Kennarafélag FSu boðar þingmenn til morgunfundar
Fréttir|11. nóvember 2024

Kennarar í Fjölbrautaskóla Suðurlands, sem hafa verið í verkfalli síðan í lok október, vilja eiga orðastað við þingmenn kjördæmisins.
Þingmenn í Suðurkjördæmi hafa fengið boð frá Kennarafélagi Fjölbrautaskóla Suðurlands um að mæta til fundar á morgun, þriðjudaginn 12. nóvember.
Kennarar í Fjölbrautaskóla Suðurlands hafa verið í verkfalli síðan 29. október. Í tilkynningu frá kennarafélaginu segir að verkfallið sé tilkomið vegna þess „að viðsemjendur hafa ekki uppfyllt samkomulag um jöfnun launa og lífeyrisréttinda frá árinu 2016".
Til þess að ræða málin hefur kennarafélagið boðað þingmenn kjördæmisins í morgunkaffi í verkfallsmiðstöð félagsins, Selinu, að Engjavegi á Selfossi.
Til samtalsins er þessum boðið
- Ásmundur Friðriksson, Sjálfstæðisflokki
- Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Flokki fólksins
- Birgir Þórarinsson, Sjálfstæðisflokki
- Guðbrandur Einarsson, Viðreisn
- Guðrún Hafsteinsdóttir, Sjálfstæðisflokki
- Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Framsóknarflokki
- Jóhann Friðrik Friðriksson, Framsóknarflokki
- Oddný Harðardóttir, Samfylkingu
- Sigurður Ingi Jóhannsson, Framsóknarflokki
- Vilhjálmur Árnason, Sjálfstæðisflokki
Fundurinn hefst klukkan 10:30 að morgni þriðjudagsins 12. nóvember.
Heitt verður á könnunni og allir velkomnir.
