Kennarasamtök verða að styðja réttindabaráttu hinsegin fólks

Framkvæmdastjóri Education International segir kennara standa í framlínunni þegar kemur að því að verja réttindi og tilvist hinsegin fólks. „Kennarar og kennarasamtök verða að standa með samfélagi hinseginfólks og sýna stuðning í verki," segir Haldis Holst, aðstoðarframkvæmdastjóri Education International.
Kennarasamtök allra landa verða að vera sýnileg í baráttunni fyrir réttindum og tilvist hinsegin fólks. Taka verður á því bakslagi sem víða hefur orðið vart er kemur að réttindum þeirra sem tilheyra LGBTI samfélögum.
Svo hljóðar niðurstaða vef-ráðstefnu sem Education International efndi til í byrjun mánaðar. Fulltrúar kennarasambanda hvaðanæva að tóku þátt og báru saman bækur sínar.
„Menntakerfi um allan heim eru undir vaxandi þrýstingi frá öfgahægri hugmyndafræði sem leitast við að grafa undan réttindum hinsegin fólks (LGBTI+), bæla niður inngildandi námskrár og rannsóknir, og veikja lýðræðisleg gildi.“
Þetta skrifaði David Edwards, framkvæmdastjóri Education International (EI), í bréfi sem var sent til kennarasamtaka um allan heim í aðdraganda ráðstefnunnar.
Edwards sagði kennara standa í framlínunni þegar kæmi að því að verja nemendur og samstarfsfólk fyrir sífellt fjandsamlegra andrúmslofti í samfélögum þjóða.
Haldis Holst, fulltrúi EI sem er mörgum íslenskum kennurum kunn, ávarpaði ráðstefnuna. Hún sagði afar mikilvægt að allir taki saman höndum nú og berjist gegn bakslaginu sem víða hefur orðið vart er kemur að hinsegin fólki, ekki síst í Bandaríkjunum en einnig í löndum Evrópu. „Kennarar og kennarasamtök verða að standa með samfélagi hinseginfólks og sýna stuðning í verki," sagði Holst meðal annars.
Kathrine Blyverket, fulltrúi Norska kennarasambandsins (Utdanningsforbundet) tók undir með Holst og sagði bakslag í málefnum hinsegin fólks vissulega til staðar í Noregi. „Fáar, en háværar, raddir hafa tekið yfir sviðið ásamt pólitískum öflum og talað gegn réttindum hinsegin fólks. Þetta hefur haft í för með sér að skólastjórar veigra sér nú við að draga regnbogafána eða transfána að húni. Norska kennarasambandið breytti merki sínu í tengslum við World Pride hátíðina í Washington en uppskar fjölda leiðindapósta – þar sem því var meðal annars haldið fram að sambandið væri „á kynferðislegum nótum".

Menntakerfi um allan heim eru undir vaxandi þrýstingi frá öfgahægri hugmyndafræði sem leitast við að grafa undan réttindum hinseginfólks
Stuttar frásagnir frá þremur löndum
Við tókum saman frásagnir þriggja leiðtoga kennarasambanda á fundinum sem varpa ljósi á stöðuna sem er uppi.
Bretland
Phil Siddle, varaformaður Ensku kennarasamtakanna, NASUWT, fjallaði um bakslag sem hefur orðið í kjölfar nýlegrar lagasetningar Breta um hvernig skilgreina skuli konu. „Við horfum upp á erfitt bakslag í málefnum transfólks, reglur eru íþyngjandi og til dæmis má nú þvinga konur, sem þykja karlmannlegar, til að sanna kynferði sitt. Hatursfull orðræða sé meira áberandi en áður.
Argentína
Ayelén Maitén Díaz, stjórnarkona í félagi háskólakennara í Argentínu, segir að nú sé búið að normalísera hatursorðræðu og hatursaðgerðir gegn hinsegin fólki. „Bakslagið er afar alvarlegt og tengist auk þess aðgerðum í Bandaríkjunum sem hafa teygt anga sína til Argentínu. Nú þurfa grasrótarsamtök, háskólar og verkalýðsfélög, hinsegin fólk, femínistar og öll sem berjast fyrir jafnrétti, mannréttindum og réttlæti að taka höndum saman, samræma aðgerðir og fara í herferð, mótmæla og vera sýnileg í baráttunni fyrir réttlæti og virðingu í garð hinsegin samfélagsins. Það verður ekki þaggað niður í okkur."
Japan
Atsushi Takehana, formaður Kyoto-deildar Japanska kennarasambandsins, JTU, segir 90 prósent hinsegin nemenda hafa upplifað áreitni af ýmsum toga. Alls hafi 64 prósent upplifað áreitni frá kennurum og 95 prósent treysta sér ekki til að ræða sín mál eða um kynferði sitt við umsjónarkennara. Þá hafi fjórir af hverjum tíu grunnskólanemum upplifað einelti og áreiti. Þá kom fram í máli Takehana að hinsegin málefni sé hvergi nefnd í opinberri aðalnámskrá landsins.
Sigrún Birna Björnsdóttir, sérfræðingur jafnréttis- og vinnuumhverfismálum, sat fundinn fyrir hönd KÍ. Fréttin byggir á samantekt hennar.