Kennarar til hamingju með fyrsta maí!

Við berjumst áfram fyrir bættum hag kennarastéttarinnar og þar erum við ekki einungis að tala um kaup og kjör. Við berjumst líka fyrir bættu skólakerfi.
Í eðlilegu árferði ættum við að fylkja liði í kröfugöngu og baráttufund úti undir beru lofti um land allt. Í stað þess verður bein útsending á RÚV í kvöld kl. 19:40 þar sem skemmti- og baráttusamkomu verður flutt í Hörpu fyrir tómum sal.
Eins og oft áður erum við án kjarasamnings 1. maí og þannig hefur staðan verið síðustu 10 mánuði.
Samninganefnd sveitarfélaga hefur loks gefið sér tíma til þess að setjast niður með viðræðunefnd FG. Formlegir fundir hafa verið nokkrir og er sá næsti boðaður þann 8. maí.
Við berjumst áfram fyrir bættum hag kennarastéttarinnar og þar erum við ekki einungis að tala um kaup og kjör. Við berjumst líka fyrir bættu skólakerfi.
Nú þegar samfélagið virðist vera að rísa aftur upp eftir margra vikna samkomubann, skorum við á sveitarfélögin að ganga beint til verks og semja við kennara. Við erum tilbúin!
Það er eflaust langt síðan 1. maí hefur verið eins kærkominn hvíldardagur og nú. Njótið því dagsins eftir krefjandi vetur í framandi aðstæðum. Eftir helgi taka við nýjar áskoranir sem við tökum saman á við líkt og áður.
Baráttukveðjur,
stjórn Félags grunnskólakennara.