Kennarahúsið lokað á milli 9 og 13 á morgun
Fréttir|20. mars 2018
Kennarahúsið verður lokað fyrir hádegi á morgun, miðvikudaginn 21. mars, vegna námskeiðs starfsfólks. Skrifstofan verður opnuð klukkan 13:00 og verður opið til klukkan 16:00 venju samkvæmt.
Varðandi atkvæðagreiðslu um kjarasamning Félags grunnskólakennara er vert að benda á að starfsmaður kjörstjórnar, Fjóla Gunnarsdóttir, veitir upplýsingar í tölvupósti meðan á lokun hússins stendur. Netfang Fjólu er fjola@ki.is.