Kennarasamtökin kveðja gamla Kennarahúsið

Fréttir|14. júní 2023
Afhendingin innsigluð með myndatöku við húsið

Þau tímamót urðu í dag, 14. júní, að Kennarahúsinu við Laufásveg var skilað til ríkisins. Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, afhenti Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra lykla að húsinu.

Starfsfólk Kennarasambandsins, kjörnir fulltrúar, fyrrum forystufólk og fulltrúar stjórnvalda komu saman í Kennarahúsinu við Laufásveg í dag. Tilefnið var að nú hefur Kennarahúsinu verið formlega skilað til ríkisins. 

Lauk þar með merkum kafla í sögu kennaramenntunar og samtaka kennara. Kennarasambandið hafði aðsetur í húsinu í nærfellt þrjátíu ár, en eins og flestir vita, flutti KÍ starfsemina í nútímalegt skrifstofuhúsnæði við Borgartún árið 2020.

Valgeir Gestsson, fyrrum skrifstofustjóri KÍ, ávarpaði samkomuna og sagði frá sögu hússins. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók við lyklum úr hendi Magnúsar Þórs Jónssonar. Katrín þakkaði Kennarasambandinu fyrir hversu vel hefur verið hugsað um húsið. Hún sagði jafnframt að húsinu yrði fundið hlutverk en ekkert hefur verið ákveðið í þeim efnum. 

Valgeir Gestsson stiklaði á stóru um merka sögu hússins

Kennarahúsið er sannarlega fallegt að ytra sem innra byrði og árin sem Kennarasambandið dvaldi í húsinu voru farsæl. Vinnuaðstaða þótti hins vegar ekki lengur viðunandi og húsið stenst ekki kröfur um aðgengi fatlaðra.

En af hverju er húsinu skilað?

Íslenska ríkið gaf Kennarasambandinu húsið árið 1989. Tilefnið var að þá voru 100 ár liðin frá stofnun fyrsta kennarafélagsins. Hið íslenska kennarafélag afþakkaði gjöf ráðherra en Kennarasamband Íslands hið eldra þáði húsið. 

Húsið var gefið með þeim kvöðum að KÍ hafði yfirráð yfir húsinu en gat ekki selt það eða leigt út. Því hefur húsinu verðu skilað til ríkisins – og KÍ fær til baka fjármuni sem sambandið lagði í endurbætur í gegnum árin.

Ákvörðun um að skila húsinu var tekin á 8. Þingi KÍ, sem fór fram í nóvember á síðasta ári. Svona lýsti Svavar Gestsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, gjöfinni í Morgunblaðinu 1992:

Kennarahúsið verður ekki einasta félagsheimili kennara heldur einnig glæsileg menningarheimild sem hvergi er betur geymd en einmitt í höndum kennarasamtakanna

 

Kennarahúsið fyrir og eftir endurbætur. 


Húsið var illa farið að utan sem innan þegar Kennarasamtökin tóku við því. Ráðist var í miklar endurbætur á húsinu árið 1989; skipt var um klæðningu að utan, gluggar voru lagfærðir auk breytinga innandyra. Þremur árum síðar, árið 1991, hófst starfsemi kennarasamtakanna í húsinu.
Formleg opnun á skrifstofu og félagsaðstöðu KÍ í húsinu var fjölsótt og komu um 600 manns að skoða endurbætt húsið, að sögn Eiríks Jónssonar, þáverandi varaformanns Kennarasambandsins, í viðtali við Morgunblaðið árið 1992.

Löng og merkileg saga

Kennarahúsið var reist á 600 ferfaðma lóð sunnan í Skólavörðuhæð og austan Laufásvegar árið 1908. Einar Erlendsson, húsameistari ríkisins, teiknaði húsið. Þótti kostur að skólahúsið væri í góðri fjarlægð frá miðbænum. „Kennaraskólinn er vegleg bygging sem reist var af framsýni á góðum stað langt fyrir utan þá byggð sem þá var í Reykjavík. Svipur hússins einkennis af notkun þess. Gluggsetning er sérstök enda skólastofurnar bjartar og þar er hátt til lofts,“ skrifaði Nanna Hermannsson borgarminjavörður í bréfi til Húsafriðunarnefndar árið 1983. Það ár var húsið friðlýst svonefndri B-friðun.

