Kennarar koma saman í Borgarbyggð

Fréttir|12. nóvember 2024

Samstöðufundur verður haldinn á Hótel Vesturlandi á miðvikudag.

„Kennarasamband Íslands stendur nú í sögulegri kjarabaráttu þar sem öll aðildarfélögin ganga nú saman til viðræðna um jöfnun launa milli markaða. Lausn kjaradeilunnar virðist ekki vera í sjónmáli og félagsfólk KÍ í Borgarbyggð efnir til samstöðufundar á Hótel Vesturlandi nk miðvikudag kl 17:00.

Það er mikilvægt að við sýnum samstöðu með félögum okkar í níu skólum sem nú eru í verkfalli en einnig að við knýjum á okkar sveitarstjórn að staðið verði við gefin loforð í kjaramálum.“ segir í tilkynningu trúnaðarmanna á Vesturlandi. 

Viðburður á Facebook