Kennarasambandið á Fundi fólksins
Kennarasambandið tekur virkan þátt í Fundi fólksins sem haldinn verður í Norræna húsinu dagana 2. – 3. september.
Fundur fólksins er lífleg tveggja daga hátíð um samfélagsmál í Norræna húsinu dagana 2. – 3. september 2016. Slegið verður upp tjaldbúðum þar sem hin ýmsu félagasamtök verða með starfsemi alla hátíðina. Í bland við líflegar umræður verða tónlistaratriði, hægt verður að kaupa bæði mat og drykk á svæðinu. Boðið er til samtals milli almennings, stjórnmálamanna og frjálsra félagasamtaka, þar sem opin skoðanaskipti eru leiðarstefið. Hátíðin er vettvangur fyrir samfélagsumræðu og er öllum opin. Á dagskránni verða fundir, málþing, fyrirlestrar, tónlistaratriði og líflegar uppákomur frá hádegi til kvölds, bæði innan og utandyra. Rætt verður um pólitíska hugmyndafræði á annan hátt en færi gefst í pólitísku þrasi hversdagsins.
VIÐBURÐIR Á VEGUM KENNARASAMBANDS ÍSLANDS
Skóli fyrir alla – Velferð og aðstæður barna og ungmenna. Fátækt og erlendur uppruni.
Hvar: Aðalsalur Norræna hússins.
Hvenær: Föstudaginn 2. september 2016, kl. 9:00 – 10:30.
Tegund viðburðar: Umræður.
Þátttakendur:
- Dagbjört Ásbjörnsdóttir, verkefnastjóri á Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar.
- Hjördís Eva Þórðardóttir, réttindafræðslufulltrúi hjá Unichef Íslandi.
- Kristrún Sigurjónsdóttir, deildarstjóri móttökudeildar, Lækjarskóla, Hafnarfirði.
- Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnisstjóri hjá Barnaheillum.
- Nichole Leigh Mosty, leikskólastjóri í leikskólanum Ösp, Reykjavík.
- Nína Helgadóttir, verkefnastjóri hjá Rauða krossinum.
- Steinunn Björk Ragnarsdóttir, framhaldsskólakennari í Tækniskólanum.
Fundarstjóri: Þórður Á. Hjaltested, formaður Kennarasambands Íslands.
Lýsing: Í lögum og námskrám leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla er lögð áhersla á skóla fyrir alla og velferð barna og ungmenna. Einn lykilþáttur til þess að minnka félagslegt misrétti í samfélaginu er góður aðgangur allra að menntun.
Fjöldi barna sem býr við skort á mikilvægum sviðum hefur rúmlega tvöfaldast á tímabilinu frá 2009 til 2014 og verulegur hópur fólks stendur mjög höllum fæti, félagslega og fjárhagslega. Í þessum hópi eru áberandi einstæðir og tekjulágir foreldrar, langtíma atvinnulausir, innflytjendur og börn innflytjenda.
Hver er reynsla þeirra sem sinna börnum og ungmennum sem standa höllum fæti í samfélaginu? Hvað þarf að gera og hvernig - til að tryggja öllum börnum og ungmennum menntun óháð efnahagslegri/félagslegri stöðu og uppruna? Hver er vandinn? Hvaða lausnir? Hverra er ábyrgðin?
Skýrslur og annað sem tengist efninu:
- Skýrsla Evrópuhóps Barnaheilla – Save the Children um fátækt barna sem kom út árið 2014
- Hvar þrengir að? Könnun á hvaða hópar í samfélaginu eigi helst undir högg að sækja, Rauði krossinn 2014
- Greinargerð um mat á stöðu innleiðingar menntastefnu í lögum og aðalnámskrám leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, KÍ 2015
- Réttindi barna á Íslandi: Börn sem líða efnislegan skort, Unichef 2016
- Skýrsla félags- og húsnæðismálaráðherra um stöðu og þróun í málefnum innflytjenda árið 2016
Hvernig eflum við lýðræðislega menntun – menntun í lýðræði?
Hvar: Umræðutjald 1 við Norræna húsið.
Hvenær: Laugardaginn 3. september, kl. 11:00 til 12:30.
Tegund viðburðar: Umræður.
Þátttakendur:
- Brynhildur Sigurðardóttir, skólastjóri Garðaskóla, Garðabæ.
- Fjóla Þorvaldsdóttir, leikskólasérkennari, leikskólanum Álfaheiði, Kópavogi.
- Jenný Ingudóttir, varaformaður Landssamtaka foreldra – Heimili og skóli.
- Jóna Guðbjörg Torfadóttir, framhaldsskólakennari við Menntaskólann við Sund.
- Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna.
- Ólafur Páll Jónsson, prófessor í heimspeki við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
- Vilhjálmur Árnason, prófessor í heimspeki við Hugvísindadeild Háskóla Íslands.
Fundarstjóri: Aðalheiður Steingrímsdóttir, varaformaður Kennarasambands Íslands.
Lýsing: Í lögum og námskrám leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla er áhersla lögð á að börn og ungmenni menntist í lýðræði og að menntun og skólastarf einkennist af lýðræðislegum starfsháttum og virðingu fyrir manngildi hvers og eins. Litið er svo á að skólinn hafi mikilvægu hlutverki að gegna að búa börn og ungmenni undir virka þátttöku í lýðræðislegu samfélagi.
En hvað er lýðræðisleg menntun – menntun í lýðræði? Hvaða skilning á lýðræði eigum við að leggja til grundvallar við útfærslu á þessu hlutverki skólans? Hvað þarf skólinn að gera og hvernig – til að móta lýðræðislega vitund og efla færni nemenda í að takast á við ágreining og margbreytileika tilverunnar? Hvað getur skólinn gert og hvernig – til að vinna gegn fordómum og hatursumræðu í samfélaginu?
--------------------
Nánari upplýsingar veita Þórður Á. Hjaltested, formaður KÍ, og Aðalheiður Steingrímsdóttir, varaformaður KÍ, í síma 595- 1111 eða í gegnum netföngin thordur@ki.is og adalheidur@ki.is. Sjá einnig umfjöllun á www.ki.is og á viðburðasíðu KÍ á Facebook.
Fundur fólksins á vefnum #Fundurfolksins