Kennarar í Tækniskólanum óánægðir með vinnubrögð

Yfirgnæfandi meirihluti kennara í Tækniskólanum lýsir óánægju með þau vinnubrögð sem hafa verið viðhöfð við fyrirhugaðan einkarekstur Fjölbrautaskólans við Ármúla með sameiningu við Tækniskólann.
Yfirgnæfandi meirihluti kennara í Tækniskólanum lýsir óánægju með þau vinnubrögð sem hafa verið viðhöfð við fyrirhugaðan einkarekstur Fjölbrautaskólans við Ármúla með sameiningu við Tækniskólann þar sem ekkert samráð hefur verið haft við kennara og nemendur skólanna. Þetta kemur fram í ályktun sem Kennarafélag Tækniskólans sendi frá sér í gær.
Í áyktuninni lýsir Kennarafélag Tækniskólans jafnframt yfir stuðningi við kennara og nemendur í Fjölbrautaskólanum við Ármúla og er ráðherra menntamála hvattur til vandaðri vinnubragða.
Ályktunin í heild
Ályktun Kennarafélags Tækniskólans um fyrirhugaða sameiningu TS og FÁ samþykkt á fundi 22. maí með yfirgnæfandi meirihluta fundarmanna.
Fundur í kennarafélagi TS lýsir óánægju með þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið við fyrirhugaðan einkarekstur FÁ með sameiningu við TS þar sem ekkert samráð hefur verið haft við kennara og nemendur skólanna. Jafnframt lýsir félagið stuðningi við kennara og nemendur FÁ í því óvissuástandi sem þeir búa nú við. Fundurinn telur að ekki hafi komið skýrt fram hver markmið eða ávinningur eru af þessari fyrirhuguðu sameiningu.
Ennfremur bendir fundurinn á að ekki hefur enn verið unnið úr reynslu af sameiningu fyrri ára og ekki er ljóst hver ávinningurinn er. Fundarmenn hvetja menntamálaráðherra til vandaðri vinnubragða þegar um ákvarðanir er að ræða sem snerta beinlínis hag fjölda manns.