jóhanna Einarsdóttir hjá Háskóla Íslands. Umsjónarmenn Skólans okkar eru þau Aðalbjörn Sigurðsson og Margrét Marteinsdóttir.
Ekki missa af spennandi umræðu í Skólanum okkar.