Kennarar eru í lykilhlutverki í menntaumbótum

Fréttir|16. júní 2025

Mikið var um dýrðir í Hörpu í lok marsmánaðar þegar stærsti viðburður, á sviði menntamála, í sögu þjóðarinnar fór fram. Þetta var alþjóðlegi leiðtogafundurinn ISTP þar sem ráðherrar menntamála og leiðtogar kennarasambanda 25 þjóðríkja komu saman.

Ekkert lýsir sál samfélags betur en hvernig það kemur fram við börnin sín,“ sagði Mugwena Maluleke, forseti Education International (EI) í opnunarræðu sinni á ISTP leiðtogafundinum sem fór fram í Hörpu í lok mars. Vitnaði hann þar til orða Nelsons Mandela, fyrrum forseta Suður-Afríku.

ISTP leiðtogafundurinn er langstærsti viðburður á sviði menntamála sem hefur farið fram hér á landi. Menntamálaráðherrar og leiðtogar kennarasambanda frá 25 löndum komu til fundarins til þess að ræða kennarastarfið, menntaumbætur og áskoranir. Leiðtogafundurinn er gott tækifæri fyrir ráðherra og leiðtoga kennara til að deila reynslu og þekkingu á hvernig best megi stuðla að gæðamenntun með öfluga kennara við stjórnvölinn.

Það er mikill heiður fyrir Ísland að fá að halda þennan viðburð. Að fundinum standa Education International og Efnahags- og framfarastofnun Evrópu (OECD) auk mennta- og barnamálaráðuneytis og Kennarasambands Íslands. Undirbúningur stóð yfir í heilt ár og þar unnu saman fulltrúar ofangreindra stofnana.

Ekkert lýsir sál samfélags betur en það hvernig það kemur fram við börnin sín.

— Mugwena Maluleke, forseti Education International

 

En víkjum aftur að opnunarræðu Maluleke sem sagði að í orðum Mandela fælist sannleikur. „Samt er menntun ungra barna vanfjármögnuð og óaðgengileg mörgum börnum,“ sagði hann og bætti við að alltof víða einkenndist menntun yngri barna af lágum launum kennara, slæmu vinnuumhverfi og útbreiddum kennaraskorti.

Hvatti Maluleke ráðamenn til að tryggja gæðamenntun í leikskólum, menntun sem stæði öllum börnum til boða og um leið bæta launakjör og starfsskilyrði kennara.

Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, Mugwena Maluleke, forseti Education International, og Haraldur Freyr Gíslason, formaður FL.

Einstakt samtal ráðamanna og kennara

Ávarp Maluleke var gott innlegg við upphaf ISTP-fundarins enda leikskólar og yngri barna menntun eitt af stóru málum fundarins. Þemu fundarins sneru að þessum atriðum:

  • Hágæða leikskólastarfi sem grunni að jöfnuði og inngildandi menntun,
  • Stuðningi við kennara með öflugri skólaþjónustu með jöfnuð og vellíðan að leiðarljósi,
  • Hlutverki kennara í barnvænu menntakerfi: Stuðningur við virka þátttöku og valdeflingu barna.

Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, fór fyrir íslensku sendinefndinni ásamt mennta- og barnamálaráðherra. Fyrirkomulagið á fundinum er þannig að ráðherra og kennaraleiðtogi hvers lands leiða umræðu fyrir hönd síns þjóðríkis þótt stundum séu gerð stólaskipti þegar líður á fundinn.

Magnús og Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, voru þannig í fararbroddi fyrir Ísland og auðvitað líka í hlutverki gestgjafa. Fyrir Guðmund Inga markaði fundurinn skemmtileg tímamót enda fyrsti alþjóðlegi viðburðurinn á hans ráðherraferli – hann var jú aðeins búinn að vera ráðherra í tæpa tvo daga.

Við höfum það hlutverk að styðja hvert og eitt barn við að finna sína styrkleika og þroskast í átt að eigin farsæld

— Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ

 

Íslenska sendinefndin stóð sig vel og kom mikilvægum skilaboðum til viðstaddra; um gildi yngri barna menntunar, mikilvægi þess að fjárfesta í kennurum og stuðla að faglegu sjálfstæði þeirra og vellíðan.

ISTP fundurinn veitir þannig einstakan alþjóðlegan vettvang fyrir einlægar umræður og samtal, annars vegar milli ráðamanna og kennaraleiðtoga og einnig landa á milli.

