Kennarar mótmæltu harðlega í ráðhúsinu

Fréttir|15. október 2024

Hundruð kennara fjölmenntu í Ráðhúsið á dag, á sama tíma og fundur borgarstjórnar fór fram. Tilefnið var að mótmæla orðum borgarstjóra frá liðinni viku sem að mati fundarmanna eru ámælisverð og til þess fallin að vega að starfsheiðri kennara.

Reykvískir kennarar létu vel í sér heyra í Ráðhúsinu í dag. Tilefni fundarins var að mótmæla harðlega orðum borgarstjóra á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga í síðustu viku. 

Ummælum borgarstjóra þar sem hann sagði kennara semja sig frá kennslu- og vinnuskyldu var harðlega mótmælt. 

„Að halda því fram að kennarar sækist eftir minni samveru með börnum er svívirðileg móðgun við kennara sem hafa menntað sig til þess að starfa með börnum. Það sem gerir ummæli hans sérstaklega ámælisverð er að hann er æðsti yfirmaður kennara í Reykjavík," segir meðal annars í yfirlýsingu reykvískra kennara sem var lesin upp á fundinum. 

Þykir borgarstjóri hafa með orðum sínum vegið að heiðri kennarastéttarinnar og slíkt sé ekki sæmandi, allra síst frá æðsta yfirmanni kennara í Reykjavík. 

„Einar, er ekki bara best að biðjast fyrirgefningar?," stóð á einu mótmælaskiltinu og á öðru stóð „Mygla = veikindi. Ábyrgðin er þín.“

Fundur borgarstjórnar stóð yfir á meðan á mótmælunum stóð en borgarstjórinn, Einar Þorsteinsson, var víðsfjarri. Hann er erlendis.

Dagur B. Eggertsson, staðgengill borgarstjóra, tók á móti yfirlýsingu hópsins.  

Skipulag mótmælanna var í höndum trúnaðarmanna í grunnskólum borgarinnar og Kennarafélags Reykjavíkur annars vegar og hins vegar í höndum trúnaðarmanna í leikskólum borgarinnar og 1. deildar Félags leikskólakennara. 

 

Tengdar fréttir

Svipmyndir frá mótælunum við Ráðhúsið