Kennarasambandið skrifar undir kjarasamninga
Innanhússtillaga ríkissáttasemjara í kjaradeilu KÍ við ríki og sveit var samþykkt í gærkvöld. Það þýðir að nýir kjarasamningar eru í höfn. Næsta skref er að kynna samningana fyrir félagsfólki KÍ.
Nýir kjarasamningar KÍ við ríkið annars vegar og sveitarfélögin annars vegar voru undirritaðir í Karphúsinu i kvöld. Um var að ræða innanhússtillögu ríkissáttasemjara sem allir samningsaðilar samþykktu.
Fyrir hönd KÍ skrifaði Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, undir samningana ásamt formönnum aðildarfélaga KÍ.
Yfirstandandi verkföllum i framhaldsskólum, leikskóla og tónlistarskóla hefur verið aflýst, sem og boðum verkföllum.
Nýir kjarasamningar hafa gildistíma til 31. mars 2028.
Samningarnar verða kynntir félagsfólki KÍ á næstu dögum og síðan verður boðað til atkvæðagreiðslu um samninginn. Nánar verður sagt frá þessu öllu þegar upplýsingar liggja fyrir.