 


Íslenska sendinefndin. Frá vinstri: Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ, Guðjón Hreinn Hauksson, formaður FF, Mjöll Matthíasdóttir, formaður FG, Haraldur F. Gíslason, formaður FL, Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra og Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ. Mynd/Sigurjón Ragnar

 

Magnús Þór gerði gæðamenntun sem lykil að farsæld og vellíðan að umræðuefni í sinni opnunarræðu. „Við leitum öll að gæðum í daglegu lífi – þar sem skólakerfi og menntun skipa stóran sess. Börn ganga í gegnum leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla með ólíkar væntingar og þroskast frá því að uppfylla grunnþarfir yfir í að öðlast þekkingu, sjálfstæði og sjálfstraust.“

„Á þeirri vegferð verðum við stöðugt að spyrja okkur: Hvað felst í gæðamenntun fyrir þetta barn? Við höfum það hlutverk að styðja hvert og eitt barn við að finna sína styrkleika og þroskast í átt að eigin farsæld,“ sagði Magnús meðal annars.

Hann bætti við að reynslan hefði sýnt síðustu misseri að umræðan um menntun snerist oftar en ekki um peninga. „Hér kemur ISTP hugmyndin sterk inn. Hér í þessu rými koma saman tveir hornsteinar menntunar – kennarasamtök og menntamálaráðherrar – í anda samvinnu og með að markmiði að efla skólakerfin. Gæðamenntun krefst fjárfestingar – í launum kennara eins og við ræddum í kjaraviðræðum, og einnig í öðru sem tengist skólakerfinu. Fjárfesting í skólum er fjárfesting til framtíðar. Við verðum öll að leggja okkur fram um að efla alla þætti kerfisins,“ sagði Magnús jafnframt.

Það þarf nefnilega ekki minni menntun til að kenna minna fólki

— Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ

 

Vel menntaðir kennarar eru undirstaðan

Haldis Holst, varaframkvæmdastjóri EI, gerði leikskólamenntun að umræðuefni við upphaf fundarins. Hún sagði að alltof víða væri staðan sú að innan leikskóla byggi starfsfólk við bág kjör og takmarkaða faglega viðurkenningu og að starfsfólkið væri að miklum meirihluta konur.

„Á ISTP 2025 krefjumst við sanngjarnra launakjara og skuldbindingar sem felur í sér jöfn laun kynjanna á öllum skólastigum,“ sagði Holst og bætti við að vellíðan kennara væri forsenda gæðamenntunar.

Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ, tók sæti við háborðið í umræðu um menntun yngri barna. Hún fjallaði almennt um leikskólastigið hérlendis, kennaraskort, mikilvægi leiks og sköpunar í skólastarfinu.

Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ, við hlið Ernu Blöndal, ráðuneytisstjóra í mennta- og barnamálaráðuneytinu. Jónína tók þátt í umræðum um mikilvægi gæðamenntunar fyrir yngstu börnin.

„Við erum sannfærð um að undirstaða gæðamenntunar í leikskólum byggi fyrst og síðast á vel menntuðum kennurum. Kennarar í íslenskum leikskólum eiga að baki fimm ára meistaranám í háskóla. Þannig hefur það verið í nærri tvo áratugi og þykir gefast vel. Það þarf nefnilega ekki minni menntun til að kenna minna fólki,“ sagði Jónína.

„Í stuttu máli má segja að gæðamenntun í leikskólum sé lykill að heilbrigðu og vel menntuðu samfélagi í framtíðinni – og leggur grunninn að farsæld barna okkar og samfélagsins í heild. Leikskólinn leggur grunninn að öllu sem síðar kemur,“ sagði Jónína.

Taka verður á kennaraskorti

David Edwards, framkvæmdastjóri EI, sem eru alþjóðasamtök kennara með um 33 milljónir kennara í 180 löndum, ræddi kennaraskort sem er vandamál á heimsvísu.

„Ríkisstjórnir verða að grípa til aðgerða nú til að snúa við alþjóðlegum kennaraskorti. Hver nemandi á skilið að fá kennslu frá vel þjálfuðum og vel studdum kennara í fullfjármögnuðu opinberu menntakerfi. Þetta er grundvallarfjárfesting í lýðræði, félagslegri samheldni og velmegun,“ sagði Edwards í ávarpi sínu.

Hann ítrekaði jafnframt að ekki verði um gæðamenntun að ræða án þess að fjárfest sé í kennurum. Sagði hann fundinn vettvang til að finna sameiginlegar lausnir en það væri upp á ríkisstjórnir landanna komið að breyta samtalinu í alvöru aðgerðir.

