Kennarar lýsa óánægju í ályktunum

Fréttir|4. nóvember 2016

Grunnskólakennarar um allt land hafa síðustu daga sent frá sér ályktanir þar sem þeir lýsa óánægju með launakjör sín og stöðu kjaraviðræðna. Ályktanirnar koma í kjölfar úrskurðar kjararáðs um launahækkanir æðstu ráðamanna þjóðarinnar. Kennarar um allt land hafa tekið sig saman til að lýsa óánægju sinni ásamt því að lýsa því yfir að þeir séu tilbúnir til aðgerða til að knýja á um kjarabætur.

Hér má finna þær ályktanir sem sendar hafa verið til Kennarasambands Íslands:

{slider Fjölbrautaskóli Suðurnesja:}

Yfirlýsing Kennarafélags Fjölbrautaskóla Suðurnesja

Kennarafélag Fjölbrautaskóla Suðurnesja lýsir yfir stuðningi við grunnskólakennara í kjarabaráttu þeirra. Grunnskólakennarar eru einn mikilvægasti hlekkurinn í hverju skólasamfélagi og skólasamfélagið einn mikilvægasti hlekkurinn í hverju samfélagi. Kennarafélag Fjölbrautaskóla Suðurnesja krefst þess að grunnskólakennarar fái laun í samræmi við menntun og ábyrgð. Börn og ungmenni í landinu eiga skilið að hljóta faglega og góða menntun og þar eru grunnskólakennarar í aðalhlutverki.

Atli Þorsteinsson
formaður Kennarafélags Fjölbrautaskóla Suðurnesja 

{slider Vestubæjarskóli:}

Reykjavík 1. nóvember 2016

Kennarar við Vesturbæjarskóla krefjast hér með að Kennarasamband Íslands skipuleggi tafarlaust aðgerðir í okkar langdregnu kjarabaráttu, sérstaklega í ljósi nýlegs úrskurðar Kjararáðs um miklar launahækkanir þingmanna, ráðherra og fleiri. Núverandi ástand er ólíðandi og þolinmæði kennara á þrotum.

Við förum fram á að framkvæmdar verði viðeigandi aðgerðir til að framkalla samræmda vinnustöðvun grunnskólakennara strax og teljum það skyldu KÍ að fara að þeim tilmælum.

Kennarafélag Vesturbæjarskóla

 

{slider Setbergsskóli Hafnarfirði:}

Hafnarfjörður 7. nóvember 2016.

Kennarar í Setbergsskóla upplifa nýlegan úrskurð kjararáðs um miklar launahækkanir til útvalinna aðila vera kornið sem fyllti mælinn. Kennarar telja sig sinna jafn ábyrgðarmiklu starfi og alþingismenn, ef ekki mikilvægara. Auk þess er grunnskólakennurum skylt að vera með fimm ára háskólanám að baki.

Við höfum enga þolinmæði lengur í samningaviðræðum við sveitarfélögin, þar sem starf okkar er ítrekað skilgreint og mátað inn í hinar og þessar jöfnur. Við höfum nú þegar verið samningslaus allt of lengi, því förum við fram á að laun grunnskólakennara verði leiðrétt afturvirkt.

Á sama tíma og rætt er um sveigjanleika á vinnumarkaði og að gera skuli vinnuna fjölskylduvænni, er grunnskólakennurum sýnt mikið vantraust með aukinni bundinni viðveru. Við kjósum frekar að okkur sé sýnd sú virðing og traust að við séum fær um að sinna starfi okkar. Það er hlutverk skólastjóra að meta hvort við sinnum skyldum okkar. Einnig er með ólíkindum að ætlast til þess að kennarar bæti við sig þeim störfum sem áður voru greidd sem yfirvinna, innan síns 100% starfs. Lítið sem ekkert fjármagn hefur verið sett í C-hluta vinnumatsins. Aukið álag á kennara kemur fram í meiri streitu og auknum langtímaveikindum. Er það góð mannauðsstefna?

Grunnskólakennarar hafa þurft að taka að sér innleiðingu nýrrar aðalnámskrár að mestu eða öllu leyti án þess að fá nægan tíma eða fjármagn. Námskrá sem kollvarpar algjörlega áherslum í námsmati og kennslu. Samtímis stendur í kjarasamningi grunnskólakennara að greiða skuli sérstaklega fyrir umfangsmikla námskrárvinnu. Þessi vinnubrögð ríkis og sveitarfélaga hafa því bitnað á gæðum kennslu og aukið álag á kennarastéttina enn frekar. Kennsla, undirbúningur og úrvinnsla kennslu er aðalstarf kennarans, of lítill tími og fjármagn er til að innleiða nýja aðalnámskrá og nýtt námsmat. Lítið sem ekkert samráð hefur verið haft við kennara um tilgang og markmið þessara breytinga, né leitað samþykkis þeirra eða umsagna.

Að okkar mati geta hvorki sveitarfélögin né ríkið vikið sér lengur undan ábyrgð á erfiðu ástandi í grunnskólum landsins með því að fela sig á bak við samninganefnd sveitarfélaga. Það er gjörsamlega ólíðandi að finna fyrir þeirri þrúgandi tilfinningu að vera ekki metin að verðleikum og vera sífellt að hugsa um að yfirgefa þennan starfsvettvang.

Samrýmist það mannauðsstefnu Hafnarfjarðar að bjóða grunnskólakennurum upp á samninga sem fela í sér lág laun og mikið vinnuálag? Hver er framtíðarsýn Hafnarfjarðarbæjar í skólamálum? 

Við höfum fengið nóg!  Skólastarf í Hafnarfirði er í húfi.

Grunnskólakennarar Setbergsskóla
 

{slider Breiðagerðisskóli:}

Á fundi kennara í Breiðagerðisskóla þann 7. nóvember 2016 kom eftirfarandi fram:

Kennarar í Breiðagerðisskóla telja þær hækkanir sem Kjararáð ákvað vera úr takti við þær hækkanir sem almenningi hafi verið boðnar.

Nú þegar hafa tveir samningar við kennara verið felldir og krefjast kennarar Breiðagerðisskóla þess að laun þeirra séu í samræmi við menntun og ábyrgð starfsins. Þá telja þeir að rétt eins og þeir sem heyra undir kjararáð, eigi kennarar að geta verið fjárhagslega sjálfstæðir. Áður fyrr var þingfararkaup miðað við laun kennara og telja þeir að enn ætti að vera samræmi milli launa hjá fyrrgreindum stéttum.

Stéttin eldist og nýliðun er lítil. Vegna aukins álags og lélegra launa sækja kennarar í önnur störf í þjóðfélaginu.

Kennarar í Breiðagerðisskóla krefjast þess að Samband íslenskra sveitafélaga semji við Félag Grunnskólakennara um raunverulegar hækkanir launa sem hæfa menntun, ábyrgð og álagi og þeir geri það sem fyrst enda hafa samningar verið lausir frá 1.júní. Með raunverulegum hækkunum er átt við að laun hækki án þess að til komi aukin vinna eða afsal áunninna réttinda.

Kennarar í Breiðagerðisskóla, Reykjavík

 

{slider Laugarnesskóli:}

Laugarnesskóla, 7. nóvember 2016

Kennarar Laugarnesskóla hafa fengið sig fullsadda á þeim aðstæðum sem ríkja í samningamálum stéttarinnar. Í tvígang hafa samningar verið felldir og bíður stéttin enn eftir að boðin verði viðunandi launakjör.

