Kennarar nutu fegurðar í haustgöngu KFR

Kennarafélag Reykjavíkur hefur um langt árabil skipulagt gönguferðir fyrir félagsfólk. Haustganga félagsins fór fram á dögunum og þótti takast afar vel.
Reykjanesið skartaði sínu fegursta á laugardag þegar grunnskólakennarar fjölmenntu í haustgöngu Kennarafélags Reykjavíkur (KFR). Um sjötíu manns mættu vel búin og skóuð en ekið var með hópinn að Vigdísarvöllum.
Formaður KFR, Jón Ingi Gíslason, segir þetta metfjölda í haustferð félagsins og dagurinn hafi verið einkar ánægjulegur, veðrið gott og stemning eftir því.
Gengið var frá Vigdísarvöllum að hinum litríku Sogum, sem sumir kalla Landmannalaugar Reykjanesskagans, og þaðan lá leiðin að Grænavatnseggjum og niður að Spákonuvatni. Þá var gengið utan í Selsvallafjalli, niður Krókamýri og lauk göngunni á Vigdísarvöllum. Göngufólk hafði þá lagt að baki 7,5 kílómetra með 400 metra hækkun. Fimm tíma ganga sem endaði með heimsókn á Bryggjuna í Grindavík þar sem félagsfólk slappaði af.
Leiðsögumaður í ferðinni var Einar Skúlason sem þekkir svæðið mjög vel.