Kennarar í tíu leikskólum samþykkja verkfall

Fréttir|22. nóvember 2024

Niðurstaða atkvæðagreiðslna um boðun verkfalls í tíu leikskólum liggur fyrir. Aðgerðirnar voru samþykktar með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða. Verkföll eru boðuð 10. desember næstkomandi.

Verkföll hafa verið boðuð í tíu leikskólum 10. desember næstkomandi, hafi samningar ekki náðst.

Þetta eru leikskólarnir Hulduheimar á Akureyri, Höfðaberg í Mosfellsbæ, Lundaból í Garðabæ, Lyngheimar í Reykjavík, Lyngholt á Reyðarfirði, Óskaland í Hveragerði, Rauðhóll í Reykjavík, Stakkaborg í Reykjavík, Teigasel á Akranesi og Leikskóli Snæfellsbæjar.

Atkvæðagreiðsla stóð dagana 21.-22. nóvember. Félagsfólk KÍ, sem vinnur í fyrrgreindum leikskólum, samþykkti verkfallið með nær öllum greiddum atkvæðum. Kjörsókn var mjög góð, á bilinu 94% til 100%. 

Verkföllin eru ótímabundin.

Aðgerðir í 27 skólum

Félagsmenn Kennarasambandsins hafa á þessari stundu samþykkt aðgerðir í 27 skólum. Sum eru hafin, þremur lýkur í dag, önnur hefjast á mánudag og enn önnur eru boðuð í desember og janúar næstkomandi.

Leikskólinn

  • Verkföll hófust í fjórum leikskólum 29. október síðastliðinn. Þetta eru Leikskóli Seltjarnarness, Holt í Reykjanesbæ, Drafnarsteinn í Reykjavík og Ársalir á Sauðárkróki.
    Verkföll þessi eru ótímabundin.

Grunnskólinn

  • Verkföll hófust í þremur grunnskólum 29. október síðastliðinn. Þetta eru Áslandsskóli í Hafnarfirði, Laugalækjarskóli í Reykjavík og Lundarskóli á Akureyri.
    Verkföllin eru tímabundin, þeim lýkur dag, föstudaginn 22. nóvember.
  • Næstu verkföll í grunnskólum hefjast á mánudag, 25. nóvember. Þá fer félagsfólk KÍ í Garðaskóla í Garðabæ, Árbæjarskóla í Reykjavík, og Heiðarskóla í Reykjanesbæ í verkfall.
    Verkföllin eru tímabundin, standa til 20. desember, hafi samningar ekki náðst.
  • Þá hafa nú verið boðuð verkföll í fjórum grunnskólum frá og með 6. janúar 2025. Hér eru undir Egilsstaðaskóli á Egilsstöðum, Grundaskóli á Akranesi, Engjaskóli í Reykjavík og Lindaskóli í Kópavogi. 
    Verkföllin eru tímabundin og munu standa til 31. janúar 2025, hafi samningar ekki náðst. 

Framhaldsskólinn

  • Félagsfólk KÍ í Fjölbrautaskóla Suðurlands hefur verið í verkfalli síðan 29. október síðastliðinn. 
  • Félagsfólk KÍ í Menntaskólanum í Reykjavík hefur verið í verkfalli síðan 18. nóvember síðastliðinn. 
    Verkföllin eru tímabundin og standa til 20. desember næstkomandi, hafi samningar ekki náðst.

Tónlistarskólinn

  • Félagsfólk KÍ í Tónlistarskóla Ísafjarðar hefur verið í verkfalli síðan 29. október síðastliðinn.
    Verkfallið er tímabundið og stendur til 20. desember, hafi samningar ekki náðst.

  

Hér er hægt að kynna sér stöðuna í kjaramálum og fyrirhugaðar aðgerðir betur.