Kastljósinu beint að kennurum

Alþjóðadagur kennara, eða kennaradagurinn, verður haldinn hátíðlegur um veröld alla miðvikudaginn 5. október. Kennarasambandið efnir venju samkvæmt til Skólamálaþings í tengslum við daginn. Að þessu sinni verða hinsegin málefni skólans tekin til skoðunar og ígrundunar.
Fimmti október skipar sérstakan sess hjá kennarastéttinni um heim allan. Á þessum degi er kastljósinu beint að kennurum og rýnt í hið mikilvæga starf sem þeir inna af hendi á degi hverjum.
Kennaradagurinn í ár verður sá 28. í röðinni en fyrst var efnt til kennaradags árið 1994. Það voru UNESCO, Menntamálastofnun Sameinuðu þjóðanna, í samvinnu við Alþjóðasamband kennara (Education International) sem tóku sig saman um að halda árlegan kennaradag til að vekja athygli á störfum kennara.
UNESCO hefur á hverju ári lagt fram slagorð í tilefni dagsins. Að þessu sinni er slagorðið: The transformation of education begins with teachers! – sem mætti útleggja svo: Umbreyting menntunar hefst hjá kennurum.
Í yfirlýsingu UNESCO segir að alþjóðasamfélagið þurfi að taka höndum saman um að tryggja menntun til handa öllum börnum. Við margt er að glíma, svo sem undangenginn heimsfaraldur, stríðsátök, félagslegan ójöfnuð og hlýnun jarðar, svo nokkur atriði séu nefnd. Kennarar gegna mikilvægu hlutverki sem aldrei fyrr, þeir eru hjartað í menntakerfum heims, án þeirra er ógjörningur að veita nemendum gæðamenntun, segir UNESCO.
Skólamálaþing og hinsegin málefni
Kennarasambandið hefur haldið upp á kennaradaginn um langt árabil. Hefðbundið er að efna til Skólamálaþings KÍ þar sem fagleg málefni eru jafnan tekin til umræðu.
Á því verður engin breyting nú og hefur verið boðað til Skólamálaþings undir yfirskriftinni Fögnum fjölbreytileikanum í skólanum. Hinsegin málefni verða þungamiðja þingsins og flutt verða fjölbreytt erindi um ólíka anga og nálganir þegar kemur að hinsegin málum innan skólakerfisins.
Lykilfyrirlesari verða Íris Ellenberger, dósent á Menntavísindasviði HÍ. Gestafyrirlesarar verða Svandís Anna Sigurðardóttir, sérfræðingur á mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykjavíkurborgar, og Tótla Sæmundsdóttir, fræðslustýra Samtakanna '78.
Auk þess munu fulltrúar skólastiganna flytja ávörp. Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ og formaður Skólamálaráðs, setur þingið. Skoða dagskrána nánar.
Skólamálaþingið fer fram á Hótel Reykjavík Natura, miðvikudaginn 5. október. Þingsetning verður á slaginu klukkan 15 og er áformað að þingið standið til klukkan 17. Félagsmenn KÍ eru velkomnir að sækja þingið meðan húsrúm leyfir. Streymt verður frá þinginu fyrir þá sem eiga ekki heimangengt.
Höldum upp á kennaradaginn
Kennarasambandið hvetur kennara, stjórnendur og starfsfólk skólanna til að halda upp á kennaradaginn og nýta tækifæri til að segja frá áhugaverðu skólastarfi og mikilvægi kennarastéttarinnar almennt.