Álagið í starfinu er stöðugt að aukast og sér ekki fyrir endann á því. Kennarar eru háskólamenntuð stétt og á að fá laun samkvæmt því. Nú hefur grunnskólakennaranám lengst úr þremur árum í fimm ár. Nemar sjá sér ekki hag í því að hefja kennaranám þar sem launakjör endurspegla ekki menntunina sem að baki liggur.

Við höfum þungar áhyggjur af framtíð skólastarfs á Íslandi og nýliðun stéttarinnar.

Við krefjumst þess að samningsaðilar ljúki mannsæmandi samningi sem allra fyrst og hækki laun grunnskólakennara verulega.

Virðingarfyllst,
kennarar Laugarnesskóla.

 

{slider Klettaskóli:}

Reykjavík 03.11.2016

Yfirlýsing frá Klettaskóla

Kennarar í Klettaskóla telja að hin gífurlega launahækkun sem Kjararáð hefur ákveðið til handa fulltrúum sveitastjórna, alþingismönnum, ráðherrum og forseta Íslands segi sína sögu um að vilji og geta til launahækkana í þjóðfélaginu er langt um fram það sem grunnskólakennurum hefur verið boðið. Grunnskólakennarar hafa verið samningslausir síðan í vor og tvívegis hafnað nýjum kjarasamningi þar sem einungis var í boði launahækkun sem rúmast innan SALEK rammans.

Kennarasambandið er ekki hluti af SALEK og við kennarar sættum okkur ekki við að semja á forsendum þess. Við krefjumst hærri launa en ekki stöðugrar sölu á réttindum okkar! Við krefjumst launa samkvæmt menntun og þeirri ábyrgð sem við berum í okkar starfi!

Ef sveitarfélögin telji sig ekki hafa efni á að leiðrétta laun okkar grunnskólakennara ber ríkinu að auka tekjumöguleika sveitarfélaganna eða að taka við rekstri grunnskólanna á ný.

Við erum ánægð með að kraftur skuli vera kominn í samningaviðræður samninganefndar FG og sveitarfélaganna. Við styðjum samninganefndina okkar og erum tilbúin til þess að taka þátt í aðgerðum sem samtök okkar standa fyrir til að þrýsta á um launahækkanir og kjarasamning.

Fyrir hönd Grunnskólakennara í Klettaskóla
Bjarni Þórður Halldórsson
 

{slider Ingunnarskóli:}

Grunnskólakennarar í Ingunnarskóla álykta eftirfarandi:

Þolinmæði kennara í Ingunnarskóla er á þrotum. Við teljum að lítið sé gert úr okkar störfum og nýjustu fréttir af launahækkunum æðstu ráðamanna eru kornið sem fyllti mælinn. Við treystum því að stjórn KÍ og FG hlusti á raddir félagsmanna sinna og standi með okkur í baráttunni fyrir bættum kjörum – við viljum MANNSÆMANDI LAUN OG ÞAÐ STRAX!

Auk þess hafa kennarar við Ingunnarskóla þungar áhyggjur af faglegu starfi grunnskóla ef ríkisvald og sveitarfélög bregðast ekki við þeirri grafalvarlegu stöðu sem komin er upp í grunnskólum landsins.

Nýliðun grunnskólakennara er lítil sem engin, stéttin eldist hratt og kennarar leita í auknum mæli í önnur störf. Ástæður þessa eru margvíslegar. Launin eru skammarlega lág, duga ekki til framfærslu og eru engan veginn í takt við það álag, þá ábyrgð og faglegu vinnu sem kennarar reiða af hendi í skóla án aðgreiningar. Það er því bæði sárt og ákaflega erfitt að horfa á hækkanir hjá helstu ráðamönnum þjóðarinnar þar sem um miðja síðustu öld voru laun Alþingismanna miðuð við laun kennara og gerum við skýlausa kröfu á að það viðmið verði tekið upp að nýju.

Starfsaðstæður í skóla án aðgreiningar eru óviðunandi þar sem alltof fáir starfsmenn eru til að sinna þeim margvíslegu og flóknu verkefnum sem grunnskólinn fæst við. Kennarar hafa í áraraðir bent á stöðu grunnskólans og barist fyrir úrbótum en talað fyrir daufum eyrum sveitarfélaga.

Samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur tekið af allan vafa um að sveitarfélögin ráða ekki lengur við verkefnið sem grunnskólinn er. Það væri því ábyrgðarleysi af hálfu ríkisvaldsins að grípa ekki inn í þær aðstæður sem áralangt svelti og aðgerðaleysi í málaflokknum hefur leitt af sér.

Kennarar við Ingunnarskóla skora á ríki og sveitarfélög að bregðast hvorki grunnstoðum menntunar né börnum þessa lands. Standið nú við stóru orðin og sýnið að ykkur sé alvara með því að menntun og velferð barna okkar skiptir höfuðmáli. Þar er ábyrgð ríkisvaldsins mikil.

Ályktun þessi var samþykkt þann 3. nóvember af kennurum Ingunnarskóla á neyðarfundi vegna kjaramála stéttarinnar.
 

{slider Myllubakkaskóli í Reykjanesbæ:}

Ályktun frá kennurum Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ.

Kennarar í Myllubakkaskóla eru orðnir langþreyttir á stöðu mála í okkar kjarabaráttu og ekki lægði öldurnar þegar úrskurði kjararáðs var skellt framan í okkur eins og blautri tusku á mánudagsmorgun. Hvernig sem það mál kemur til með að enda þá krefjumst við tafarlausra aðgerða frá Kennarasambandi Íslands.

Álagið í okkar starfi hefur aukist gríðarlega og sinnum við mörgum mikilvægum þáttum auk kennslunnar sjálfrar. Í gegnum tíðina hefur ýmislegt bæst við en ekkert verið tekið út á móti og því hefur starfið og álagið aukist verulega en launin hafa hins vegar ekki breyst í takt við það.

Það er því skýr krafa okkar að laun kennara hækki í takt við það starf sem unnið er og mikilvægi þess.

Virðingarfyllst
Kennarar Myllubakkaskóla
 

{slider Selásskóli:}

Ályktun frá Selásskola:

Ályktun sem samþykkt var á kennarafundi í Selásskóla, miðvikudaginn 2. nóvember 2016, er svohljóðandi:

Við kennarar í Selásskóla eru langþreyttir á samnings- og aðgerðarleysi samningsaðila í kjarabaráttu grunnskólakennara.

Mælirinn er fullur og við sjáum ekki fyrir endann á þessum viðræðum. Grunnskólakennarar hafa verið samningslausir í tæpt ár sem er ólíðandi.

Við krefjumst þess að samningsaðilar ljúki samningum nú þegar með mannsæmandi launum.

Einnig álítum við nauðsynlegt að FG skipuleggi aðgerðir tafarlaust til að skapa þrýsting á sveitarfélögin.

Kennarar og stjórnendur í Selásskóla.
 

{slider Krikaskóli og Varmárskóli í Mosfellsbæ:}

Ályktun grunnskólakennara Krikaskóla og Varmárskóla yngri og eldri deilda

Mosfellsbær 4. nóvember 2016. 

Kennarar í Krikaskóla og Varmárskóla upplifa nýlegan úrskurð kjararáðs um miklar launahækkanir til útvalinna aðila sem kornið sem fylli mælinn. Kennarar telja sig sinna jafn ábyrgðarmiklu starfi og alþingismenn. Auk þess er grunnskólakennurum skylt að vera með fimm ára háskólanám að baki.

