Kennarar fá heillaóskir frá forsætisráðherra

Forsætisráðherra sendi kveðju til kennara í morgun. Tilefnið er Alþjóðadagur kennara sem haldinn er hátíðlegur um allan heim í dag, fimmta október.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, birti kveðju til kennara á Facebook-síðu sinni í morgun. Tilefnið er kennaradagurinn, Alþjóðadagur kennara, sem haldinn hefur verið hátíðlegur á heimsvísu síðan árið 1994.
Katrín segir í kveðjunni að margir af þeim sem kennurum, sem hún hafði á yngri árum, hafi haft mikil mótandi áhrif á líf hennar – og þær ákvarðanir sem hún hefur tekið í lífinu.
„Kennarar eru svo margt, þau eru ekki bara að kenna okkur það sem stendur í námskránni, sem er auðvitað mjög mikilvægt, þau eru líka að kynnast okkur þegar við erum börn og ungmenni, á þeim tíma á ævi okkar sem við erum að taka svo margar ákvarðanir sem eiga eftir að skipta máli fyrir hver við verðum," segir Katrín meðal annars.
Katrín segist eiga sínum kennurum þakkarskuld að gjalda um leið og hún óskar öllum kennurum til hamingju með daginn.
Meira um kennaradaginn og kennaravikuna
Vert er að benda félagsfólki á Kennaravarpið sem hleypt var af stokkunum í upphafi viku. Þá hafa formenn aðildarfélaga skrifað greinar í tilefni kennaravikunnar – en þetta árið efndu Evrópsku kennarasamtökn til kennaraviku í tilefni Alþjóðadags kennarar. Skóla- og menntamál hafa því verið í brennidepli í álfunni undanfarna daga.
- Kennaravarpið
Viðtöl KÍ við stjórnmálamenn í tilefni kennaraviku - Lykilþættir ETUCE í kennaravikunni
- Þá er það #kennaravikan
- Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands
- Er það góð hugmynd?
Haraldur Frey Gíslason, formaður Félags leikskólakennara - Er skóli með menntuðum kennurum draumsýn?
Mjöll Matthíasdóttir, formaður Félags grunnskólakennara - Til hamingju kennarar!
Jónína Hauksdóttir, varaformaður Kennarasambands Íslands