Kennarar í MR senda baráttukveðjur norður

Félag kennara við Menntaskólann í Reykjavík harmar áform um sameiningu MA og VMA. Þetta kemur fram á ályktun sem félagið hefur sent frá sér.
Félag kennara við Menntaskólann í Reykjavík (FKMR) telur að fyrirhuguð sameining Menntaskólans á Akureyri (MA) og Verkmenntaskólans á Akureyri (VMA) verði til þess að skerða verulega námsframboð fyrir nemendur sem vilja sækja sér framhaldsskólamenntun á Akureyri.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun sem FKMR hefur sent frá sér. Þar segir jafnframt að fyrirhuguð sameining verði „síst til þess að efla hið rótgróna og sterka skólasamfélagið sem þessir skólar tilheyra".
FKMR telur að báðir skólar muni glata sérstöðu sinni verði af sameiningu og að valkostum fyrir nemendur muni fækka. „Þá er einnig ámælisvert að kynna aðgerðir sem þessar undir því yfirskini að efla eigi framhaldsskólana þegar aðgerðirnar snúast um hagræðingu í rekstri eins og fram hefur komið í máli mennta- og barnamálaráðherra," segir orðrétt í ályktuninni.
Að lokum senda kennarar í MR kollegum norðan heiða stuðnings- og baráttukveðjur.
Ályktunin í heild
Ályktun frá Félagi kennara við Menntaskólann í Reykjavík (FKMR) vegna fyrirhugaðrar sameiningar Menntaskólans á Akureyri (MA) og Verkmenntaskólans á Akureyri (VMA)
FKMR harmar þau sameiningaráform sem mennta- og barnamálaráðuneytið hafa boðað og kynnt að undanförnu. FKMR telur að með þessu sé verið að skerða verulega námsframboð fyrir nemendur sem vilja sækja sér menntun á framhaldsskólastigi á Akureyri og síst til þess fallið að efla hið rótgróna og sterka skólasamfélag sem þessir skólar tilheyra.
Enn fremur furðar félagsfólk FKMR sig á því að þessar áætlanir hafi verið unnar án, að því er virðist, nokkurs samráðs við skólayfirvöld beggja skóla og aðra hlutaðeigandi sem sameiningin kemur til með að hafa áhrif á, ef af henni verður. Báðir skólar myndu glata sérstöðu sinni ef þetta skref verður stigið, valkostum myndi fækka fyrir nemendur og hætt við að dýrmæt þekking og reynsla nýtist ekki eða tapist í kjölfarið.
Þá er einnig ámælisvert að kynna aðgerðir sem þessar undir því yfirskini að efla eigi framhaldsskólana þegar aðgerðirnar snúast um hagræðingu í rekstri eins og fram hefur komið í máli mennta- og barnamálaráðherra.
FKMR sendir kollegum á Akureyri stuðnings- og baráttukveðjur og vonar að á þau verði hlustað í framhaldinu.
Fyrir hönd FKMR,
Andri Guðmundsson formaður