Við höfum enga þolinmæði lengur í samningaviðræðum við sveitarfélögin, þar sem starf okkar er ítrekað skilgreint og mátað inn í hinar og þessar jöfnur. Þetta er algerlega óháð því hvort kjararáð dragi úrskurð sinn til baka. Við höfum nú þegar verið samningslaus alltof lengi.

Því förum við fram á, að nú verði laun grunnskólakennara leiðrétt, rétt eins og laun alþingismanna. Kominn er tími til að laun grunnskólakennara verði jöfn launum framhaldsskólakennara og annarra háskólamenntaðra stétta.

Á sama tíma og rætt er um sveigjanleika á vinnumarkaði og að gera skuli vinnuna fjölskylduvænni, er grunnskólakennurum sýnt mikið vantraust með aukinni bundinni viðveru. Við kjósum frekar að okkur sé sýnd sú virðing og traust að við séum fær um að sinna starfi okkar og það sé hlutverk skólastjóra að meta hvort við sinnum skyldum okkar.

Ofan á þetta hafa grunnskólakennarar svo þurft að taka að sér að innleiða nýja aðalnámskrá í skólastarfið, að mestu eða öllu leyti, án þess að fá til þess tíma eða greiðslur. Námskrá sem kollvarpar algjörlega áherslum í námsmati og kennslu. Samtímis stendur í kjarasamningi grunnskólakennara að greiða skuli sérstaklega fyrir umfangsmikla námskrárvinnu. Þessi vinnubrögð ríkis og sveitarfélaga hafa því bitnað á gæðum kennslu og aukið álagið á kennarastéttinni enn frekar. Engin leið er fyrir kennara að sinna undirbúningi kennslu og úrvinnslu, innan tímans sem til þess er ætlaður, því hann hefur meira eða minna farið í aðlögun námskrár og námsmats.

Hvorki sveitarfélögin né ríkið geta lengur vikið sér undan ábyrgð á erfiðu ástandi í grunnskólum landsins með því að fela sig á bak við samninganefnd sveitarfélaga. Það er gjörsamlega ólíðandi að finna fyrir þeirri þrúgandi tilfinningu að við getum ekki lifað af launum okkar.

Getur það samrýmst skólastefnu Mosfellsbæjar að bjóða grunnskólakennurum lausa samninga, engar viðræður, lág laun og mikið vinnuálag? Við höfum fengið nóg og förum fram á aðgerðir tafarlaust af hálfu sveitarfélagsins Mosfellsbæjar til að koma í veg fyrir flótta grunnskólakennara í önnur störf. Skólastarf í Mosfellsbæ er í húfi.

Grunnskólakennarar í Krikaskóla og Varmárskóla.
 

{slider Hraunvallaskóli:}

Á fundi í Hraunvallaskóla þann 3. nóvember 2016 kom eftirfarandi fram:

Kennarar í Hraunvallaskóla telja þær hækkanir sem Kjararáð ákvað vera úr takt við þær hækkanir sem almenningi hafi verið boðnar og Salek-samkomulagið kveður á um. Því samkomulagi eiga kennarar að fylgja þrátt fyrir því að vera ekki aðilar að því.

Nú þegar hafa tveir samningar verið felldir og krefjast kennarar Hraunvallaskóla þess að laun kennara séu í samræmi við menntun og ábyrgð starfsins. Þá telja þeir að rétt eins og þeir sem heyra undir kjararáð eigi kennarar að geta verið fjárhagslega sjálfstæðir. Áður fyrr var þingfararkaup miðað við laun kennara og teljum við að enn ætti að vera samræmi milli launa hjá fyrirgreindum stéttum.

Stéttin eldist og nýliðun er lítil vegna lélegra kjara miðað við þær menntunarkröfur sem gerðar eru og aukins álags. Af sömu ástæðum eru kennarar að sækja í önnur störf í þjóðfélaginu.

Kennarar í Hraunvallaskóla krefjast þess að Samband íslenskra sveitafélaga semji við Félag Grunnskólakennara um raunverulegar hækkanir launa sem hæfa menntun, ábyrgð og álagi og þeir geri það sem fyrst enda hafa samningar verið lausir frá 1. júní. Að öðrum kosti vilja þeir að Kennarasamband Íslands fari að skipuleggja aðgerðir fyrir þeirra hönd. Þá gera þeir kröfu á fulltrúar þeirra í FG sýni staðfestu í samningaviðræðum því nú sé kominn tími á að félagsmenn séu metnir að verðleikum.

Fyrir hönd kennara í Hraunvallaskóla
Hildur Arna Håkansson, trúnaðarmaður

 

{slider Kársnesskóli í Kópavogi:}

Ályktun frá kennurum í Kársnesskóla

Kennurum í Kársnesskóla í Kópavogi finnst úrskurður kjararáðs um miklar launahækkanir útvalinna aðila óþolandi. Einnig taka þeir allshugar undir með kennurum í Álfhólsskóla en þar segir að óháð því hvort úrskurðurinn verði dreginn til baka hafa kennarar enga þolinmæði lengur gagnvart samningaviðræðum sem miða að því að láta fjölbreytt skólastarf passa í Excel-skjal og hártogunum um atriði sem skipti litlu máli.

Kennarar í Kársnesskóla skora á alla kennara í Kópavogi að taka undir með kennurum í Álfhólsskóla og hvetja stjórnendur Kópavogsbæjar til að standa við fyrirheit í málefnasamningi meirihluta bæjarstjórnar Kópavogs um að skólar í Kópavogi eigi að halda sér í fremstu röð. Það er ekki gert með því að bæta endalaust inn verkefnum og auka þannig álagið í skólunum.

Kennarar í Kársnesskóla skora á samninganefnd FG að sýna kjark í kjarabaráttunni með því að skipuleggja viðeigandi aðgerðir. Kennarar eru langþreyttir á að þurfa endalaust að útskýra starf sitt fyrir ráðamönnum sem halda að skólastarf verði gott með fastri viðveru og stimpilklukku.
 

{slider Smáraskóli:}

Félagsmenn FG í Smáraskóla telja að hin gífurlega launahækkun sem Kjararáð hefur ákveðið til handa sveitastjórnarmönnum, alþingismönnum, ráðherrum og forseta Íslands hafi verið kornið sem fyllti mælinn. Þessar launahækkanir í þjóðfélaginu er langt umfram það sem m.a. grunnskólakennurum og fleirum hefur verið boðið. Grunnskólakennarar hafa verið samningslausir síðan í vor og tvívegis hafnað nýjum kjarasamningi þar sem einungis var í boði launahækkun sem rúmast innan SALEK rammans. Kennarasambandið er ekki hluti af SALEK og við kennarar sættum okkur ekki við að semja á forsendum þess þar sem félag FG hefur dregist mjög svo aftur úr í launaþróun síðustu ár.

Ef sveitarfélögin telja sig ekki hafa efni á að leiðrétta laun okkar grunnskólakennara ber ríkinu að auka tekjumöguleika þeirra eða að taka við rekstri grunnskólanna á ný.

Við bendum á að um miðja síðustu öld voru laun alþingismanna miðuð við laun kennara. Við förum fram á að það viðmið verði tekið upp að nýju m.a. í ljósi þess að nú er krafist fimm ára háskólanáms til kennararéttinda.

