Kennarasamband Íslands setur sér umhverfisstefnu

Fréttir|16. september 2020

Það er við hæfi á Degi íslenskrar náttúru að kynna umhverfisstefnuna en Kennarasambandið vill gegna forystuhlutverki í fræðslu um umhverfismál til aðildarfélaga sinna.

Kennarasamband Íslands hefur sett sér umhverfisstefnu og vill vera til fyrirmyndar í umhverfismálum. Það er við hæfi á Degi íslenskrar náttúru að kynna slíkt verkefni en Kennarasambandið mun gegna forystuhlutverki í fræðslu um umhverfismál til aðildarfélaga sinna.

Byggt verður á Grænum skrefum þar sem finna má árangursríka leið til að vinna markvisst að umhverfismálum í starfsemi Kennarasambandsins.
Markmið Kennarasambandsins í umhverfismálum er að:

• Fylgja Grænum skrefum.
• Velja umhverfismerktar vörur og þjónustu í innkaupum umfram aðrar.
• Lágmarka neikvæð umhverfisáhrif vegna notkunar samgöngutækja á vegum KÍ.
• Lágmarka notkun á hráefnum og orku.
• Færa grænt bókhald.
• Flokka og skila endurnýtanlegum úrgangi.
• Fræða starfsfólk um umhverfismál og auka innra umhverfisstarf.
• Hvetja starfsfólk til að tileinka sér vistvænan lífsstíl.