Kennararáð kom saman til fundar í fyrsta sinn

Nýskipað Kennararáð hefur víðtæku hlutverki að gegna, svo sem að veita menntamálaráðherra ráðgjöf og leiðbeiningar um þróun hæfniramma fyrir kennara og skólastjórnendur. KÍ væntir mikils af starfi ráðsins.
Nýskipað Kennararáð kom saman á sínum fyrsta fundi í morgun. Kennararáð er skipað ellefu fulltrúum, þar af eru þrír frá Kennarasambandi Íslands – Anna María Gunnarsdóttir, varaformaður KÍ, Haraldur Freyr Gíslason, formaður FL, og Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, formaður FG. Varamenn af hálfu KÍ eru Sigrún Grendal Jóhannesdóttir, formaður FT, Guðjón Hreinn Hauksson, formaður FF, og Þorsteinn Sæberg, formaður SÍ.
Skipað er í ráðið samkvæmt ákvæði laga 95/2019 um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla sem tóku gildi 1. janúar síðastliðinn.
Samkvæmt laganna bókstaf er hinu nýja Kennararáði falið víðtækt hlutverk; svo sem að veita ráðherra ráðgjöf og leiðbeiningar um þróun hæfniramma fyrir almenna og sérhæfða hæfni kennara og skólastjórnenda. Þá er Kennararáði ætla að veita ráðgjöf um starfsþróun kennara og skólastjórnenda, fylgjast með alþjóðlegri þróun og áherslum í menntavísindum og auk þess að veita leiðsögn um mat á sérhæfingu kennara við ráðningu sem og að efla vitund almennings um mikilvægi kennarastarfsins.
Kennarasamband Íslands væntir mikils af starfi kennararáðsins og bindur vonir við að það verði öflugur vettvangur til að standa vörð um fagmennsku og gæði í skólasamfélaginu. Til þess að svo geti verið þurfa þau vel skilgreind verkefni, umboð og stuðning.
Kennararáð kemur næst saman til fundar 18. ágúst.
Kennararáð skipa eftirtalin
- Birgir Urbancic Ásgeirsson formaður, skipaður án tilnefningar
Varamaður Björg Pétursdóttir - Sonja Dögg Pálsdóttir, varaformaður, skipuð án tilnefningar
Varamaður Sigríður Lára Ásbergsdóttir - Guðmundur Engilbertsson, tilnefndur af Háskólanum á Akureyri
Varamaður Kristín Dýrfjörð - Guðbjörg Aðalbergsdóttir, tilnefnd af Skólameistarafélagi Íslands
Varamaður Kristinn Þorsteinsson - Karl Frímannsson, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Varamaður Svandís Ingimundardóttir - Ingimar Ólafsson Waage, tilnefndur af Listaháskóla Íslands
Varamaður Gunndís Ýr Finnbogadóttir - Guðný Ásta Snorradóttir, tilnefnd af Menntamálastofnun
Varamaður Ragnar F. Ólafsson - Freyja Hreinsdóttir, tilnefnd af Menntavísindasviði Háskóla Íslands
Varamaður Kristín Jónsdóttir - Anna María Gunnarsdóttir, tilnefnd af Kennarasambandi Íslands
Varamaður Guðjón Hreinn Hauksson - Haraldur Freyr Gíslason, tilnefndur af Kennarasambandi Íslands
Varamaður Sigrún Grendal Jóhannesdóttir - Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, tilnefnd af Kennarasambandi Íslands
Varamaður Þorsteinn Sæberg