Kennarar hvattir til að taka þátt í alþjóðlegri könnun EI

Fréttir|10. júlí 2014

 

Alþjóðasamband kennara (Education International) hefur óskað eftir því við aðildarfélögin að þau taki þátt í könnun á kennslu- og námsaðstæðum. Tilgangurinn er að leggja mat á aðstæður við kennslu og nám og áhrif þeirra á gæði menntunar. Könnunin er liður í viðleitni EI að tryggja að umræða um menntamál á alþjóðavísu endurspegli raunveruleikann í kennslustofum og skoðanir sérfræðinganna í skólum heimsbyggðarinnar.

Á alþjóðavettvangi stendur nú yfir vinna við mótun nýrra þróunarmarkmiða sem taka eiga við þegar þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna um þróun renna sitt skeið á enda árið 2015. EI vinnur ötullega að afla þeirri skoðun fylgis að gæðamenntun fyrir alla verði efst á lista nýrra markmiða um sjálfbæra og friðvænlega þróun. Góð þátttaka í könnuninni mun auðvelda EI að ná þessu fram.

Kennarasambandið hvetur félagsmenn sína til að taka þátt. Könnunin er á ensku, það tekur um 5 til 7 mínútur að svara og frestur er til 31. júlí næstkomandi.

Niðurstöður könnunarinnar verða gerðar opinberar í höfuðstöðum Sameinuðu þjóðanna í október í haust, og verður einum þátttakanda í könnuninni boðið þangað. Einnig geta einstök aðildarfélög EI óskað eftir sérstakri skýrslu um sínar niðurstöður.