Kennaraskrá lokað
Fréttir|19. ágúst 2015
Samband íslenskra sveitarfélaga sendi á dögunum frá sér eftirfarandi tilkynningu:
Frá árinu 1996 hefur Samband íslenskra sveitarfélaga haldið úti á vefnum kennaraskrá á slóðinni http://kennaraskra.samband.is. Engar upplýsingar hafa verið færðar inní kennaraskrá frá árinu 2000 og hefur notkun hennar minnkað jafnt og þétt.
Síðastliðin ár hefur verið rætt um það að loka fyrir aðgang að kennaraskránni og er nú komið að þeim tímamótum. Um mánaðamótin ágúst/september verður kennaraskránni lokað og þurfa sveitarfélög og launafulltrúar að sækja upplýsingar um menntun, námskeið, kennsluferil og leyfisbréf beint til þeirra einstaklinga sem sækja um starf í sveitarfélaginu.