Kennarar í MR samþykkja boðun verkfalls
Fréttir|1. nóvember 2024

Endurtaka þurfti atkvæðagreiðslu um verkfall í Menntaskólanum í Reykjavík. Niðurstöður liggja fyrir og var boðun verkfalls samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða.
Félagsmenn, FF og FS, sem starfa í Menntaskólanum í Reykjavík hafa samþykkt að boða verkfall 18. nóvember næstkomandi. Boðað er til tímabundins verkfalls; frá 18. nóvember til 20. desember, hafi samningar ekki náðst.
Endurtaka þurfti atkvæðagreiðsluna vegna þess að það fórst fyrir að boða verkfallið með réttum hætti.
Atkvæðagreiðslan nú stóð frá 30. október til 1. nóvember 2024. Niðurstaðan er sú að 85% þeirra sem greiddu atkvæði sögðu já við boðun verkfalls. 9% sögðu nei og auðir seðlar voru 6%.
Kjörsókn var góð, eða 95%.