Kennarar eru aflið sem getur breytt stöðunni

Er skólakerfið í stakk búið til að taka á móti fjölmennum hópum barna og ungmenna sem hafa hrakist frá heimkynnum sínum? Hverjar eru þarfir flóttabarna og hvernig geta kennarar sem best sinnt þörfum þeirra? Svo hljóða tvær af fjölmörgum spurningum sem leitað var svara við á ráðstefnu Alþjóðasamtaka kennara (Education International – EI) sem haldin var í Stokkhólmi í lok nóvember á liðnu ári.
Markmið ráðstefnunnar var að deila upplýsingum og reynslu um menntun flóttabarna, ræða áskoranir og gagnlegar starfsfyrirmyndir í stjórnsýslu og skólum. Þátttakendur voru 190, langflestir frá kennarasamtökum eða rúmlega 80%, frá Afríku, Evrópu, Mið-Austurlöndum og Norður-Ameríku. Þrír fulltrúar í framkvæmdastjórn skólamálaráðs KÍ sóttu ráðstefnuna, þær Aðalheiður Steingrímsdóttir, varaformaður KÍ, Ingibjörg Kristleifsdóttir, formaður Félags stjórnenda leikskóla, og Ingileif Ástvaldsdóttir, varaformaður Skólastjórafélags Íslands.
Aðalheiður hefur sett saman skýrslu um helstu atriði sem fram komu á ráðstefnunni. Hún segir upplýsingar sem aflað var með þátttöku á ráðstefnunni munu koma að góðum notum í starfi KÍ er lýtur að menntun flóttabarna – einkum efni þar sem fjallað er um starf erlendra kennarasamtaka á þessum sviðum.
Mörg vandamálanna eiga við hér
Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar Hanan al Hroub, handhafi Alþjóðlegu kennaraverðlaunanna 2016, en hún sagði lykilatriði hvernig unnið væri úr aðstæðum barna á flótta. Flóttamannastraumurinn gerði kröfu um samhæfingu margra og þar vanti mikið upp á. „Kennarar eru aflið sem getur breytt stöðunni en til að svo geti orðið verða stjórnvöld að styðja við starf kennara á vettvangi. Ástandið er komið til að vera og er ekki er lengur hægt að bíða eftir aðgerðum,“ er haft eftir al Hroub í skýrslu skólamálaráðs.
„Mörg þeirra vandamála sem tengjast menntun flóttamanna í öðrum löndum eiga líka við hér á Íslandi, svo sem skortur á menntuðum kennurum, skortur á sérstakri menntun og þjálfun fyrir kennara í kennslu flóttabarna, ónógar fjárveitingar og skortur á traustum upplýsingum um flóttabörn, námsárangur og brotthvarf úr námi,“ segir í skýrslunni.
Í skýrslunni segir jafnframt að mjög mikilvægt sé að menntunarmál barna og ungmenna í hópi flóttamanna og hælisleitenda verði tekin föstum tökum og að þeim verði tryggð skólaganga í opinbera kerfinu. Þar gegnir Kennarasamband Íslands mikilvægu hlutverki.
Skólamálaráð KÍ hvetur félagsfólk til að kynna sér efni skýrslunnar.
Vefur ráðstefnunnar
Blogg Ingibjargar Ástvaldsdóttur um ráðstefnuna