Kennarasambandið efnir til golfmóts í Gufudal

Fréttir|10. júlí 2026
Mick De Paola Lupjor3ofeg Unsplash

Opnað verður fyrir skráningu á þetta fyrsta golfmót KÍ klukkan tólf á hádegi á morgun, þriðjudaginn 14. júlí.

Fyrsta golfmót KÍ verður haldið mánudaginn 20. júlí næstkomandi á golfvelli Golfklúbbs Hveragerðis í Gufudal.

Mótið verður að finna á vef golf.is undir golf.is undir mótaskrá golfklúbba en skráning verður líka opnuð á þessum hlekk hér sem virkjast kl. 12:00 þriðjudaginn 14. júlí

Mótið er ætlað félagsmönnum KÍ. Hámarksforgjöf þeirra sem skrá sig til leiks má ekki vera hærri en 40,0 í virkri forgjöf. Skráð er í rástíma þegar skráð er inn í mótið sem hefst kl. 8:00.

Spilaðar eru 18 holur (2 x 9) og veitt verða verðlaun fyrir punktahæstu karla og konur auk nándarverðlauna á níundu braut. Allir keppendur verða leystir út með teiggjöf áður en lagt er af stað.

Mótið er sett upp í kjölfar margra áskorana og ef vel gengur er stefnan sett á að það verði reglulegur gleðigjafi inn í félagsstarf KÍ.

Staður og stund

  • Mánudagurinn 20. júlí
  • Golfvöllur Hvergerðinga í Gufudal
  • Skráningarhlekkur opnast klukkan 12:00 þriðjudaginn 14. júlí. 

 

Golfvöllurinn í Gufudal

Gufudalur