Kennaragöngur á Austurlandi í sumar
Tvær „kennaragöngur“ verða farnar á Austurlandi í sumar. Gunnlaugur B. Ólafsson frá Stafafelli, líffræðikennari við Borgarholtsskóla, er leiðsögumaður og skipuleggjandi ferðanna. Annars vegar verður þjóðleiðin Austurstræti gengin dagana 2. til 7. ágúst næstkomandi. Austurstræti er um eitt hundrað kílómetra leið sem liggur úr byggð í Lóni yfir í byggð í Fljótsdal.
Hins vegar er ferð sem ber yfirskriftina „Tindatvenna“ og verður gengin dagana 11. til 14. ágúst næstkomandi. Gengið verður á Jökulsgilstinda og Sauðhamarstind en þessi fjöll er að finna í víðáttumiklum lendum Stafafells í Lóni.
Nánari upplýsingar um gönguferðirnar er að finna hér og einnig er hægt að lesa sig til á síðu Gönguhópsins Út & Austur á Facebook. Þá er hægt að senda Gunnlaugi póst og óska eftir frekari upplýsingum. Félagsmenn í KÍ geta fengið allt að 20% af verði ferðar endurgreitt, þó að hámarki 15 þúsund krónur fyrir hverja ferð. Gildir fyrir tvo.
- Myndakvöld verður haldið í Skaftfellingabúð, Laugavegi 178, fimmtudagskvöldið 26. júní klukkan 20.