Kennarafélag FSn krefst samninga án tafar

Fréttir|22. febrúar 2025

Kennarar í Fjölbrautaskóla Snæfellinga skora á ráðamenn að svara kalli kennara og ganga til samninga, án tafar. Félagsfólk FF og FS, sem starfar í skólanum, hóf verkfall í gær.

„Við skorum á ráðamenn, Samband íslenskra sveitarfélaga, bæjarstjórnir og alþingismenn að taka höndum saman, bregðast við kalli kennara og semja án frekari tafa."

Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun Kennarafélags Fjölbrautaskóla Snæfellinga sem birt var í dag. 

Fjölbrautaskóli Snæfellinga er einn fimm framhaldsskóla sem hófu verkfall í gær. Hinir skólarnir eru Borgarholtsskóli, Menntaskólinn á Akureyri, Verkmenntaskólinn á Akureyri og Verkmenntaskóli Austurlands. 

 

Ályktunin hljóðar svo

Ályktun Kennarafélags Fjölbrautaskóla Snæfellinga

22. febrúar 2025

Við í Fjölbrautaskóla Snæfellinga, ásamt fleiri skólum, gengum fram fyrir skjöldu og stöndum nú í verkfalli fyrir alla kennara landsins.

Við krefjumst sanngjarnra launa, betri starfsaðstæðna í skólum landsins og aukinnar virðingar fyrir því mikilvæga starfi sem við sinnum í þágu samfélagsins. Kennarar eru undirstaða menntakerfisins; án ákjósanlegra kjara og raunverulegs skilnings á mikilvægi menntunar stendur ekki bara menntakerfið heldur samfélagið allt höllum fæti.

Við minnum á loforð og samkomulag frá árinu 2016 um að jafna laun milli markaða og skorum á samninganefndir ríkis og sveitarfélaga að standa við gefin fyrirheit og leita tafarlausra og raunhæfra lausna. Við skorum á ráðamenn, Samband íslenskra sveitarfélaga, bæjarstjórnir og alþingismenn að taka höndum saman, bregðast við kalli kennara og semja án frekari tafa.

Nemendur eiga rétt á menntun við bestu mögulegu skilyrði, en án sanngjarnra kjara og viðurkenningar á mikilvægi kennarastarfsins er menntakerfið í hættu. Við stöndum saman – fyrir nemendur, fyrir skólana og fyrir framtíðina.

Fjárfestum í kennurum – fjárfestum í menntun!