Kennaraskóli Íslands tók formlega til starfa í húsinu haustið 1908. Magnús Helgason var skipaður skólastjóri hins nýstofnaða skóla en kennaramenntun hafði fram að því aðeins verið í boði í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði. Kennt var frá fyrsta vetrardegi til 31. mars.

Þægindi voru af skornum skammti fyrstu árin, vatnsveita kom þó í bæinn árið 1909 og þá þurfti ekki lengur að bera vatn í húsið. Vatnssalerni leysti útikamra af árið 1915 og átta árum seinna var rafmagn dregið í húsið.

Kennaraskólinn er vegleg bygging sem reist var af framsýni á góðum stað langt fyrir utan þá byggð sem þá var í Reykjavík. Svipur hússins einkennis af notkun þess. Gluggsetning er sérstök enda skólastofurnar bjartar og þar er hátt til lofts

Skólastjórarnir bjuggu í húsinu

Magnús Helgason stýrði skólanum til ársins 1929. Við starfi skólastjóra tók Freysteinn Gunnarsson. Í þá daga var til siðs að skólastjórar höfðu íbúð í húsinu. Freysteinn bjó í húsinu í 40 ár ásamt konu sinni Þorbjörgu Sigmundsdóttur. Þau komu tveimur börnum á legg. Íbúð skólastjóra var á annarri hæð hússins.

Árið sem Freysteinn tók við, 1930, er ráðist í töluverðar framkvæmdir í húsinu. Dúkur eru lagður á gólf og stiga og innveggir klæddir með krossvið. Gaman er að geta þess að dúkur þessi er enn á báðum stigum hússins og er afar heillegur.

Starfsemi Kennaraskólans gekk sinn gang en árið 1937 var námið lengt úr þremur árum í fjögur og árið 1947 var gerð krafa um að nemendur hefðu lokið landsprófi.


Unnið að viðgerðum á gamla Kennarahúsinu

Nemendum við skólann fjölgaði eftir því sem árin liðu og árið 1950 þykja húsakynnin heldur betur þrengja að starfseminni. Þá segir Freysteinn skólastjóri, í viðtali við Alþýðublaðið, að nemendur séu um 100 talsins, kennarastofan rúmar ekki lengur alla kennarana. Í greininni segir jafnframt að þó skólahúsið við Laufásveg hafi verið reisulegt í upphafi þá sé það orðið gamalt, gisið og kalt.

Árið 1962 verða þau tímamót að Kennaraskólinn flytur loks í nýtt húsnæði við Stakkahlíð. Það hús þekkja allir kennarar enda hefur Menntavísindasvið verið þar æ síðan – eða þar til nú. Menntavísindasvið flytur sig um set í haust og hefur starfsemi á gömlu Hótel Sögu.

Þótt Kennaraskólinn flytti formlega 1962 þá urðu handvinnudeildir skólans eftir á Laufásvegi og var starfræktar þar næstu áratugina. Freysteinn skólastjóri og frú urðu líka eftir í húsinu og bjuggu þar til 1972.

Verðugt hlutverk

Til þess að gera langa sögu stutta þá störfuðu kennarasamtökin í húsinu frá 1991 til 2020. Kennarasamband Íslands hefur nú aðsetur við Borgartún 30.

Kennarahúsið við Laufásveg á sérstakan stað í hjörtum fjölmargra félagsmanna KÍ. Starfsemi í húsinu var farsæl, þegar hún hófst voru félagsmenn um 3.500 en þegar yfir lauk árið 2020 voru þeir nærfellt 11 þúsund.

Kennarasamband Íslands kveður nú Kennarahúsið við Laufásveg. Það er von KÍ að húsinu verði fundið verðugt hlutverk í framtíðinni.