Verði ekki brugðist við þessum kröfum á allra næstu dögum, hvetjum við forustu félags grunnskólakennara til að fara út í aðgerðir eins og vinnustöðvanir. Eins munum við hætta við vinnu Aðalnámskrár til að þrýsta á um raunhæfar launahækkanir og kjarasamninga.

 

{slider Vatnsendaskóli:}

Kennarar Vatnsendaskóla senda frá sér svo hljóðandi ályktun.

Kennarar Vatnsendaskóla í Kópavogi telja sig knúna til að lýsa yfir vantrausti á samninganefnd félags grunnskólakennara. Að sama skapi ber að benda á ábyrgð samninganefndar sveitarfélaga sem sýnir engan vilja til að skapa sátt um störf kennara né til leiðréttingar launakjara stéttarinnar, svo þau séu í takt við menntun og ábyrgð í starfi.

Við skorum á samninganefnd félags grunnskólakennara og sveitarfélaga að koma fram með verulegar kjarabætur án frekari sölu réttinda.

Fyrir hönd grunnskólakennara í Vatnsendaskóla
Kjartan Ólafsson
Trúnaðarmaður kennara

{slider Kópavogsskóli:}

Kópavogur 5. nóvember 2016
Langlundargeð okkar er á þrotum!

Kennarar Kópavogsskóla eru vonsviknir, reiðir og leiðir á samningsleysi stéttarinnar og aðgerðarleysi samningsaðila í kjarabaráttu grunnskólakennara.

Álagið í starfinu eykst stöðugt og sér ekki fyrir endann á því. Margoft hefur verið vakin athygli á lítilli endurnýjun í stéttinni en lítil viðbrögð hafa verið við þeim fréttum og allt stefnir í kennaralausa skóla eftir nokkur ár. Okkur þykir sárt að vera svæld úr starfi sem við höfum menntað okkur fyrir og teljum að nær væri að viðurkenna rétt nemenda nútíðar og framtíðar til þess að hafa í skólum landsins hæfa og vel menntaða kennara. Kennarar eru háskólamenntuð stétt og eiga skilið laun samkvæmt því. Við krefjumst þess að samningsaðilar semji nú þegar um laun sem hæfa ábyrgð og menntun stéttarinnar. Vinna við samninga hefur verið gerð auðveldari með nýjasta fordæmi kjararáðs í því hvað leggja á til grundvallar við ákvörðun launa.

Brautin ætti að vera greið.

Kennarar Kópavogsskóla

 

{slider Öldutúnsskóli:}

Ályktun kennara Öldutúnsskóla 3. nóvember 2016

Þolinmæði kennara Öldutúnsskóla er á þrotum!

Við erum orðin langþreytt á stöðu mála í okkar kjarabaráttu og förum fram á verulegar launahækkanir sem endurspegla ábyrgð og menntun kennara.

Staða stéttarinnar í dag er þannig að margir kennarar flýja í önnur störf, færri sækja í grunnskólakennaranámið, meðalaldur kennara hækkar og veikindadögum fjölgar. Framtíðin er óljós sem er ekki ásættanlegt ástand!

Kennarar við skólann íhuga nú næstu skref og fjölmargir sjá fram á að segja upp störfum ef samningar nást ekki fljótt. Við viljum hærri laun en ekki stöðuga sölu á réttindum okkar.

Hvorki ríki né sveitarfélög geta lengur vikið sér undan ábyrgð og hvað þá falið sig á bak við samninganefnd sveitarfélaga.

Við förum fram á að KÍ fari strax í það að kanna hug félagsmanna sinna til aðgerða og teljum það skyldu KÍ að fara að óskum félagsmanna sinna.

Við skorum á KÍ og samninganefnd sveitarfélaganna að ljúka viðræðum og bjóða kennurum samning sem þeir geta samþykkt.

Að lokum sendum við baráttukveðjur til samninganefndar KÍ.

Kennarar í Öldutúnsskóla

 

{slider Melaskóli:}

Kennarar í Melaskóla hafa sammælst um eftirfarandi áskorun til samninganefnda KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga:

Kennarar í Melaskóla krefjast þess að Samband íslenskra sveitarfélaga og Kennarasamband Íslands semji tafarlaust um hækkun grunnlauna kennara. Samningar hafa í tvígang verið felldir og ástandið í kjaramálum kennara er grafalvarlegt og óviðunandi er að samningaviðræður dragist enn á langinn.

Skólakerfið stendur frammi fyrir miklum vanda; atgervisflótti og lítil nýliðun meðal kennara er þegar orðin staðreynd og vandséð önnur lausn en veruleg launahækkun.

Fyrir hönd kennara í Melaskóla:
Júlíus H. Ólafsson
 

{slider Laugalækjarskóli:}

Ályktun frá kennurum Laugalækjarskóla.

Við tökum heilshugar undir þær yfirlýsingar sem komið hafa fram frá öðrum skólum og lýsum áhyggjum okkar á þeirri alvarlegu stöðu sem ríkir í samningaviðræðum kennara og sveitafélaga. Kennarar felldu tvo síðustu samninga og sýndu þannig í verki óànægju sína. Krafan er einföld, við viljum löngu tímabæra hækkun launa án þess að láta réttindi af hendi. Þessu til viðbòtar mà benda à að verið er að innleiða nýtt nàmsmat sem krefst gríðarlegrar vinnu með tilheyrandi àlagi, àn þess að nokkuð fjàrmagn fylgi.

Fyrir hönd kennara Laugalækjarskóla,
Þòrunn Sif Böðvarsdóttir,
Trúnaðarmaður
 

{slider Árbæjarskóli:}

Reykjavík 2. nóvember 2016

Kennarar í Árbæjarskóla upplifa nýlegan úrskurð Kjararáðs um miklar launahækkanir útvalinna aðila sem kornið sem fyllir mælinn.

Algerlega óháð því hvort kjararáð dragi sinn úrskurð til baka hafa kennarar enga þolinmæði lengur gagnvart samningaviðræðum sem miða að því að láta fjölbreytt skólastarf passa í „Excel skjal“ og hártogunum um atriði sem litlu máli skipta.

Við vitum í hverju starf okkar felst og þurfum ekki að láta skilgreina það fyrir okkur.

Hvorki sveitarfélögin né Ríkið geta lengur vikið sér undan ábyrgð á erfiðu ástandi í grunnskólum landsins með því að fela sig á bakvið samninganefnd sveitarfélaga sem hefur það eitt að markmiði að troða skólum´i fyrrnefnt Excel skjal án tillits til þess fjölbreytileika sem fylgir „skóla án aðgreiningar“.

Meðvirkni stjórnar/samninganefndar FG með sveitarfélögum virðist algjör sem sést best á því að enginn kennari kannast við þau laun sem formaður FG heldur fram að kennarar séu með. Djúp gjá hefur þannig myndast milli kennara og talsmanna þeirra og ekkert bendir til þess að stjórn FG hafi lengur kjark til að standa með umbjóðendum sínum í sinni réttinda- og kjarabaráttu.

Við lýsum yfir vantrausti á forystu FG í áframhaldandi samningaviðræðum.

Einnig bendum við á að um miðja síðustu öld voru laun Alþingismanna miðuð við laun kennara og förum fram á að það viðmið verði tekið upp að nýju.

