Kennarahúsið: Ómetanlegt heimili

Fréttir|28. nóvember 2023

„Þetta var náttúrulega svona heimili. Það var mjög skemmtilegt að vera með félagið í þessu húsi. Í sjálfu sér alveg ómetanlegt að mínu mati,“ segir Valgeir Gestsson, fyrrum skrifstofustjóri KÍ um gamla Kennarahúsið sem sambandið skilaði af sér í vor. Skólavarðan spurði Valgeir út í langa sögu hans og hússins.

Saga Valgeirs Gestssonar og gamla Kennarahússins á Laufásvegi er löng. Árið 1954 hóf sautján ára gamall Valgeir kennaranám í húsinu. Árið 2002, eða 48 árum síðar, lauk Valgeir farsælli starfsævi sinni í sama húsi. Valgeir hafði í millitíðinni sinnt kennslu, félagsstörfum, verið skólastjóri í 24 ár, komið að stofnun Kennarasambands Íslands, verið fyrsti formaður þess, sinnt formennsku í ellefu ár og verið skrifstofustjóri sambandsins síðustu fjórtán ár ferils síns.

Flutti Kennarasambandið í Kennarahúsið

Þrettán af þeim fjórtán árum sem Valgeir var skrifstofustjóri Kennarasambands Íslands var sambandið til húsa í gamla Kennarahúsinu. Það var aðeins ári eftir að Valgeir tók við starfinu, sem sambandið hlaut Kennarahúsið – eða afnot af því – í gjöf frá ríkinu. Húsið var þá í slæmu ástandi og ljóst að ráðast þyrfti í miklar endurbætur. „Það varð eiginlega fyrsta stóra verkefnið mitt sem skrifstofustjóri að sjá um endurbyggingu á gamla Kennaraskólanum. Og þar fluttum við svo inn 1991. Þá voru félagsmenn Kennarasambandsins um 3.500,“ útskýrir Valgeir.

Unnið að endurbótum á gamla Kennarahúsinu við Laufásveg

Aðspurður um hvernig tilfinningin hafi verið að koma aftur í húsið eftir að hafa verið nemandi við Kennaraskólann áratugum áður segir hann: „Þá náttúrulega kannaðist maður við að það væri í slæmu standi að mörgu leyti og því var spáð illa að við værum að fá þennan kofa til þess að endurbyggja hann. En það kom í ljós að það var enginn fúi að neinu ráði í húsinu – það var í fínu standi.“

Engu að síður var nóg að gera og græja áður en starfsemi gæti hafist í húsinu: Það þurfti meðal annars að skipta um alla glugga, gera við burðarvirki hússins og skipta um járnklæðningu. Þá voru gólfdúkar fjarlægðir og trégólfið sem leyndist undir dúknum – og prýðir enn húsið – pússað upp og lakkað. Einnig var inngangur hússins færður og aðgengi að því breytt.

Lengi vel var aðeins einn sími í húsinu – sími sem enn hangir veggfastur á sínum stað – í miðjum stiga. „Þetta var eini síminn í skólanum. Þetta var skólasíminn – fyrir alla starfsemi skólans. Og sá sem var næstur þegar það hringdi svaraði í símann,“ útskýrir Valgeir.

Allt var þetta gert með varðveislusjónarmið og sögu hússins í huga. „Við vorum mjög heppin á sínum tíma. Bæði með arkitektinn sem var áhugamaður um verndun gamalla húsa, Páll Bjarnason, sem var kröfuharður um margt. Og svo fengum við afbragðsiðnaðarmenn í trésmíðina og afburðamálara og eins var með aðra iðnaðarmenn. Það var okkar lán,“ segir Valgeir.

