Kennarar gengu fylktu liði á fund bæjarstjórans

Fréttir|13. nóvember 2024

Kennarar í Leikskóla Seltjarnarness efndu til samstöðugöngu í morgun. Gangan var fjölmenn og mikill baráttuhugur ríkjandi. Bæjarstjóra Seltjarnarness var færð ályktun þar sem hann var hvattur til að þrýsta á stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga til að semja við kennara.

Kennarar í Leikskóla Seltjarnarness efndu til samstöðugöngu í morgun. Kennararnir eru sem kunnugt er búnir að vera í verkfalli síðan 29. október. Samstöðugangan var fjölmenn og bættust fleiri félagar úr KÍ í gönguna; meðal annars kennarar í öðrum leikskólum og kennarar í Grunnskóla Seltjarnarness. 

Gengið var fylktu liði að bæjarskrifstofum bæjarins þar sem Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri tók við áyktun kennara í Leikskóla Seltjarnaness. 

Í ályktuninni er bent á þá staðreynd að félagar í Félagi leikskólakennara hafa verið án kjarasamnings í fimm mánuði. Sama á við önnur aðildarfélög KÍ sem semja við Samband íslenskra sveitarfélaga. 

Ótímabundin verkföll standa yfir í Leikskóla Seltjarnarness, Drafnarsteini í Reykjavík og Ársölum á Sauðárkróki. 

„Félagsfólki FL sem starfar í  leikskóla Seltjarnarness blöskrar afstaða viðsemjenda sinna í kjaradeilunni og tekur eindregið undir áhyggjur foreldra og nemenda af stöðu mála. Við hvetjum hér með Þór Sigurgeirsson bæjarstjóra Seltjarnarness til að þrýsta á stjórn Sambands íslenskra  sveitarfélaga um að samið verði um jöfnun launa á milli markaða sem allra fyrst," segir orðrétt á áyktuninni. 

Þá segir að aðildarfélög Kennarasambandsins hafi aldrei staðið jafn þétt saman og félagsfólk sé tilbúið í langvinna baráttu. „Félagsfólk Kennarasambands Íslands, krefst þess að íslensk stjórnvöld standi við gerða samninga og tryggi að laun félagsfólks Kennarasambandsins standist samanburð við laun sérfræðinga á almennum markaði"

Ályktunin í heild

Ályktun félagsfólks í Félagi leikskólakennara í Leikskóla Seltjarnarness 13. nóvember 2024

Félagsfólk FL hefur verið samningslaust í fimm mánuði. Verkföll hófust víða um land í lok október og ná þau til allra skólastiga og skólagerða með tilheyrandi áhrifum á þúsundir einstaklinga.

Félagsfólki FL sem starfar í  leikskóla Seltjarnarness blöskrar afstaða viðsemjenda sinna í kjaradeilunni og tekur eindregið undir áhyggjur foreldra og nemenda af stöðu mála. Við hvetjum hér með Þór Sigurgeirsson bæjarstjóra Seltjarnarness til að þrýsta á stjórn Sambands íslenskra  sveitarfélaga um að samið verði um jöfnun launa á milli markaða sem allra fyrst.

Við viljum að tryggt sé að öll börn hafi vel menntaða kennara. Til að laða fólk í kennslu þarf að setja menntamál á oddinn og tala af þekkingu og virðingu um kennarastarfið. Afar mikilvægt er að kennurum standi til boða samkeppnishæf laun og því er brýnt að leysa kjaradeiluna sem fyrst. Vinna þarf að bættum starfsaðstæðum kennara en verkefnafjöldi á herðum þeirra hefur aukist hratt á liðnum árum. Á sama tíma er fjöldi nemenda á hvern kennara víða of mikill og hópar of stórir. Tryggja þarf að skólahúsnæði sé öruggt og heilsusamlegt.

Kennarar krefjast sambærilegra launa og aðrir háskólamenntaðir sérfræðingar á atvinnumarkaði. Ómálefnalegur launamunur milli markaða hefur haft alvarlegar afleiðingar á íslenskt skólakerfi. Það sárvantar kennara. Löngu er orðið tímabært að bregðast við stöðunni með því að jafna launin og fjárfesta þannig í skólakerfinu og framtíðinni. Átta ár er langur tími til að bíða eftir að samkomulag um að jöfnun launa verði efnt. 

Aðildarfélög Kennarasambandsins hafa aldrei staðið eins þétt saman. Samstaðan um verkefnið er alger og félagsfólk er tilbúið í langvinna baráttu fyrir kröfum sínum. Þær kröfur eru ekki aðeins réttlátar og eðlilegar heldur hvílir allur okkar lýðræðislegi grunnur á því að stjórnvöld standi við gerða samninga.

Félagsfólk Kennarasambands Íslands, krefst þess að íslensk stjórnvöld standi við gerða samninga og tryggi að laun félagsfólks Kennarasambandsins standist samanburð við laun sérfræðinga á almennum markaði.

Við skorum á bæjarstjórn Seltjarnarness að beita sér fyrir því að staðið sé við gerða samninga. Við eigum sameiginlegra hagsmuna að gæta og viljum að í Leikskóla Seltjarnarness séu fagmennska og gæði ríkjandi í öllu skólastarfi. Til þess þarf vel menntaða og sátta kennara.

Fjárfestið í kennurum, fjárfestið í nemendum, fjárfestið í framtíðinni

 

Virðingarfyllst,

Félagar í FL sem starfa í Leikskóla Seltjarnarness

 

 

 

 

Myndir úr göngunni