Kennarar í Fjölmennt og Verzló samþykkja kjarasamning
Fréttir|23. maí 2018

Allsherjaratkvæðagreiðsla í báðum skólum stóð yfir dagana 18. til 23. maí – henni lauk klukkan 12 í dag. Skrifað var undir samning vegna Fjölmenntar 15. apríl og vegna Verzlunarskólans 17. maí.
Félagsmenn í Félagi framhaldsskólakennara (FF) og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum (FS) í Fjölmennt annars vegar og Verzlunarskóla Íslands hins vegar hafa samþykkt nýgerðan kjarasamning.
Allsherjaratkvæðagreiðsla í báðum skólum stóð yfir dagana 18. til 23. maí – henni lauk klukkan 12 í dag. Skrifað var undir samning vegna Fjölmenntar 15. apríl og vegna Verzlunarskólans 17. maí.
Úrslit atkvæðagreiðslu Fjölmenntar:
- Á kjörskrá voru 16
- Alls greiddu 11 akvæði eða 68,75%
- Já sögðu 10 eða 90,91%
- Nei sagði 1 eða 9,09%
- Auðir seðlar 0 eða 0,00%
Úrslit atkvæðagreiðslu Verzlunarskóla Íslands:
- Á kjörskrá voru 94
- Atkvæði greiddu 68 eða 72,34%
- Já sögðu 59 eða 86,77%
- Nei sögðu 5 eða 7,35%
- Auðir seðlar 4 eða 5,88%