Allt hafðist þetta undir styrkri stjórn skrifstofustjórans og aðeins ári eftir að húsið féll í hendur Kennarasamtakanna hófst starfsemi á aðalhæð gamla Kennarahússins á Laufásvegi. „Við fluttum inn að hausti til og þegar næsta þing Kennarasambandsins var, þá var öllum boðið að koma og skoða húsið, og það gerði náttúrulega mikla lukku. Það var mikil ánægja með húsið meðal félagsmanna. En þetta var umdeilt í byrjun, að við værum að taka við þessum fúakofa til þess að gera hann upp - og það kostaði mjög mikið.“


Gamla Kennarahúsið fyrir og eftir endurbætur

Komið að kaflaskilum

Og þar, í nýendurgerðum kennarakofanum, lauk Valgeir svo starfsævinni árið 2002 þegar hann fékk Hannesi Þorsteins-syni, núverandi skrifstofustjóra sambandsins, tilkomumikla lyklana að húsinu. Þá urðu kaflaskil í lífi Valgeirs. „Það var bara svona eðlilegur framgangur lífsins. Það er náttúrlega gífurleg breyting að fara úr erilsömu starfi, eins og þetta er alltaf – skrifstofustjórastarfinu, og fara svo á eftirlaun.“

Önnur tímamót urðu svo tæpum tveimur áratugum síðar, eða árið 2020, þegar Kennarasamband Íslands flutti starfsemi sína úr gamla Kennarahúsinu við Laufásveg og í nútímalegra húsnæði við Borgartún 30. „Það kom mér ekki á óvart að Kennarasambandið yrði að flytja, vegna þess að það var ekki orðið pláss fyrir starfsemina í húsinu. Það var ekki flóknara en það. Þannig að ég skildi mjög vel þegar farið var í það að kaupa nýtt húsnæði og flytja.“ Frá því að starfsemin flutti í Kennarahúsið árið 1992 og þar til 2020, þegar sambandið flutti í Borgartúnið, hafði félagsmönnum fjölgað úr um 3.500 upp í rúmlega 11.000.


Lyklakippan tilkomumikla að Laufásveginum

Þótt starfsemi sambandsins væri ekki lengur til húsa við Laufásveg og þótt Valgeir væri kominn á eftirlaun, var sögu hans og gamla Kennarahússins ekki alveg lokið. Enn átti eftir að skila húsinu til ríkisins. Það var gert í vor við hátíðlega athöfn. Þá fékk Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra lyklakippuna drjúgu. Valgeir sagði nokkur orð um húsið við tilefnið, forsætisráðherra gerði slíkt hið sama og þakkaði sérstaklega fyrir hversu vel hefði verið hugsað um bersýnilega vel ástatt húsið.

„Svo þegar ég kom núna í húsið, daginn sem það var afhent ríkinu, þá fór ég um það allt og var mjög ánægður með hvað það er í góðu standi.“ „Það er eiginlega alveg í toppstandi. Og það er gaman að því, að afhenda það svona.“


Valgeir við skilin á Kennarahúsinu vorið 2023

Viðveran í húsinu ómetanleg

Þar með hafði Valgeir fylgt starfsemi Kennarasambands Íslands í gamla Kennarahúsinu allt frá því að sambandið fékk húsið að gjöf og þar til því var skilað til ríkisins árið 2023. „Í sjálfu sér var þetta bara eðlileg upplifun, að sjá húsið fara úr höndum Kennarasambandsins,“ segir Valgeir. „En ég hef alltaf miklar tilfinningar til þessa húss, hver sem verður í því. Það er önnur saga.“

„Þetta var náttúrulega svona heimili. Það var mjög skemmtilegt að vera með félagið í þessu húsi. Það var í sjálfu sér alveg ómetanlegt að mínu mati.“ Aðspurður um hvaða væntingar og vonir hann hafi um framtíð gamla Kennarahússins við Laufásveg segir hann: „Nú virðist ekki vera búið að ákveða hvaða starfsemi fer inn, en ef við trúum orðum forsætisráðherrans við afhendinguna, þá verður það eitthvað við hæfi. Svo skulum við sjá til hvað það verður.“