Kennarafélög í framhaldsskólum brýna samningsaðila

Kennarafélög halda áfram að álykta um stöðu mála í samningaviðræðum við stjórnvöld. Fjórar ályktanir bætast í hópinn.
Nú fer að nálgast það að ár sé liðið frá því að samningar framhaldsskólakennara voru lausir. Deilunni hefur verið vísað til ríkissáttasemjara. Hér fylgja ályktanir frá Menntaskólanum á Egilsstöðum, Borgarholtsskóla, Fjölbrautaskólanum við Ármúla og Tækniskólanum.
Egilsstöðum, 3. febrúar 2020
Ályktun til stjórnar og samninganefndar Félags framhaldsskólakennara frá Kennarafélagi Menntaskólans á Egilsstöðum:
Kennarafélag Menntaskólans á Egilsstöðum tekur undir ályktanir annarra félagsdeilda varðandi stöðuna í kjaraviðræðum ríkisins og FF. Nú hafa kjarasamningar verið lausir í rúma tíu mánuði og félagsmenn orðnir langeygir eftir niðurstöðum viðræðna. Stopular fréttir af viðræðum vekja furðu. Kennarafélag ME hvetur samninganefnd FF til að halda félagsdeildum eins vel upplýstum og kostur er og vonar að endaspretturinn sé handan við hornið.
Kennarafélag Menntaskólans á Egilsstöðum
Ályktun um stöðu í samningamálum
Samþykkt á aðalfundi félagsins 29. janúar 2020
Félagar í Kennarafélagi Borgarholtsskóla samþykkja eftirfarandi ályktun:
Nú hafa framhaldsskólakennarar verið samningslausir síðan 31. mars 2019. Það er algjörlega óviðunandi og óskiljanlegt að ekki hafi tekist að klára samninga á svo löngum tíma. Við í Kennarafélagi Borgarholtsskóla hvetjum samningsaðila til að sýna okkur þá virðingu að klára málið fljótt og vel.
Við hvetjum einnig stjórn FF til þess að fara í aðgerðir sem virka hvetjandi fyrir samningsaðila. Þolinmæðin er á þrotum.
Kennarafélag Borgarholtsskóla
Reykjavík, 8. janúar 2020
Kennarafélag Fjölbrautaskólans við Ármúla skorar á samningsaðila að ljúka kjaraviðræðum hið fyrsta og tryggja sátt hjá framhaldsskólakennurum landsins.
Kennarar hafa verið samningslausir síðan í lok mars á síðasta ári og kjaraþróun kennara hefur ekki verið í samræmi við aðra ríkisstarfsmenn með sambærilega menntun síðan haustið 2016. Þrátt fyrir loforð um launajöfnun milli ólíkra vinnumarkaða í tengslum við breytingar á lífeyrisréttindum og fyrirheit um að uppsöfnuð leiðréttingarþörf verði lágmörkuð með endurnýjun kjarasamninga strax í lok samningstíma, hafa kennarar dregist aftur úr sérfræðingum á almennum markaði. Það verður því ekki sátt í skólunum nema ríkið standi við gefin loforð og að launaþróun kennara sé jöfn og í samræmi við aðra háskólamenntaða sérfræðinga.
Við stöndum frammi fyrir miklum áskorunum, sem og spennandi tækifærum, hvort sem það er vegna þróunar sjálfvirknivæðingar í samfélaginu og áhrifa hennar á vinnumarkaðinn eða áskoranir í umhverfismálum. Lykillinn að farsælli framtíð Íslands liggur í menntun, líkt og forsætisráðuneytið sjálft gaf út í skýrslu sinni Ísland og fjórða iðnbyltingin. Það er mikilvægt að hið opinbera grafi ekki undan þeirri samfélagsstoð sem menntakerfið er fyrir þjóðina og gangi þegar í stað til samninga við framhaldsskólakennara í eðlilegu og sanngjörnu samhengi við launaþróun í landinu.
Kennarafélag FÁ lýsir yfir stuðningi við stjórn og samninganefnd FF í viðræðum við ríkið.
Ályktun aðalfundar Kennarafélags Tækniskólans um kjarasamninga
Samþykkt með öllum atkvæðum 9. desember 2019
Framhaldsskólakennarar hafa nú verið samningslausir í um 9 mánuði en það er algjörlega óviðunandi ástand. Ekki er að sjá að viðræður hafi þokast neitt á þessum tíma.
Aðalfundur Kennarafélags Tækniskólans skorar því á samningsaðila í kjaramálum framhaldsskólakennara að vinna af krafti í núverandi kjarasamningum.
Það er óþolandi að það skuli viðgangast æ ofan í æ að í hvert sinn sem kjarasamningar eru lausir dragist von úr viti að ljúka samningum. Slíkt hefur sjálfsögðu áhrif á kjör kennara svo mánuðum skiptir auk þess sem þess konar vinnubrögð eru fyrir neðan allar hellur.
Ef raunverulegur vilji er fyrir hendi hjá því opinbera til þess að efla og styrkja skólastarf þarf að sýna það í verki og liggur í augum uppi að kjör kennara skipta miklu í því samhengi.