Kennarahópur fagnaði 60 ára útskriftarafmæli
Fréttir|12. júní 2018

Það var árið 1958 sem hópurinn lauk kennaraprófinu.
Hópurinn sem hittist í Kennarahúsinu í dag er svo sannarlega reynslumikill því þar voru á ferð kennarar sem fögnuðu því að 60 ár eru liðin frá því að þeir útskrifuðust með kennarapróf. Það var árið 1958 sem hópurinn lauk kennaraprófinu.
Þau voru þrettán talsins sem útskrifuðust og níu þeirra hittust í dag og héldu upp á tímamótin.

Aftari röð frá vinstri: Ellert Sigurbjörnsson, Marinó Þ. Guðmundsson, Valgeir Gestsson, Þórólfur Friðgeirsson og Elsa L. Hermannsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Margrét Jónsdóttir, Helga Tómasdóttir, Erna Guðmundsdóttir og Herdís Sveinsdóttir.