Kennarar í Verzlunarskóla Íslands álykta

Fréttir|12. mars 2014

Kennarar í Verzlunarskóla Íslands, sem eru innan FF og FS, sendu frá sér ályktun í gær. Ályktunin er svohljóðandi: 

„Enn einu sinni er líklegt að komi til verkfalls framhaldsskólakennara í landinu.

Framhaldsskólakerfið hefur verið undir sparnaðarhnífnum allt frá árinu 2006 og er nú svo komið að framhaldsskólar landsins, jafnt stjórnendur þeirra sem óbreyttir, eiga orðið í stökustu vandræðum með að standa undir menntunarkröfum sem þeim er ætlað að fylgja.

Nýútkomin skýrsla Ríkisendurskoðunar staðfestir rækilega að framhaldsskólakerfið hangir á horriminni.

Það ætti að vera forráðamönnum mennta- og fjármála íhugunarefni að við Verzlunarskóla Íslands, sem oft er horft til sem vel stöndugrar menntastofnunar sem nýtur framlags frá ríkissjóði, er hið sama uppi á teningnum og í öðrum framhaldsskólum.“