Kennarar við Árbæjarskóla

 

{slider Rimaskóli:}

Yfirlýsing frá Rimaskóla

Á fundi sem haldinn var í Rimaskóla með kennurum og öðru fagfólki skólans fimmtudaginn 3. nóvember 2016, var eftirfarandi yfirlýsing samþykkt:

Kennarar og aðrir fagmenn í Rimaskóla telja að hin gífurlega launahækkun sem Kjararáð hefur ákveðið til handa fulltrúum sveitastjórna, alþingismanna, ráðherra og forseta Íslands sé siðferðislega röng og ýti undir ójöfnuð í samfélaginu. Ljóst er að með þessari ákvörðun er geta til launahækkana í þjóðfélaginu langt umfram það sem m.a. grunnskólakennurum og fleirum hefur verið boðið.

Grunnskólakennarar hafa verið samningslausir síðan í vor og tvívegis hafnað nýjum kjarasamningi þar sem einungis var í boði launahækkun sem rúmast innan SALEK rammans. Kennarasambandið er ekki hluti af SALEK og við kennarar sættum okkur ekki við að semja á forsendum þess ramma.

Við förum fram á að sveitarfélögin átti sig á þeirri grafalvarlegu stöðu sem grunnskólinn er í varðandi mönnun fagfólks. Ekki er útséð með að Háskólinn nái að útskrifa nægilega marga nýliða til þess að kennarastéttin sem fagstétt deyi ekki út. Ekkert er á borðinu sem lokkar ungt fólk inn í stéttina. Því erum við að horfa fram á þá staðreynd að menntakerfið er að molna innan frá. Ekki er veitt fjármagn til skólanna vegna hinna ýmsu verkefna, t.d. innleiðing nýrrar aðalnámsskrár og nýrra lestrarprófa, sem bæði ríkið og sveitarfélög vilja að tekin séu upp innan skólans því ekkert fjármagn fylgir þeim. Út frá þessu má sjá að sveitarfélögin hafa enga burði til að sinna þessu gríðarlega mikilvæga verkefni sem rekstur grunnskóla er.

Við förum fram á að menntun kennara og annars fagfólks sé metin til launa. Ef sveitarfélögin telja sig ekki hafa efni á að leiðrétta laun okkar ber ríkinu að auka tekjumöguleika þeirra eða að taka við rekstri grunnskólanna á ný.

Kennarar í Rimaskóla lýsa yfir vilja sínum til að taka þátt í aðgerðum sem samtök okkar standa fyrir til að þrýsta á um launahækkanir og kjarasamning. Niðurstöður skoðanakönnunar innan skólans bendir til þess að rúmlega 86% kennara við skólann séu tilbúnir í aðgerðir vegna stöðu kjaramála.

Fyrir hönd kennara og annarra fagmanna í Rimaskóla
Ingibjörg Kristinsdóttir og Sigurbjörg Jakobsdóttir
 

{slider Vallaskóli:}

Kennarar í Vallaskóla telja að hin rausnarlega launahækkun sem Kjararáð hefur ákveðið til handa alþingismönnum, ráðherrum og forseta Íslands bendi til þess að vilji og geta sé til launahækkana í þjóðfélaginu langt umfram það sem m.a. grunnskólakennurum hefur verið boðið. Grunnskólakennarar hafa verið samningslausir síðan í vor og tvívegis hafnað nýjum kjarasamningi þar sem einungis var í boði launahækkun sem rúmast innan SALEK rammans þrátt fyrir að KÍ sé ekki hluti af því samkomulagi. Við grunnskólakennarar sættum okkur ekki við að semja á forsendum þess.

Ef sveitarfélögin telja sig ekki hafa efni á að leiðrétta laun okkar grunnskólakennara ber ríkinu að auka tekjumöguleika þeirra eða að taka við rekstri grunnskólanna á ný.

Við bendum á að um miðja síðustu öld voru laun alþingismanna miðuð við laun kennara. Við förum fram á að það viðmið verði tekið upp að nýju m.a. í ljósi þess að nú er krafist fimm ára háskólanáms til kennsluréttinda en áður voru kennarar ekki háskólamenntaðir.

Kennarar í Vallaskóla lýsa yfir vilja sínum til að taka þátt í aðgerðum sem samtök okkar standa fyrir til að þrýsta á um launahækkanir og kjarasamninga.

Fyrir hönd kennara í Vallaskóla
Trúnaðarmenn.

 

{slider Hörðuvallaskóli í Kópavogi:}

Kennarar í Hörðuvallaskóla í Kópavogi senda frá sér eftirfarandi ályktun:

Kennurum Hörðuvallaskóla í Kópavogi er nóg boðið eftir nýjustu fréttir af launahækkunum ráðamanna sem Kjararáð hefur nýlega ákveðið til að gera þau störf eftirsóknarverð og samkeppnishæf miðað við aðrar stéttir. Við erum langþreytt á stöðu mála í kjarabaráttu kennara og áhugaleysi stjórnvalda á okkar málum og eru launin okkar ekki í samræmi við auknar kröfur og fimm ára háskólanám.

Ríkið og sveitarfélögin gera sífellt meiri kröfur á kennara með auknu vinnuálagi, stóraukinni viðveru og minni sveiganleika án þess að þeim sé á nokkurn hátt umbunað í launum.

Stjórnvöld verða að axla ábyrgð hvað varðar menntun nemenda og starfsumhverfi og kjör grunnskólakennara.

Sífellt fleiri kennarar flýja í önnur störf sökum álags og lélegra kjara. Eins og staðan er í dag er framtíðin ekki björt og nýliðun í stéttinni er áhyggjuefni fyrir komandi kynslóð.

Grunnskólakennarar hafa verið samningslausir síðan í vor og tvisvar hafnað nýjum kjarasamningi þar sem einungis var í boði launahækkun sem rúmast innan SALEK samkomulagsins. Kennarasambandið er ekki hluti af SALEK og við kennarar sættum okkur ekki við að semja á forsendum þess.

Við viljum hærri laun en ekki sölu á réttindum okkar og krefjumst launa samkvæmt þeirri ábyrgð sem við berum í okkar starfi.

Kennarar í Hörðuvallaskóla, Kópavogi

 

{slider Patreksskóli:}

Patreksfirði 3. nóvember 2016.

Ályktun frá kennurum Patreksskóla til stjórnar FG vegna launahástökks hækkunar Kjararáðs til alþingismanna o.fl. og láglaunastefnu ríkis-og sveitarfélaga gagnvart grunnskólakennurum. Án tillits til hvort sú launahækkun verður dregin til baka eða ekki.

Okkar krafa er einföld; við krefjumst a.m.k. mannsæmandi launa, þ.e.a.s. launa sem þarf til framfærslu fjölskyldu. Meðallaun á landinu eru á bilinu 600-700 þús, en laun okkar komast ekki nálægt því. Við könnumst ekki við grunnlaun yfir 500 þús!

Við ætlumst einnig til að forysta okkar endurskoði og stöðvi þær auknu kröfur sem Menntamálaráðuneyti setur á kennara landsins án þess að launaaukning fylgi í pakkanum. Skólahald á Íslandi virðist að hruni komið, sem sést á miklum (álags) veikindum kennara, uppsögnum og lítilli nýliðun. Þessu þarf að snúa við, ekki seinna en núna.

Mælirinn er fullur og nú hvetjum við til aðgerða en vonum að ekki þurfi að koma til verkfalls.

Baráttukveðjur,
Kennarar í Patreksskóla.

 

{slider Áslandsskóli í Hafnarfirði:}

Hafnarfjörður 3. nóvember 2016

Kennarar Áslandsskóla eru fyrir löngu orðnir þreyttir og reiðir á samnings- og aðgerðarleysi samningsaðila í kjarabaráttu grunnskólakennara.

