Kennarar mikilvægir í mótun gervigreindar í skólum

Gervigreind á að styðja við og styrkja mannleg samskipti, góða kennslufræði, faglegt mat kennara og skóla án aðgreiningar – en ekki koma í stað þeirra, skrifar formaður KÍ grein sem birt er á vef ETUCE.
Kennarasamband Íslands telur að gervigreind muni verða eitt af stærstu viðfangsefnum menntakerfisins og kennarastéttarinnar á komandi árum. Af þeim sökum lítur sambandið ekki á fagþróun á sviði gervigreindar sem tímabundið verkefni heldur sem langtímafjárfestingu í kennurum, skólum og samfélaginu. Grunnforsenda þeirrar sýnar er að kennarar eigi ekki aðeins að aðlagast tæknibreytingum heldur taka virkan þátt í að móta þær."
Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri grein sem formaður KÍ, Magnús Þór Jónsson, skrifaði að beiðni ETUCE – Evrópsku kennarasamtökin. Greinin hefur þegar verið birt á vef ETUCE ensamtökin gæta hagsmuna rúmlega 11 milljón kennara í 48 löndum Evrópu.
Tilefni greinarinnar er að segja frá tilraunaverkefni um gervigreind sem sex hundruð íslenskir kennarar hafa tekið þátt í frá síðasta hausti. „Verkefnið var sett á laggirnar til að bregðast við hraðri þróun skapandi gervigreindartækni og vaxandi viðurkenningu á því að skólar, kennarar og menntakerfi þyrftu skipulögð tækifæri til að kanna bæði möguleika og áhættur sem fylgja þessum verkfærum. Í stað þess að innleiða gervigreind með eingöngu stjórnsýslulegum eða tæknidrifnum ferlum, hefur íslenska nálgunin vísvitandi sett kennara í miðju verkefnisins," skrifar Magnús.
Fram kemur í greininni að KÍ kaus að líta ekki á gervigreindina sem tæknilegt mál heldur sem annars vegar faglegt námsferli fyrir kennara og hins vegar sem samvinnu við stefnumótun þar sem kennarar móta notkun gervigreindar í skólum til framtíðar.
Þannig hefur eitt af markmiðum verkefnisins verið að styðja við þróun ramma á landsvísu sem tekur á notkun gervigreindar í íslensku skólakerfi. Verkefnið hefur virkað sem mikilvægur þáttur í starfsþróun kennara.
Sjálfstraust, samstarf milli skóla og kennara
„Með vinnustofum, tilraunastarfi, faglegum samtölum og sameiginlegri íhugun hafa kennarar öðlast aukið sjálfstraust og færni til að nálgast gervigreind á gagnrýninn hátt með kennslufræðileg markmið í forgrunni. Starfið hefur styrkt faglega ábyrgð með því að tryggja að kennarar sjálfir móti virkan hvernig þessi tækni verður nýtt á ábyrgan hátt í skólum," segir í greininni.
Jafnframt segir að fyrstu niðurstöður verkefnisins bendi til:
- aukinnar færni og sjálfstrausts kennara varðandi gervigreind,
- aukins samstarfs milli skóla og kennara þvert á skólastig,
- bætts skilnings á siðferðilegum áskorunum tengdum gervigreind,
- og aukinnar þátttöku kennara í mótun menntastefnu til framtíðar.
Þá kemur fram að Kennarasamband Íslands sýni að fagþróun undir forystu stéttarfélaga geti stuðlað að því að tækninýjungar efli traust, samstarf og lýðræðislega þátttöku innan menntakerfisins, um leið og skólar búi sig á ábyrgan hátt undir þær breytingar sem framtíðin kann að bera í skauti sér.
„Með því að setja kennara í öndvegi við tilraunir, faglega umræðu og stefnumótun er unnt að efla bæði faglegt sjálfstæði þeirra og gæði menntunar. Gervigreind á að styðja við og styrkja mannleg samskipti, góða kennslufræði, faglegt mat kennara og skóla án aðgreiningar – en ekki koma í stað þeirra," skrifar Magnús Þór Jónsson.