Kennarar og stjórnendur Garðaskóla samþykkja verkfall

Fréttir|22. október 2024

Verkfall hefur verið samþykkt í Garðaskóla með öllum greiddum atkvæðum. Þar með hafa verkfallsaðgerðir verið samþykktar í ellefu skólum, fjórum grunnskólum, fjórum leikskólum, tveimur framhaldsskólum og einum tónlistarskóla.

Kennarar og stjórnendur Garðaskóla hafa samþykkt að boða til verkfalls 25. nóvember næstkomandi. Verkfallið er tímabundið og stendur til 20. desember, hafi samningar ekki náðst. 

Já sögðu 100% kennara sem greiddu atkvæði og sama gildir um stjórnendur, þar sögðu 100% já. Kjörsókn var 100% hjá félagsmönnum Skólastjórafélags Íslands og 98% hjá Félagi grunnskólakennara. 

Atkvæðagreiðsla um boðun verkfallsins hófst 18. október og lauk klukkan 13 í dag, þriðjudaginn 22. október.

Þar með hafa félagsmenn Kennarasambandsins í ellefu skólum samþykkt verkfallsaðgerðir í lok mánaðar og byrjun næsta mánaðar. Garðaskóli er fjórði grunnskólinn sem boðar til aðgerða.

Aðgerðir í níu skólum hefjast 29. október, í tíunda skólanum 11. nóvember og í Garðaskóla 25. nóvember. 

Boðuð tímabundin og ótímabundin verkföll

Grunnskólar

  • Tímabundin verkföll hafa verið boðuð í Áslandsskóla, Laugalækjarskóla og Lundarskóla frá 29. október til 22. nóvember. 
  • Tímabundið verkfall hefur verið boðað í Garðaskóla frá 25. nóvember til 20. desember

Tónlistarskóli

  • Boðað hefur verið tímabundið verkfall í Tónlistarskóla Ísafjarðar frá 29. október til 20. desember. 

Framhaldsskólar

  • Boðað hefur verið tímabundið verkfall í Fjölbrautaskóla Suðurlands frá 29. október til 20. desember.
  • Boðað hefur verið tímabundið verkfall í Menntaskólanum í Reykjavík frá 11. nóvember til 20. desember.

Leikskólar

  • Boðuð hafa verið ótímabundin verkföll í Leikskóla Seltjarnarness, Drafnarsteini í Reykjavík, Holti í Reykjanesbæ og Ársölum á Sauðárkróki frá 29. október. 

Hér er hægt að kynna sér stöðuna í kjaramálum og fyrirhugaðar aðgerðir betur.