Álagið í starfinu er stöðugt að aukast og sér ekki fyrir endann á því. Virðingar- og skilningsleysi í samfélaginu er orðið óbærilegt. Margir kennarar eru komnir í þá stöðu að þurfa að gegna tveimur störfum til að ná endum saman. Kennarar er háskólamenntuð stétt og á að fá laun samkvæmt því.

Við höfum þungar áhyggjur af framtíð skólastarfs á Íslandi og endurnýjun í stéttinni. Hvað er mikilvægara en að mennta ungviði landsins?

Við krefjumst þess að samningsaðilar ljúki mannsæmandi samningi sem allra fyrst og hækki launin verulega.

Virðingarfyllst,
kennarar Áslandsskóla

 

{slider Fossvogsskóli í Reykjavík:}

Á fundi kennara í Fossvogsskóla 3. nóvember 2016 var eftirfarandi krafa samþykkt:

Kennarar í Fossvogsskóla krefjast þess að samið verði tafarlaust um launakjör sem eru í samræmi við störf þeirra, menntun og ábyrgð. Nú þegar hafa tveir samningar verið felldir sem undir þá hafa verið bornir enda krefjast þeir mun betri kjara en boðin hafa verið.

Í ljósi nýgengins úrskurðar kjararáðs sést að mesta hækkun launa er hærri en nemur grunnlaunum kennara sem eru að nálgast eftirlaunaaldur. Meðalaldur starfandi kennara er nú tæplega 50 ár og nýliðun lítil sökum lélegra kjara og mikils álags.

Náist ekki viðunandi samningar eru kennarar í Fossvogsskóla tilbúnir að grípa til róttækra aðgerða.

 

{slider Húsaskóli í Reykjavík:}

Reykjavík, 3. nóvember 2016

Ályktun

Í ljósi hækkunar launa alþingismanna, ráðherra, forseta og annarra sveitarstjórnarmanna, krefjast kennarar Húsaskóla í Reykjavík sambærilegrar hækkunar á launum sínum.

Hvorki sveitarfélögin né Ríkið geta lengur vikið sér undan ábyrgð á erfiðu ástandi í grunnskólum landsins með því að fela sig á bakvið samninganefnd sveitarfélaga.

Við teljum að meta þurfi laun út frá námi, ábyrgð og síauknu álagi í starfi.

Núverandi ástand er ólíðandi og þolinmæði kennara á þrotum.

Við minnum á að um miðja síðustu öld voru laun alþingismanna miðuð við laun kennara.

Kennarar í Húsaskóla

 

{slider Ölduselsskóli í Reykjavík:}

Ályktun frá kennurum við Ölduselsskóla í Reykjavík

Kennarar við Ölduselsskóla hafa þungar áhyggjur af faglegu starfi grunnskóla ef ríkisvald og sveitarfélög bregðast ekki við þeirri grafalvarlegu stöðu sem komin er upp innan grunnskóla landsins

Nýliðun grunnskólakennara er lítil sem engin, stéttin eldist hratt og ungt fólk leitar í önnur störf. Ástæður þessa eru margvíslegar. Launin eru hraksmánarleg, duga ekki til framfærslu og eru engan veginn í takti við það álag, ábyrgð og þá faglegu vinnu sem kennarar reiða af hendi. Kennarar eru helst á pari við niðursetninga fyrri tíma, þeir eru ekki matvinnungar fyrir sig og sína.

Þá eru starfsaðstæður óviðunandi þar sem alltof fáir starfsmenn eru til að sinna þeim margvíslegu og flóknu verkefnum sem grunnskólinn fæst við. Afleiðingarnar eru m.a. óviðunandi langtíma veikindi innan kennarastéttarinnar. Skóli án aðgreiningar krefst meiri mannafla og þekkingar, þeir þættir fylgdu ekki með þegar skólanum var gert að taka við nemendum sem áður var sinnt á stofnunum með mun meiri mannafla. Grunnskólinn er stærsta félagsmálastofnun samfélagsins. Mikill tími og orka fer í vinnu með félagslegan, tilfinningalegan og námslegan vanda nemenda. Þessi verkefni hafa orðið sífellt stærri hluti af störfum kennara. Nú er svo komið að verkefnin eru vaxin skólanum yfir höfuð og orðin óviðráðanleg. Ríki og sveitarfélög eru þannig víða að brjóta lög á nemendum með sérþarfir, þ.e. þeir fá ekki þá þjónustu sem lög og reglur kveða á um.

Ríkisvaldið færði grunnskólanum nýja aðalnámskrá og innleiðing hennar er flókin, viðamikil og tímafrek. Hugsa þarf allt námsmat og skipulag kennslu upp á nýtt. Þeirri vinnu verður ekki að óbreyttu bætt ofan á önnur störf sem þegar eru að sliga kennara.

Kennara hafa í áraraðir bent á stöðu grunnskólans og barist fyrir úrbótum fyrir nemendur sína. En sveitarfélögin hafa þverskallast við að hlusta en ala í staðinn á tortryggni í garð kennara.

Samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur tekið af allan vafa um að sveitarfélögin ráða ekki lengur við verkefnið sem grunnskólinn er. Það væri því ábyrgðarleysi af hálfu ríkisvaldsins að grípa ekki inn í þær aðstæður.

Kennarar við Ölduselsskóla skora á ríki og sveitarfélög að bregðast ekki börnum þessa lands. Standið nú við stóru orðin og sýnið að ykkur er alvara með því að menntum og velferð barna okkar skipti máli. Þar er ábyrgð ríkisvaldsins mikil.

Reykjavík 3. nóvember 2016.

 

{slider Háaleitisskóli í Reykjanesbæ:}

Ályktun frá kennurum Háaleitisskóla Reykjanesbæjar:

Þolinmæði kennara Háaleitisskóla í Reykjanesbæ, er á þrotum. Við teljum að lítið sé gert úr okkar störfum og nýjustu fréttir af launahækkunum æðstu ráðamanna er kornið sem fyllti mælinn.

Algerlega óháð því hvort kjararáð dragi sinn úrskurð til baka hafa kennarar enga þolinmæði lengur gagnvart samningaviðræðum sem miða að því að láta fjölbreytt skólastarf passa í „Excel skjal“ og hártoganir um atriði sem litlu máli skipta. Við vitum í hverju starf okkar felst og þurfum ekki að láta skilgreina það fyrir okkur.

Grunnskólakennarar hafa verið samningslausir frá því í vor og hafa tvívegis hafnað nýjum kjarasamningum. Í þeim samningum hefur aðeins verið boðið upp á launahækkanir sem rúmast innan SALEK samkomulagsins. Kennarasambandið er ekki hluti af því samkomulagi og sættum við okkur ekki við að semja um okkar kjör á forsendum þess. Einnig er ómögulegt að troða grunnskólum landsins í fyrrnefnt Excel skjal því þar er ekki tekið tillit til þess fjölbreytileika sem fylgir skóla án aðgreiningar.

Núverandi ástand í stéttinni er ólíðandi og æ fleiri kennarar flýja í önnur störf, færri sækja í grunnskólakennaranámið og því er framtíðin mjög óljós.

Hvorki ríki né sveitarfélög geta lengur vikið sér undan ábyrgð og hvað þá falið sig á bak við samninganefnd sveitarfélaga. Við viljum hærri laun en ekki stöðuga sölu á réttindum okkar og krefjumst launa samkvæmt menntun og þeirri ábyrgð sem við berum í okkar starfi.

