Kennarar krefjast kjarasamnings

Fréttir|11. febrúar 2025

Kennarar komu saman víða um land í gærkvöld til að krefjast bættra kjara. Baráttuandinn var áþreifanlegur.

Kennarar og skólafólk fjölmenntu í kröfugöngur og á samstöðufundi um land allt í gær. Tilgangurinn var að þrýsta á stjórnvöld að gengið verði frá kjarasamningum kennara. Fundirnir hófust klukkan 19:00, á sama tíma og samstöðufundur við Austurvöll hófst fyrir framan Alþingi í höfuðborginni í tilefni af stefnuræðu forsætisráðherra. 

Á Akureyri gengu kennarar fylktu liði frá Rósenborg á Ráðhústorg bæjarins þar sem félagsfólk hélt ræður og erindi fyrir stórum hópnum þar sem bæði mátti sjá kennara og nemendur. Í Skagafirði söfnuðust kennarar saman við Kirkjutorg á Sauðárkróki.

Kennarar á Austurlandi komu annars vegar saman í Tjarnargarði á Egilsstöðum og hins vegar á túninu við N1 á Reyðarfirði. Stemning var góð, sem og mæting, og ýmsum ráðum beitt við að lýsa upp næturhimininn, svo sem vasa- og höfuðljósum, kyndlum og stjörnuljósum. 

Hér fyrir neðan má sjá vel valdar myndir frá viðburðunum og hér má finna fleiri svipmyndir úr baráttunni.