Kennarar mennta sérfræðinga, stýrimenn, sálfræðinga ...

Fréttir|1. október 2021

Föllum ekki á prófinu! var yfirskrift áherslumála sem Kennarasambandið lagði fram fyrir nýafstaðnar kosningar.

Menntakerfið er flókið kerfi sem er í stöðugri þróun. Það er mikilvægt að stjórnmálaflokkar kynni sér málin og leggi áherslur á nútímalegar lausnir á raunverulegum vanda. Tvennt má þar nefna sérstaklega: Nauðsynlegt er að tryggja að menntakerfið sé fullmannað hæfu fólki sem treyst er fyrir verkefnum sínum og njóta stuðnings í starfi. Eins er nauðsynlegt að stjórnvöld læri af sögunni og reyni stöðugt að gera betur."

Þetta er meðal þess sem kemur fram í áherslum sem Kennarasambandið setti fram fyrir nýliðnar alþingiskosningar. 

Áherslum KÍ var skipt í fjóra málaflokka; menntamál, kjaramál, jafnréttismál og umhverfismál.

Upphafsorð þessarar greinar eru tekin úr menntamálakaflanum. Þar segir jafnframt að á síðustu misserum hafi vaknað áhyggjur af íslenska menntakerfinu og stofnanir á borð við Evrópumiðstöð og OECD hafi tekið skólakerfið til skoðunar. 

„Sú skoðun hefur m.a. leitt í ljós að pólitísk stefnumörkum í menntamálum hefur tilhneigingu til að vera endaslepp. Sett eru háleit, miðstýrð markmið sem án þess að með fylgi raunhæf innleiðingaráætlun og stuðningur. Þá skortir í mörgum tilfellum upp á að fram fari djúp pólitísk og fagleg umræða um stöðu og stefnu í íslensku menntakerfi. Loks er ljóst að menntakerfið breytist ekki nema á vettvangi og á grundvelli styrkleika sinna. Styðja þarf og styðjast þarf við þá styrkleika.," segir í greinargerð KÍ. 

Lesa meira um áherslur KÍ