Að lokum viljum við einnig benda á að um miðja síðustu öld voru laun alþingismanna miðuð við laun kennara og förum fram á að það viðmið verði tekið upp að nýju.

Við förum fram á að gripið verði til aðgerða til að framkalla samræmda vinnustöðvun grunnskólakennara strax og teljum það skyldu KÍ að fara að þeim tilmælum.

Ályktun þessi var samþykkt á kennarafundi 2. nóvember 2016.

Kennarar við Háaleitisskóla, Reykjanesbæ.

 

{slider Vogaskóli í Reykjavík:}

Fundur kennara í Vogaskóla 2. nóvember samþykkti eftirfarandi yfirlýsingu mótatkvæðalaust:

Kennarar í Vogaskóla krefjast þess að Reykjavíkurborg semji strax við KÍ um kjör sem eru í samræmi við störf og menntun kennara. Kennarar hafa nú þegar fellt tvo samninga sem undir þá hafa verið bornir svo engum ætti að dyljast að þeir krefjast mun betri kjara en þar voru í boði.

Skólastarf sem standa á undir nafni verður ekki rekið nema með vel menntuðum og ánægðum kennurum. Nú er svo komið að menntuðum grunnskólakennurum fækkar ört vegna lítillar nýliðunar og kennarastéttin eldist. Það er á ábyrgð borgarstjórnar að koma í veg fyrir að þessi óheillaþróun haldi áfram í Reykjavík.

Samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga fer með samningsumboð Reykjavíkurborgar í kjaradeilum hennar við kennara. Samninganefndin virðist hafa það eitt markmið í viðræðunum að fella launakjör þeirra undir svonefnt SALEK samkomulag ríkis, sveitarfélaga og aðila almenna vinnumarkaðarins. Innan þessa samkomulags mun skólunum blæða út, ekki hægt heldur hratt.

Kennarar í Vogaskóla lýsa fullri ábyrgð á hendur skólayfirvalda í Reykjavík ef ekki tekst að halda úti eðlilegu skólahaldi í borginni á næstu dögum.

fh. kennara
Ágúst Tómasson trúnaðarmaður

 

{slider Sunnulækjaskóli á Selfossi:}

Selfoss 2. nóvember 2016

Kennarar í Sunnulækjarskóla eru orðnir langþreyttir á stöðu mála í okkar kjarabaráttu og ekki varð hljóðið skárra eftir úrskurð kjararáðs um launahækkanir þingmanna og ráðherra landsins.

Burt séð frá því hvort að úrskurður kjararáðs verður dregin til baka eða ekki þá krefjumst við tafarlausa aðgerða frá Kennarasambandi Íslands og samstöðu kennara um allt land til að láta í okkur heyra og ná viðunandi árangri í samningsgerð við samningsnefnd sveitarfélaga.

Kennarafélag Sunnulækjarskóla

 

{slider Akurskóli í Reykjanesbæ:}

Þolinmæði kennara Akurskóla er á þrotum. Við teljum að lítið sé gert úr okkar störfum og nýjustu fréttir af launahækkunum æðstu ráðamanna eru kornið sem fyllti mælinn.

Algerlega óháð því hvort kjararáð dragi sinn úrskurð til baka hafa kennarar enga þolinmæði lengur gagnvart samningaviðræðum sem miða að því að láta fjölbreytt skólastarf passa í „Excel skjal“ og hártogunum um atriði sem litlu máli skipta.

Við vitum í hverju starf okkar felst og þurfum ekki að láta skilgreina það fyrir okkur.

Núverandi ástand í stéttinni er ólíðandi og æ fleiri kennarar flýja i önnur störf, færri sækja í grunnskólakennaranámið og því er framtíðin mjög óljós. Einnig er ómögulegt að troða grunnskólum landsins í fyrrnefnt Excelskjal því þar er ekki tekið tillit til þess fjölbreytileika sem fylgir skóla án aðgreiningar.

Hvorki ríki né sveitarfélög geta lengur vikið sér undan ábyrgð og hvað þá falið sig á bak við samninganefnd sveitarfélaga. Við viljum hærri laun en ekki stöðuga sölu á réttindum okkar og krefjumst launa samkvæmt þeirri ábyrgð sem við berum í okkar starfi.

Við förum fram á að framkvæmdar verði viðeigandi aðgerðir til að framkalla samræmda vinnustöðvun grunnskólakennara strax og teljum það skyldu KÍ að fara að þeim tilmælum.

Að óbreyttu verður gripið til hópuppsagna 1. maí 2017.

Einnig bendum við á að um miðja síðustu öld voru laun alþingismanna miðuð við laun kennara og förum fram á að það viðmið verði tekið upp að nýju.

Ályktun þessi var samþykkt á kennarafundi 2. nóvember 2016
Kennarar við Akurskóla

 

{slider Nesskóli í Neskaupstað:}

Neskaupstað 2. nóvember 2016

Kennarar í Nesskóla Neskaupstað senda frá sér eftirfarandi ályktun:

Við fordæmum ákvörðun Kjararáðs um miklar launahækkanir valinna starfsstétta. Við teljum þessa ákvörðun siðferðilega ranga og ýta undir ójöfnuð í samfélaginu. Um leið lýsum við yfir megnri óánægju með þá stöðu sem launamál kennara eru í. Finnst okkur þessi ákvörðun Kjararáðs vera blaut tuska framan í almenning s.s. samningslausa kennara

Kennarar eru búnir að vera samningslausir í marga mánuði og rökin fyrir því að ekki hefur verið hægt að ganga að kröfum okkar er hið svokallaða SALEK samkomulag, auk þess sem okkur er tjáð að launahækkanir sem einhverju skipta vegi að stöðugleika í samfélaginu.

Í kjölfarið á lengingu kennaranáms hefur endurnýjun í stéttinni dregist saman. Sífellt er verið að auka kröfur á kennara og finnst okkur það skjóta skökku við að ríkið gerir síauknar kröfur á kennara með auknu vinnuálagi, án þess að okkur sé á nokkurn hátt umbunað í launum. Enn fremur þarf að auka fjárframlög frá ríki til sveitafélaga til að mæta okkar réttmætu kröfum.

Við sjáum að flótti úr stéttinni er hafinn og mun ekki gera annað en aukast ef ekki verður brugðist við.

Börnin okkar eru tíu ár í grunnskóla og viljum við ekki öll að hæft og ánægt fólk sinni menntun þeirra?

Krafa okkar um hærri laun án sölu á réttindum okkar er skýlaus og krefjumst við þess að laun okkar verði metin eftir mikilvægi starfsins og auknu álagi.

Við lýsum yfir vantrausti á núverandi samninganefnd FG og auglýsum eftir kraftmiklu fólki sem er tilbúið til að berjast fyrir okkur.

Kennarar í Nesskóla

 

{slider Háteigsskóli:}

Reykjavík 2. nóvember 2016

Kennarar við Háteigsskóla krefjast hér með að Kennarasamband Íslands skipuleggi aðgerðir fyrir hönd grunnskólakennara, tafarlaust. Núverandi staða er ólíðandi og þolinmæði kennara á þrotum, bæði vegna tregðu í samningsmálum ekki síður en nýlegur úrskurður Kjararáðs um launahækkanir valinna starfsstétta. Óháð því hvort Kjararáð dragi sinn úrskurð til baka teljum við að hvorki ríki né sveitarfélögum sé stætt á að draga kennara á lausn í kjaramálum þeirra mikið lengur.

