Kennarar við FÁ harma ráðagerðir menntamálaráðherra
Fréttir|28. október 2014
Kennarafélag Fjölbrautaskólans við Ármúla hafa sent frá sér ályktun þar sem þeir segjast harma áform um að skertan aðgang nemenda eldri en 25 ára að bóknámi við fjölbrautaskóla.
Ályktunin hljóðar svo:
Reykjavík 27.10.2014
„Kennarafélag Fjölbrautaskólans við Ármúla harmar þær ráðagerðir menntamálaráðherra, Illuga Gunnarssonar, að skerða aðgang nemenda eldri en 25 ára að bóknámi við framhaldsskóla. Þetta frumvarp er sett fram um leið og hætta á átakinu „Nám er vinnandi vegur“. Með þeim hætti yrði jafnrétti til menntunar skert. Í Fjölbrautaskólanum við Ármúla eru nemendur á ýmsum aldri og er sá fjölbreytileiki einn af styrkleikum skólans. Opið og sveigjanlegt menntakerfi þjónar hagsmunum nútímasamfélags.“