Kennarafélag FB brýnir samninganefnd FF

Það er fullkomlega óviðunandi að ekki skuli vera kominn kjarasamningur eftir þennan langa tíma.
Félagar í Kennarafélagi Fjölbrautaskólans í Breiðholti telja fullkomlega óviðunandi að ekki skuli enn vera búið að ljúka við nýjan kjarasamning. Þetta er meðal þess sem segir í ályktun sem kennarafélagið sendi frá sér.
Ályktun Kennarafélags FB hljóðar svo í heild:
Félagsfundur í Kennarafélagi FB haldinn í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti 16. desember 2019
Félagar í Kennarafélagi FB samþykkja eftirfarandi ályktun:
Nú hafa framhaldsskólakennarar verið samningslausir síðan 31. mars 2019. Það er fullkomlega óviðunandi að ekki skuli vera kominn kjarasamningur eftir þennan langa tíma.
Við félagar í Kennarafélagi FB hvetjum samningsaðila til að herða á vinnu sinni í kjaraviðræðum framhaldsskólakennara. Ljúki árinu 2019 án kjarasamnings hvetjum við stjórn FF að fara að undirbúa aðgerðir.