Kennarar taka vel í námskeið Menntafléttunnar

Fréttir|26. ágúst 2021

Þátttakendur frá 266 skólum eða stofnunum.

Aðsókn að starfsþróunarnámskeiðum á vegum Menntafléttunnar næsta vetur hefur farið fram úr björtustu vonum en rúmlega 920 kennarar og skólastjórnendur hafa skráð sig á námskeið í vetur.

Menntafléttan býður upp á fjölbreytt námskeið sem eru gjaldfrjáls og einnig haldin í fjarnámi þannig að þau henta þátttakendum um allt land. Mennta- og menningarmálaráðuneytið styrkir verkefnið og nemur heildarframlagið 131 milljón króna.

Í haust hefjast tuttugu námskeið og koma þátttakendur frá 266 skólum eða stofnunum.

Á vef Menntafléttunnar kemur fram að viðfangsefni námskeiða snerta fjölbreytt svið náms, kennslu, sjálfbærrar þróunar, vellíðunar, frístundastarfs og forystu. Þráðurinn í gegnum öll námskeiðin er að stuðla að þróun námssamfélaga.

 

Listi yfir námskeið Menntafléttunnar.