 


Færeyingar voru aufúsugestir enda var þetta þeirra fyrsti ISTP fundur. Frá vinstri stendur Djóni Nolsøe Joensen, ráðherra menntamála í Færeyjum, Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, og Jakob Eli S. Olsen, formaður Føroya Lærarafelag. Mynd/Sigurjón Ragnar

 

Vellíðan kennara, forsenda gæðamenntunar

ISTP fundurinn stóð í tvo daga en á undan var haldin svokölluð for-ráðstefna þar sem fjallað var um gervigreind, tækifæri og ógnir sem fylgja þessari hraðfara tækninýjung. Báðir fundardagar voru langir og tíminn nýttur til hins ítrasta enda stór hluti fundarmanna kominn langt að, sumir yfir hálfan heiminn.

Katrín Jakobsdóttir, fyrrum forsætisráðherra, gegndi því veigamikla hlutverki að stýra lifandi umræðum 25 sendinefnda. ISTP gengur nefnilega ekki út á ræðuhöld heldur virkt samtal þar sem mælandi fær ekki nema tvær til þrjár mínútur til að koma sínu á framfæri.

Það þarf ekki að orðlengja að Katrínu fórst fundarstjórnin vel úr hendi og náði hún að framkalla áhugaverð skoðanaskipti og samtöl ólíkra þjóða. Gamalreyndir fundarmenn höfðu á orði að fundarstjórnin hefði verið til fyrirmyndar, jafnvel ein sú besta frá upphafi, og umræðurnar djúpar og einlægar.

Við verðum að huga að menntamálum á þessum tímum þegar spenna ríkir í alþjóðamálum og áskoranir blasa við þegar kemur að tækninýjungum og umhverfismálum, og sterkt menntakerfi gegnir lykilhlutverki í að takast á við þær áskoranir

Að fundi loknum er ljóst að þjóðirnar, sem tóku þátt í fundinum, glíma við margar svipaðar áskoranir. Flest ríkin standa frammi fyrir kennaraskorti en á sama tíma eru gerðar ríkar kröfur til gæðamenntunar. Fram kom að fjárfesting í menntakerfinu er nauðsyn og ekki síst í kennslu yngstu barnanna.

Gefum Katrínu Jakobsdóttur orðið en með þessum orðum sleit hún 15. ISTP fundinum í Silfurbergi í Hörpu:

„Kennarar gegna lykilhlutverki í menntaumbótum. Þess vegna er þessi vettvangur, ISTP, svo mikilvægur þar sem hér á sér stað hreinskilið samtal milli ráðherra og formanna kennarasamtaka sem ég vona að þið miðlið áfram til kennara og skólasamfélagsins í ykkar löndum. Við verðum að huga að menntamálum á þessum tímum þegar spenna ríkir í alþjóðamálum og áskoranir blasa við þegar kemur að tækninýjungum og umhverfismálum, og sterkt menntakerfi gegnir lykilhlutverki í að takast á við þær áskoranir.“

Háborðið á ISTP fundinum. Frá EI eru þeir Mugwena Maluleke, Larry Flanagan og John Bangs. Fundarstjórinn Katrín Jakobsdóttir situr fyrir miðju. Henni á vinstri hönd eru Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, Guðmundur I. Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, Andreas Schleicher, yfirmaður menntamála hjá OECED, og Kelsey Burns, hjá OECD.  

 

Heiðarlegt og áhrifaríkt samtal

Sá háttur er ávallt hafður á að í lok ISTP fundar þá setur hvert land fram sín markmið fram að næsta fundi. Íslenska sendinefndin setti eftirfarandi fram:

  • Stofna landsráð allra helstu hagsmunaaðila í menntakerfinu til að tryggja félagslegt samtal og samstarf við kennarasamtökin við mótun og framkvæmd heildstæðrar og alhliða landsstefnu fyrir kennara.
  • Bæta starfsskilyrði kennara með því að veita skólum aukinn stuðning og samþætta þjónustu.
  • Fjárfesta í gæðamenntun með því að fjölga hæfum kennurum á öllum stigum menntunar í gegnum ráðningaraðgerðir og með því að greina og takast á við þá þætti sem laða kennara að starfinu og hafa áhrif á að þeir haldist í starfi.
  • Styðja við faglega getu og sjálfstæði kennara með því að veita tækifæri til stöðugrar faglegrar þróunar, með því að bjóða upp á og styðja við hágæða, viðeigandi og aðgengileg námstækifæri fyrir alla kennara.