Kennarar í Verzló samþykkja kjarasamning

Fréttir|21. júní 2023

Niðurstaða í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna FF og FS, sem starfa í Verzlunarskóla Íslands, liggur fyrir. Samningurinn var samþykktur.

Yfirgnæfandi meirihluti félagsmanna í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum, sem starfa í Verzlunarskóla Íslands, sögðu já við nýjum kjarasamningi. Kjörsókn var jafnframt góð en 78% greiddu atkvæði. 

Skrifað var undir samninginn 15. júní síðastliðinn. Atkvæðagreiðsla stóð í þrjá daga, lauk á hádegi í dag. 

Niðurstaðan hljóðar svo:

  • Á kjörskrá voru 91
  • Atkvæði greiddu 71 eða 78,02%
  • Já sögðu 68 eða 95,77%
  • Nei sagði 1 eða 1,41%
  • Auðir seðlar voru 2 eða 2,82%

Gildistími samnings er frá 1. apríl 2023 til 31. mars 2024.