Kennarar frá Taívan kynntu sér íslenskt skólakerfi

Hópur kennara og kennaranema frá Taívan heimsóttu Kennarasamband Íslands og ræddu sameiginlegar áskoranir kennara, menntamál og framtíð kennarastarfs á tímum gervigreindar.
Kennarasamband Íslands fékk góðan hóp í heimsókn á skrifstofuna í dag. Samanstóð hann af 26 Taívönum, ungum kennurum ásamt kennaranemum, en fyrir hópnum fór Yang I-Feng formaður kennarasamtaka í Taívan.
Sigrún Birna Björnsdóttir, sérfræðingur í vinnuumhverfis- og jafnréttismálum, og Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, tóku á móti hópnum og fluttu kynningu um uppbyggingu, áherslur, skyldur og framtíðarsýn KÍ í menntamálum á tímum gervigreindar.

Félagsmenn kennarasamtaka Taívan eru af öllum skólastigum að háskólakennurum meðtöldum og eru félagar um 80.000. Kennarasamtökin voru stofnuð árið 1999 og eru því aðeins einu ári eldri en KÍ.
Heimsóknin kenndi okkur margt en einkum það að áskoranir í starfi kennara og álagsþættir, hvort sem þeir starfa í Taívan eða á Íslandi, eru þau sömu, og var öllum ljóst að gervigreind getur á engan hátt leyst kennara af hólmi. KÍ þakkar fyrir heimsóknina.