Kennarafélög MA og VMA mótmæla áformum ráðherra

Fyrirhugaðri sameiningu Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskólans á Akureyri er harðlega mótmælt í ályktunum sem kennarafélög MA og VMA hafa sent frá sér.
Kennarafélag Verkmenntaskólans á Akureyri (VMA) mótmælir vinnubrögðum mennta- og barnamálaráðherra, Ásmundar Einars Daðasonar, og stýrihóps hans í tengslum við fyrirhugaða sameiningu VMA og MA. Ráðuneyti menntamála tilkynnti um fyrirhugaða sameiningu framhaldsskólanna tveggja á Akureyri í síðustu viku.
Í ályktun sem Kennarafélag VMA sendi frá sér segir að þegar rýnt sé í skýrslu stýrihóps ráðherra megi berlega „ráða að meginmarkmið með sameiningu skólanna er hagræðing og sparnaður sem m.a. kemur fram í fækkun námsráðgjafa, sálfræðinga og kennara og
stækkun nemendahópa. Þetta fer gegn menntastefnu stjórnvalda þar sem lögð er áhersla á vellíðan nemenda og jöfn tækifæri til náms, óháð t.d. móðurmáli eða námslegri stöðu". Kennarafélagið segir ennfremur að ljóst sé að of geyst sé af stað farið og níðurstaðan sé hvorki í anda menntastefnu stjórnvalda né nýrra farsældarlaga. „Kennarafélag VMA sér sóknarfæri í samstarfi framhaldsskólanna tveggja en leggst gegn fyrirhugaðri sameiningu skólanna á þeim forsendum sem koma fram í skýrslu stýrihópsins," segir í ályktun Kennarafélags VMA.
Kennarafélag Menntaskólans á Akureyri hefur lýst yfir eindreginni andstöðu við áform mennta- og barnamálaráðherra.
„Skýrsla stýrihóps mennta- og barnamálaráðuneytis var unnin án aðkomu almenns starfsfólks og nemenda skólanna sem um ræðir, þrátt fyrir fögur fyrirheit um samráð og samvinnu. Fjölmargar þversagnir og rangfærslur eru í skýrslunni. Hún leiðir í ljós undirliggjandi ástæðu þessara sameiningaráforma, sem er niðurskurður. Meðal þess sem slíkar aðgerðir byggja á er fækkun sálfræðinga, námsráðgjafa og kennara. Fækkun starfsfólks og stækkun nemendahópa samrýmist engan veginn áformum um aukinn stuðning við nemendur í sameinuðum skóla," segir í ályktun Kennarafélags MA.
Þar segir jafnframt að MA og VMA séu framúrskarandi skólar, hvor með sína sérstöðu og sögu. Skólarnir hafi þrifist vel í návígi hvor við annan síðustu 40 árin. Samstarf skólanna hafi verið farið farsælt og lýsir Kennarafélag MA vilja til að efla það enn frekar.