Aukinheldur lýsum við yfir áhyggjum vegna nýliðunar í stéttinni. Meðalaldur kennara fer hækkandi, laun eru ekki í samræmi við menntun og því ekki samkeppnishæf.

Við blasir alvarleg staða er snertir framtíð menntamála í landinu.

Við förum fram á viðeigandi aðgerðir til að framkalla samræmda vinnustöðvun grunnskólakennara.

Í fyrstu atrennu leggjum við til að skipulögð verði vinnustöðvun sem nær yfir lengri tíma, staka daga í viku hverri. 

Við teljum það skyldu Kennarasambands Íslands að bregðast við kröfum félagsmanna hið snarasta.

Kennarafélag Háteigsskóla

 

{slider Dalskóli:}

Reykjavík 2. nóvember 2016

Kennarar við Dalskóla krefjast hér með að Kennarasamband Íslands skipuleggi tafarlaust aðgerðir í okkar langdregnu kjarabaráttu, sérstaklega í ljósi nýlegs úrskurðar Kjararáðs um miklar launahækkanir þingmanna, ráðherra og fleiri. Núverandi ástand er ólíðandi og þolinmæði kennara á þrotum.

Við förum fram á að framkvæmdar verði viðeigandi aðgerðir til að framkalla samræmda vinnustöðvun grunnskólakennara strax og teljum það skyldu KÍ að fara að þeim tilmælum.

 

{slider Snælandsskóli:}

Kennarar í Snælandsskóla skora hér með á Kennarasamband Íslands að skippuleggja þegar í stað aðgerðir til þess að mótmæla nýlegum úrskurði Kjararáðs um miklar launahækkanir til þingmanna, ráðherra og fleiri aðila. Við leggjum til að farið verði í samræmdar aðgerðir á landsvísu.

Núverandi ástand er ólíðandi og þolinmæði kennara á þrotum.

Fyrir hönd kennara Snælandsskóla
Árný Jóna Stefánsdóttir trúnaðarmaður og
Berglind Pála Bragadóttir varatrúnaðarmaður

 

{slider Fellaskóli:}

Frá trúnaðarmanni kennara í Fellaskóla!

Sent á forystu KÍ, borgar- og varaborgarfulltrúa

Kennarar í Fellaskóla taka undir ályktun kennara í Árbæjarskóla og gera hana að sinni. Jafnframt krefjumst við þess að stjórnvöld taki alvarlega eftirfarandi ábendingar okkar:

Lítil nýliðun er í stéttinni
Þar af leiðir að leiðbeinendum mun oftar verða falin kennslustörf i skólunum
Með því er hætta á að framsækið skólastarf hverfi
Meðalaldur kennara í grunnskólum landsins er núna 48 ár

Þetta er sú framtíðarsýn sem blasir við okkur sem enn reynum að halda uppi góðu skólastarfi

Hvernig sjáið þið kæru sveitarstjórnarmenn starfið í skólunum í framtíðinni?

Kennarar í Fellaskóla upplifa nýlegan úrskurð Kjararáðs um miklar launahækkanir útvalinna aðila sem kornið sem fylli mælinn.

Algerlega óháð því hvort kjararáð dragi sinn úrskurð til baka hafa kennarar enga þolinmæði lengur gagnvart samningaviðræðum sem miða að því að láta fjölbreytt skólastarf passa í „Excel skjal“ og hártogunum um atriði sem litlu máli skipta.

Við vitum í hverju starf okkar felst og þurfum ekki að láta skilgreina það fyrir okkur.

Hvorki sveitarfélögin né Ríkið geta lengur vikið sér undan ábyrgð á erfiðu ástandi í grunnskólum landsins með því að fela sig á bakvið samninganefnd sveitarfélaga sem hefur það eitt að markmiði að troða skólunum í fyrrnefnt Excel skjal án tillits til þess fjölbreytileika sem fylgir „skóla án aðgreiningar“.

Meðvirkni stjórnar/samninganefndar FG með sveitarfélögum virðist algjör sem sést best á því að enginn kennari kannast við þau laun sem formaður FG heldur fram að kennarar séu með. Djúp gjá hefur þannig myndast milli kennara og talsmanna þeirra og ekkert bendir til þess að stjórn FG hafi lengur kjark til að standa með umbjóðendum sínum í sinni réttinda- og kjarabaráttu.

Við lýsum yfir vantrausti á forystu FG í áframhaldandi samningaviðræðum.

Einnig bendum við á að um miðja síðustu öld voru laun Alþingismanna miðuð við laun kennara og förum fram á að það viðmið verði tekið upp að nýju.

Kennarar í Fellaskóla

 

{slider Salaskóli:}

Kennarar við Salaskóla í Kópavogi krefjast hér með að Kennarasamband Íslands skipuleggi tafarlaust aðgerðir í okkar langdregnu kjarabaráttu, sérstaklega í ljósi nýlegs úrskurðar Kjararáðs um miklar launahækkanir þingmanna, ráðherra og fleiri.

Núverandi ástand er ólíðandi og þolinmæði kennara á þrotum.

Við förum fram á að framkvæmdar verði viðeigandi aðgerðir til að framkalla samræmda vinnustöðvun grunnskólakennara strax og teljum það skyldu KÍ að fara að þeim tilmælum.

Kennarafélag Salaskóla

 

{slider Síðuskóli á Akureyri:}

Kennarar í Síðuskóla á Akureyri senda frá sér eftirfarandi ályktun:

Við fordæmum ákvörðun Kjararáðs um þær miklu launahækkanir sem þeir hafa úthlutað ákveðnum starfsstéttum. Við teljum þessa ákvörðun siðferðislega ranga og ýta undir ójöfnuð í samfélaginu. Um leið lýsum við yfir megnri óánægju með þá stöðu sem launamál grunnskólakennara eru í. Ákvörðun Kjararáðs er eins og blaut tuska framan í samningslausa grunnskólakennara og allan almenning.

Kennarar hafa verið samningslausir í marga mánuði og ein ástæða þess er svokallað SALEK-samkomulag. Okkur er ítrekað tjáð að ekki megi fara út fyrir rammasamkomulagið og því er ekki komið til móts við launakröfur okkar. Grunnskólakennurum er bent á að þeir ógni stöðugleika í samfélaginu með launakröfum sínum sem eru þó töluvert lægri en síðasta ákvörðun Kjararáðs um launahækkanir.

Vegna lengingu námsins, úr þremur í fimm ár, er endurnýjun í grunnskólakennarastéttinni lítil og innan fárra ára stefnir í óefni. Kröfur á kennara aukast í sífellu og vinnuálag eykst án þess að nokkur launaumbun, eða rýmri tími til að vinna það sem bætt er á kennara, komi á móti. Flótti úr stéttinni er staðreynd og verði ekkert að gert fækkar grunnskólakennurum enn frekar.

Fjárframlög frá ríkinu duga ekki sveitarfélögunum og þarf að bregðast við því.

Mikilvægt er að leggja áherslu á gott vinnuumhverfi, góð laun og ánægt starfsfólk innan grunnskólanna sem er vinnustaður æskunnar og þeirra sem móta framtíðina.

Með vinsemd og virðingu,
Helga Dögg Sverrisdóttir, trúnaðarmaður
Síðuskóla á Akureyri. 

{/sliders}