Kennaraskorturinn og ímyndarstyrking kennarastéttarinnar

Mikilvægur liður í því að sporna við kennaraskorti þeim er blasir við er að efla og styrkja ímynd kennarastéttarinnar. ETUCE, Evrópusamtök stéttarfélaga kennara leggja fram tíu tillögur um hvernig fara megi að því að bæta stöðu og aðdráttarafl stéttarinnar. Fjallað er um stefnuskjalið í nýjasta tölublaði Skólavörðunnar.
Mikill kennaraskortur blasir við - sem er því miður bæði gömul saga og ný. Nýliðun kennara á öllum skólastigum er ein stærsta áskorun sem samband kennara stendur frammi fyrir, eins og Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ, tiltók í ræðu sinni við slit 8. Þings KÍ í byrjun nóvembermánaðar.
Sömu sögu er að segja á hinum Norðurlöndunum og víða í Evrópu. Evrópusamtök stéttarfélaga kennara, ETUCE, segja kennaraskort áberandi í flestum menntakerfum. Ástandið sé slíkt að það ógni sjálfbærri þróun menntakerfa.
Mikilvægur liður í því að sporna við þróuninni felst í eflingu og ímyndarstyrkingu kennarastéttarinnar. Samtökin leggja fram tíu tillögur um hvernig fara megi að því að bæta stöðu og aðdráttarafl stéttarinnar í sérstöku stefnuskjali.
Í stefnuskjalinu, sem er afrakstur sérstakrar ráðstefnu ETUCE og EI, alþjóðasamtaka kennara, frá því í sumar, er skorað á aðildarfélög ETUCE og meðlimi þeirra að beita sér fyrir lykilatriðunum tíu í samskiptum við yfirvöld og aðra sem fara með menntamál.
Þar segir að efling kennarastéttarinnar sé forgangsverkefni ETUCE, enda skipti „vel mönnuð menntakerfi sköpum fyrir framtíðarfarsæld Evrópuþjóða“.
„Nú verðum við að beita okkur fyrir því að byggja upp stuðning til að efla stöðu starfsfólks í mennta- og rannsóknargeiranum og tryggja að kennsla sé mikils metin sem starfsgrein og launuð með viðeigandi hætti.“
Tillaga um stefnu KÍ varðandi erlent samstarf 2022 til 2026, sem innihélt meðal annars stefnuskjal ETUCE, var samþykkt á nýafstöðnu 8. Þingi KÍ. Kennarasambandið leggur sérstaka áherslu á að koma Félagi nýliða í kennslu á laggirnar til að sporna við kennaraskorti og stuðla að styrkingu stéttarinnar. Stuðningur í starfi fyrstu árin skiptir sköpum.
Tíu lykilleiðir til að bæta og styrkja stöðu kennarastéttarinnar og auka aðdráttarafl kennarastarfsins.*
*Atriðin eru ekki í neinni sérstakri röð.
- Tryggja faglegt sjálfstæði og akademískt frelsi skólafólks.
- Hafa samvinnu og sameiningu að leiðarljósi við störf innan menntastofnana og ‐kerfa.
- Bjóða mannsæmandi laun og koma í veg fyrir launamisrétti.
- Tryggja góð og traust vinnuskilyrði og stuðla að velferð kennara.
- Stýra vinnuálagi og vinnutímum.
- Skapa vinnuumhverfi sem laðar að nýliða og stuðlar að því að starfsfólk haldist í starfi.
- Tryggja rétt til vandaðrar kennaramenntunar án aðgreiningar og stöðugrar þróunar í starfi.
- Fást við áskoranir á sviði jafnréttismála innan kennarastéttarinnar.
- Stuðla að virkri og faglegri umræðu.
- Valdefla kennarastéttina.
Mikilvægar athugasemdir
- Stefnuskjalið á við um kennara, skólastjórnendur, starfsnema og aðra sem starfa innan menntakerfisins á öllum skólastigum; leik-, grunn-, framhalds- og háskólastigi.
- Undir hugtakið „skóli“ falla hvers konar menntastofnanir á öllum skólastigum, að meðtöldum almennum og einkareknum skólum, starfsmenntaskólum og háskólum.
- Hugtakið „skólastjórnandi“ er notað í víðtækri Undir það falla skólastjórar og aðrir sem gegna forystuhlutverki innan menntastofnana, eins og aðstoðarskólastjórar, deildarstjórar og fagstjórar.
Hægt er að kynna sér Stefnuskjal ETUCE um eflingu og ímyndarstyrkingu kennarastéttarinnar í heild hér.